Innlent

Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Slökkvilið er enn á vettvangi.
Slökkvilið er enn á vettvangi. Vísir/Vilhelm

Flóttamannaleið við Vífilsstaðavatn var lokað á áttunda tímanum í morgun vegna bílveltu en hefur nú opnað að nýju. Einn var í bílnum en hann slasaðist ekki mikið samkvæmt slökkviliði. Samkvæmt Vegagerðinni hefur verið vart við hálkubletti hér og þar um borgina og eru vegfarendur beðnir um að aka varlega.

Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir dælubíl slökkviliðs enn á vettvangi. Hann segir betur hafa farið en á horfðist.

Enginn hafi verið fluttur á slysadeild. Finna megi upplýsingar um færð vega á vef Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×