Óhefðbundið leikrit
Lögfræðingurinn Einar Baldvin Brimar lagði jakkafötin til hliðar og úr varð leikritið Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks, sem frumsýnt er í Háskólabíói í kvöld. Verkið er blanda af Shakespeare, Die Hard og grískum harmleik og segir frá krónprinsi sem þarf að kvænast til að bjarga konungsríkinu en leynileg ást hans flækir málin verulega.