Ósammála um að börn eigi að vera í brottfarastöð
Hávær umræða hefur átt sér stað í samfélaginu í tengslum við frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð síðustu daga þó ekki endilega á Alþingi heldur utan þess og einkum og sér í lagi vegna barna á flótta. Ýmis mannréttindasamtök vara stjórnvöld við því að frelsissvipta börn með umræddum hætti. Þingmaður Samfylkingar og framkvæmdastjóri Barnaheilla mættust í setti.