Svona lengi, svona hratt
Íslandsmeistaramótið í götuhlaupum fer fram þriðjudaginn 28. apríl. Vísir mun sýna heimildarþáttaröð fram að keppni. Þættirnir fjalla um íþróttasögu Íslands, hlaupamenninguna, millivegalengdir og allt það tilfinningalega álag sem með sportinu fylgir. Rætt er við gamlar kempur sem og rísandi stjörnur um skuldbindingar, tæknina, sársaukann og lífið í íþróttinni.