Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 07:26 Íris Helga við þingsetningu í dómsal Héraðsdóms Reykjaness í maí. Vísir Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu Jóantansdóttur hefst í dag. Hún sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar.
Aðalmeðferðin fer fram í Héraðsdómi Reykjaness og hafa sex heilir dagar verið teknir frá. Í ákærunni er Íris Helga sökuð um hótanir, ærumeiðingar, rangar sakargiftir, skjalafals og barnaverndarlagabrot á árunum 2022 til 2025. Málið var þingfest um miðjan maí og neitaði Íris Helga allri sök. Hún lagði einnig fram kröfu um að réttarhöldin færu fram fyrir luktum dyrum en hafnaði dómari málsins þeirri kröfu. Íris Helga er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. Karlmaður sætir einnig ákæru fyrir hlutdeild að umsáturseinelti gagnvart sambýlisfólki, meðal annars með því að hafa makað saur á hurðarhúna heimilis og bíls fólksins. Við þingfestinguna neitaði hann einnig sök en baðst jafnframt afsökunar á aðkomu sinni að málinu. Þremur dögum eftir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum gaf út ákæru á hendur Írisi Helgu var hún handtekin í tengslum við falska dánartilkynningu um mann í Morgunblaðinu.
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Tengdar fréttir Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. 12. maí 2026 15:25 Með hnút í maganum yfir næstu skilaboðum eltihrellis „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum, þetta er stöðugt hangandi yfir mér, alla daga. Mér finnst ég vera rosalega varnarlaus. Ég er alltaf með hnút í maganum yfir því hvenær næsta færsla birtist á Facebook, hvenær næsta sprengja á eftir að koma,“ segir Garpur Ingason Elísabetarson. 19. mars 2025 06:03 Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli „Ég þurfti að tala við strákana mína og vara þá við. Þannig að það var alveg samtal sem þurfti að eiga sér stað. Og svo sem ekkert í fyrsta skipti. Ég hef alveg þurft að tala við drengina mína áður um alls konar mál af því að líf blaðamannsins getur auðvitað verið flókið þegar maður er að gera þetta rétt.“ 24. október 2026 08:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Sjá meira
Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna. 12. maí 2026 15:25
Með hnút í maganum yfir næstu skilaboðum eltihrellis „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum, þetta er stöðugt hangandi yfir mér, alla daga. Mér finnst ég vera rosalega varnarlaus. Ég er alltaf með hnút í maganum yfir því hvenær næsta færsla birtist á Facebook, hvenær næsta sprengja á eftir að koma,“ segir Garpur Ingason Elísabetarson. 19. mars 2025 06:03
Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli „Ég þurfti að tala við strákana mína og vara þá við. Þannig að það var alveg samtal sem þurfti að eiga sér stað. Og svo sem ekkert í fyrsta skipti. Ég hef alveg þurft að tala við drengina mína áður um alls konar mál af því að líf blaðamannsins getur auðvitað verið flókið þegar maður er að gera þetta rétt.“ 24. október 2026 08:00