Samfylkingin stærst á þingi
Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á þingi með 26,2 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og bætir við sig 1,8 prósentustigum frá júlí. Fylgi Sjálfstæðisflokksins breytist lítið og er 25,1 prósent en munurinn á flokkunum er innan vikmarka. Miðflokkurinn mælist þriðji með 12,7 prósent og tapar 0,7 stigum. Viðreisn mælist með 11,5 prósent og lækkar um 1,2 stig og Flokkur fólksins tapar einnig 0,7 stigum. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er áfram um 43 prósent en var rúm 50 prósent í alþingiskosningunum 2024.