Flugnema dæmdar bætur vegna flugslyss Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag flugkennara og flugskóla til þess að greiða flugnema um 3,8 milljónir króna í skaðabætur vegna flugslyss sem hann lenti í í æfingaflugi árið 2003. Innlent 29. janúar 2007 14:42
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir veskisþjófnað Hæstiréttur staðfesti í dag eins og hálfs árs fangelsisdóm hérðasdóms yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir að hafa stolið veski úr verslun sem hann vann hjá og tekið út tíu þúsund krónur af debetkorti í veskinu. Með þessu rauf hann skilorð dóms þar sem hann hafði hlotið 18 mánaða fangelsi. Innlent 25. janúar 2007 16:35
Sakfelldir fyrir þjófnað á Laugarvatni Tveir 15 og 16 ára unglingar hafa verið sakfelldir fyrir þjófnað í Héraðsdómi Suðurlands en dómurinn hefur ákveðið að fresta ákvörðun refsingar yfir þeim þannig að hún falli niður einu ári frá dómsuppsögu haldi þeir skilorð. Innlent 22. janúar 2007 14:10
Dæmdur fyrir þjófnað í starfi sem öryggisvörður Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið meðal annars peningum, tölvu og flatskjá í húsnæði Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi þegar hann starfaði sem öryggisvörður Securitas. Innlent 22. janúar 2007 13:49
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að grýta mann með hellubroti Karlmaður var í Hæstarétti í gær dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að kasta gangstéttarhellubroti í andlit annars manns með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð við auga auk þess sem sex tennur brotnuðu í munni hans. Innlent 19. janúar 2007 08:07
Ríflega níu milljóna króna bætur vegna líkamsárásar Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann til að greiða öðrum manni ríflega 9,3 milljónir króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í líkamárás sem átti sér stað í september 1998. Innlent 18. janúar 2007 17:24
Skilorðsbundið fangelsi fyrir hnífsstungu við Select Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt nítján ára gamlan pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stungið öryggisvörð við bensínsstöð Shell við Suðurfell í bakið í haust. Innlent 17. janúar 2007 13:40
Hafnar kröfu ríkisins um útburð af lóð á Akureyrarflugvelli Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að maður yrði borinn út af lóð á Akureyrarflugvelli með beinni aðfargerð en á lóðinni stendur flugskýli sem hann á. Þar með staðfesti dómurinn úrskurð Héraðsdóms. Innlent 10. janúar 2007 16:46
Eins árs fangelsi fyrir að kveikja í íbúð og bíl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmanna í eins árs fangelsi fyrir að reyna að kveikja í bæði íbúð og bíl þannig að það hafði í för með sér almannahættu. Innlent 10. janúar 2007 09:30
Dæmdur fyrir árás á fyrrverandi eiginkonu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, og til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni og barnsmóður 400 þúsund krónur í miskabætur vegna stórfelldrar líkamsárásar á hana í maí árið 2005. Innlent 9. janúar 2007 15:15
Sakfelldur fyrir ölvunarakstur á bílaplani Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur til greiðslu 135 þúsund króna í sekt og var sviptur ökuskírteini í eitt ár fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis fyrir utan skemmtistað á Selfossi. Innlent 8. janúar 2007 13:43
Kveikt í flugeldum og tertum inni í bíl Bifreið á Akureyri skemmdist mikið að innan í gær eftir að kveikt hafði verið í flugeldum og tertum inni í henni. Fram kemur í frétt frá lögreglunni á Akureyri að eigandi bílsins hafi skilið bílinn eftir fyrir utan húsnæði Bílaklúbbs Akureyrar við Frostagötu aðfaranótt sunnudags, en í aftursætinu voru nokkrar tertur og flugeldar. Innlent 8. janúar 2007 10:20
Dæmd fyrir fíkniefnasmygl í pósti og vörslu fíkniefna Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins og hálfs árs fangelsi og konu í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla inn bæði amfetamíni og kókaíni til landsins með póstsendingum og ýmis önnur brot. Innlent 5. janúar 2007 15:26
