Innlent

Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Íris Helga Jónatansdóttir við komuna í Héraðsdóm Reykjaness í morgun.
Íris Helga Jónatansdóttir við komuna í Héraðsdóm Reykjaness í morgun. Vísir

Íris Helga Jónatansdóttir, sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, neitar því að hafa mætt mætt með krukku á heimili brotaþola og sagt að í því væri fóstur. Hún er sökuð um að hafa dreift óhróðri um fólk, stofnað aðganga á samfélagsmiðlum í þeirra nafni en segist sjálf hafa litla kunnáttu þegar komi að slíkum miðlum.

Aðalmeðferðin hófst upp úr klukkan níu í morgun. Ákæran er í 68 liðum og er reiknað með að þessi fyrsti dagur fari í að spyrja út í hvern einasta lið hennar. Ákærunni er skipt í nokkra hluta en Íris Helga er ásökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar.

Skýrslutakan stendur enn yfir en gert var hlé rétt eftir klukkan ellefu.

Fyrsti hlutinn varðar einn karlmannanna, barn hans, sambýliskonu og konu sambýliskonunnar. Írisi er meðal annars gefið að sök að hafa farið á heimili mannsins með krukku og sagt að í henni ætti að vera fóstur sem hún missti. Fyrir dómi segir Íris Helga að hún hafi farið í þungunarrof en neitaði alfarið að hafa farið með krukku á heimili mannsins.

„Ég fór í þungunarrof og svona sögur býr enginn til nema karlmaður. Það vita allir að þú ferð ekki heim með fóstur í krukku,“ sagði Íris Helga.

„Mér finnst þetta mjög skrýtið, ég las að ég hefði átt að vera að geyma þetta inni í ísskáp. Þetta er mjög furðuleg saga eins og ég segi.“

Hafi brugðist við áreiti mannsins

Hún hafi vissulega komið heim til mannsins en hann hafi verið að áreita dóttur hennar með því að gefa henni blóm og nammi. Það hafi ekki fallið í geðið hjá Írisi, sem ítrekað sagði að hann hefði verið óviðeigandi við dóttur sína. Hún hefði því farið á heimili mannsins til að segja honum að láta af hegðun sinni. 

Hún gekkst við því að hafa misst blómavasa viljandi fyrir utan heimili mannsins sem hann átti að hafa gefið Írisi og dóttur hennar. Íris sagðist hafa snöggreiðst og farið á heimili hans til að skila vasanum. 

„Af því að hann hafði verið að áreita dóttur mína sem var tólf ára og gefa henni óviðeigandi gjafir. Mér fannst það ekki passa. Hann var búinn að vera að koma heim til mín óboðinn, heim til mömmu að leita að okkur. Hann var að leita að okkur, áreita okkur.“

Íris játaði því einnig að hafa farið að heimili mannsins, snöggreiðst og sparkað í bílinn hans. Það hafi einnig verið þar sem hann hafi haft afskipti af dóttur hennar. 

Ljót skilaboð

Þá var Íris Helga einnig spurð út í fjölda aðganga á samfélagsmiðlum og skilaboð sem henni er gefið að sök að hafa sent á manninn, sambýliskonuna og fjölskyldumeðlimi þeirra. 

Hún neitaði því alfarið að hafa sent skilaboð á brotaþola málsins en henni er gefið að sök að hafa kallað manninn nauðgara og sambýliskonu hans „piggy“ eða „fat piggy“. Þá ítrekaði Íris Helga að það væri langur tími liðinn frá því að atburðirnir ættu að hafa átt sér stað.

„Ég get ekki útskýrt þetta,“ sagði hún ítrekað.

Saksóknari taldi upp fjölda aðganga sem hafa hin ýmsu nöfn sem tengjast brotaþolum, meðal annars í þeirra nafni.

Íris Helga tók fram að hún hefði sjálf ítrekað fengið skilaboð frá sömu reikningum og henni er gefið að sök að hafa búið til. 

„Ég var líka að fá fullt af skilaboðum, ég er búin að segja það margoft. Þetta voru mjög ljót skilaboð.“

Spurningar sækjanda voru margar og endurteknar vegna fjölda ákæruliða sem er um margt sambærilegir. Svör Írisar voru oft á svipaðan veg.

