„Ofstækisfullar sértrúarskoðanir eru einfaldlega eitur“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. október 2026 11:02 Hjörtur Magni vill ekki sjá menn með skoðanir lítkt og Muhammad Taqi Usmani hér á landi. Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar segir ofstækisfullar sértrúarskoðanir á borð við skoðanir pakistanska trúarleiðtogans Muhammad Taqi Usmani vera eitur. Hann segir að ekki eigi að hleypa talsmönnum slíkra ofstækisskoðana inn í landið og segir þær að finna í öllum helstu trúarbrögðum. Í kjarnaboðskap trúarbragðanna sé að finna samhygð, náungakærleika og umburðarlyndi en ofstækið og blind bókstafstrú sé mikill skaðvaldur innan allra trúarhefðanna.
Þetta kemur fram í aðsendri grein frá Hirti á Vísi. Pakistanski trúarleiðtoginn hélt á dögunum fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg. Hann hefur varið dauðarefsingu gagnvart þeim sem yfirgefa íslam, talað fyrir auknum refsingum fyrir kynferðislegu samneyti samkynhneigðra og fagnað valdatöku talíbana í Afganistan. Forsvarsmenn moskunnar sögðu að ekki hafi verið um formlega heimsókn trúarleiðtogans að ræða, hann hefði mætt sem ferðamaður og ekki viðrað skoðanir sínar á þessum hlutum í moskunni. „Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn land okkar! Þetta er í hrópandi andstöðu við öll okkar rótgrónu, vestrænu og íslensku gildi. Ég trúi að við Íslendingar reynum að aðhyllast víðsýni, mannréttindi og umburðarlyndi. En þetta er í hrópandi andstöðu við öll okkar gildi,“ skrifar Hjörtur Magni í grein sinni á Vísi. Hafi valdið þjáningu út um allan heim Hann segir ofstækisfullar sértrúarskoðanir einfaldlega vera eitur. Nokkuð sem Íslendingum beri að forðast og fjarlæga úr okkar umhverfi. Það skipti ekki máli hvort þær komi frá íslam, kristni eða gyðingdómi. Þær sé að finna í öllum helstu trúarbrögðum og nefnir Hjörtur dæmi úr gyðingdómi og kristni. „Þær eru að finna í gyðingdómi svo sem í dag hjá mönnum eins og Bezalel Smotrich og Itamar Ben Gvir í fráfarandi ríkisstjórn Ísrael en beinast í allt aðra átt. Megi þeir aldrei koma til okkar lands með sínar sjúku hugmyndir. Aðra mætti nefna hér. Í kristnum menningarheimi nútímans er að finna einhverja alvarlegustu glæpina. Í Rússlandi notar Pútín rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna og Kírill patríarka æðsta mann kirkjunnar til að blessa yfir og kyssa, öll þau viðbjóðslegu vopn, tæki og tól sem hann dælir yfir saklausa borgara Úkraínu til að drepa sem flesta og eyðileggja sem mest.“ Þá segir Hjörtur að í Bandaríkjunum undir núverandi forseta sé kristnum gildum gersamlega snúið á hvolf. Þau séu notuð til að réttlæta sjálfhverfar og forheimskulegar aðgerðir einstaklings sem kosti ómældaþjáningu og ótal mannslíf. Öfgafull hægri bókstafstrú einkum í suðurfylkjum Bandaríkjanna sé komin óralangt frá upphaflegum boðskap Jesú Krists. „Þrjár stóru eingyðistrúarhefðirnar gyðingdómur, kristni og islam eiga mun meira sameiginlegt en það sem greinir á milli. Í kjarnaboðskap þeirra allra er að finna samhygð, náungakærleika og umburðarlyndi. En ofstækið og blind bókstafstrú er sem eitur, mikill skaðvaldur innan allra trúarhefðanna og hafa komið óorði á allar trúarhefðirnar og valdið þjáningu og tjóni um allan heim,“ skrifar Hjörtur. „Jú, við eigum að hafa þroska og þor til að útiloka skaðræðis ofstækismenn eins og Muhammad Taqi Usmani. Eins eigum við að kanna þann fjárhagslega bakgrunn þeirra sem bjóða manni sem þessum til landsins. Hverjir hafa fjármagnað það trúfélag eða þann grunn sem stendur að baki þessum fáránleika? Berjumst gegn þeim öflum sem þennan sjúklega málstað styðja. Burt með bölvað ofstækið.“
Trúmál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Sjá meira