„Ég er búin að vera með bullandi áfallastreituröskun í fimm ár. Ég bara man það ekki. Manst þú hvað þú keyptir í búðinni í gær, nákvæmlega?“ spurði hún saksóknara en dómari bað hana um að svara einungis spurningunum.

Þegar Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar spurði hana hvaða samfélagsmiðlareikninga hún notaði sagðist hún nota Facebook afar lítið og ekki kunna á TikTok. Þá noti hún Snapchat og Whatsapp af og til.

Íris neitaði einnig að hafa stofnað aðgang í nafni mannsins á stefnumótaforritinu Tinder, sett mynd af honum og sent staðfestingarkóða á símanúmer hans. Sömuleiðis neitaði hún að hafa stofnað sams konar aðgang fyrir sambýliskonuna.

Grínaðist með stól í andlitið

Í einum ákæruliðnum var Íris Helga sögð hafa rætt við þrjá karlmenn og beðið þá um að fara og beita manninn ofbeldi. Hún gekkst við því að hafa rætt það en öll umræðan hafi verið grín.

„Ég bað aldrei neinn um að fara að berja einhvern,“ sagði hún.

„Ég sagði að fyrri samskipti væru alveg grín og ég sagði örugglega „hann á skilið að fá stól í andlitið“ en það var grín.“

Íris Helga játaði því að hafa verið reið út í manninn en aldrei svo að hún myndi láta ganga í skrokk á honum. Hún þekkti vel til tveggja þeirra en þekkti minna til hins þriðja.

Hefðu allir tekið eftir henni

Íris neitaði einnig að hafa búið til og dreift miðum um Reykjanesbæ þar sem varað var við manni sem væri að áreita ungar konur og væri með mikið af barnaníðsefni. 

„Gott að fá að sjá það tveimur árum seinna,“ sagði Íris þegar henni var sýnd mynd af miðunum.

Hún hafi aldrei séð umræddan miða og sagði að í svo litlu samfélagi líkt og í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ myndu allir taka eftir því ef hún væri að labba með slíka miða í hús. Íris sagðist hafa alist upp í Garði í Suðurnesjabæ og því myndu allir taka eftir henni ef hún hefði gert slíkt.

Íris Helga sagði að maðurinn sjálfur hefði getað dreift miðanum og sakað hana um það. Aðspurð hvort það væri ekki undarleg leið fyrir manninn til að hefna sín á henni með því að saka sjálfan sig um barnaníð tók hún ekki undir það.

„Miðað við allt þetta mál þá nei, hugsa ég ekki.“

Hundapössun meðan kærustunni væri sinnt

Íris neitaði einnig sök um að hafa komið upp miða þar sem maðurinn var sagður auglýsa eftir börnum til að passa hundinn sinn á meðan hann sinnti kærustu sinni. Símanúmer sambýliskonunnar var á miðanum. 

Íris Helga sagðist sjálf ekki hafa séð miðann og að enginn sem hún þekkti hefði heldur séð hann. Þá sást í gögnum sem varpað var upp á skjá í dómsal að maðurinn hafði fengið skilaboð um að miðinn hefði sést í Bónus. Engar upptökur úr Bónus liggja fyrir í málsgögnum.

Að lokum varr spurt út í miða þar sem sambýliskonan var sögð auglýsa ódýrt nudd, konan væri einskis virði og góð í að veita kynferðislegt nudd. Íris Helga sagði þær hafa verið góðar vinkonur og því engin ástæða til að búa til og dreifa slíkum miðum.

„Þetta er bara mynd af miða, hvar er mynd af honum uppi?“ spurði Íris þegar henni var sýnd mynd af miðanum.

Sjálf verið skráð á námskeið

Hún neitaði því einnig að hafa skráð manninn og sambýliskonuna á íslenskunámskeið heldur hafi því verið snúið við.

„Þarna er búið að snúa þessu við þar sem ég var ítrekað skráð á enskunámskeið,“ segir Íris.

Maðurinn var skráður á íslenskunámskeiðið með netfangi sem segir í málsgögnunum að hafi verið búið til í tölvu Írisar. Þegar hún var spurð út í tölvuna ítrekaði hún að margir hefðu aðgang að henni og hún kynni ekki sjálf að búa til nýja aðganga á Gmail. 

Líkt og kom fram stendur skýrslutakan enn yfir og er gert ráð fyrir því að hún taki allan daginn. Alls hafa sex dagar verið teknir frá fyrir aðalmeðferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×