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Litháískur ríkisborgari á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að smygla fíkniefnum til landsins í fyrra. Hann var gripinn við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þann 31. ágúst eftir að tollverðir höfðu fundið nærri tvö og hálft kíló af amfetamíni í BMW-bifreið sem hann var skráður ökumaður fyrir. Innlent 5. janúar 2007 13:23
Dómi vegna verka Kjarvals áfrýjað til Hæstaréttar Ættingjar Jóhannesar S. Kjarvals listmálara hafa ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í dag til Hæstaréttar og dómstóla erlendis ef niðurstaðan þar verður sú sama. Þetta sagði Ingimundur Kjarval, barnabarn listmálarans, í samtali við fréttastofu í dag. Innlent 3. janúar 2007 16:33
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að geyma fíkniefni í fangaklefa Fangi á Litla-Hrauni var í dag í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft hass og tóbaksblandað kannabisefni í klefa sínum. Innlent 3. janúar 2007 13:45
Úrskurður kveðinn upp í Kjarvalsmálinu í dag Héraðsdómur kveður upp úrskurð í dag í Kjarvalsmálinu svokallaða. Afkomendur listmálarans vilja fá úr því skorið hvort fimm þúsund listaverk sem fóru úr vinnustofu listmálarans til borgarinnar hafi verið flutt þaðan með lögmætum hætti. Innlent 3. janúar 2007 12:30
Fær ekki upplýsingar um símanúmer úr sendi í Eyjum Hæstiréttur hefur fellt út gildi úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að símafyrirtækjunum Og fjarskiptum og Símanum verði gert skylt að upplýsa um öll símanúmer sem notuðu ákveðinn GSM-sendi í Vestmannaeyjum á tíu klukkustunda tímabili vegna rannsóknar á bruna í fiskimjölsverksmiðju Ísfélags Vestmannaeyja þann 16. desember síðastliðinn. Innlent 2. janúar 2007 11:43
Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli fyrir hádegi Dómur verður kveðinn upp laust fyrir hádegi í máli á hendur fimm mönnum í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp hér á landi. Um er að ræða fjóra Íslendinga og einn Hollending sem ákærðir voru fyrir smygl á um 15 kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af hassi í BMW-bifreið til landsins. Innlent 21. desember 2006 09:33
16 ára piltur dæmdur fyrir hættulega líkamsárás Sextán ára piltur var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Keflavík í desember í fyrra. Innlent 20. desember 2006 15:59
Sýknaður af ákæru um nauðgun Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í maí síðastliðnum. Fólkið mun hafa hist á skemmtun og farið saman af skemmtuninni og á maðurinn að hafa naugðað stúlkunni á víðavangi skammt þar frá. Innlent 20. desember 2006 14:58
Tveggja mánaða dómur fyrir kannabisrækt Karlmanns á fimmtugsaldri bíður tveggja mánaða fangelsi en hann var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sakfelldur fyrir fíkniefnabrot með því að hafa í vörslu sinni 2,5 grömm af hassi og kannabisræktun. Innlent 20. desember 2006 11:36
Hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Innlent 20. desember 2006 11:16
Ketkrókur dæmdur í hálfs árs fangelsi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir búðarhnupl í sumar og haust. Manninum var gefið að sök að hafa stolið þremur lambalærum í einni verslun, einu læri í annarri verslun og lambakótilettum í þriðju versluninni. Innlent 20. desember 2006 10:58
Dæmdur í annað sinn fyrir nauðgun á rúmu ári Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á heimili sínu í lok maí eða byrjun júní árs 2004. Þá var hann jafnframt dæmdur til að greiða henni eina milljón króna í miskabætur. Þetta er annar dómurinn sem maðurinn hlýtur á rúmu ári fyrir nauðgun en í fyrra var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir naugðun. Innlent 20. desember 2006 10:30
18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára stúlku Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa þröngvað 13 ára stúlku með ofbeldi til annarra kynferðismaka en samræðis og fyrir að gefa henni áfengi þrátt fyrir að vita að hún væri undir lögaldri. Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 900 þúsund krónur í skaðabætur. Innlent 19. desember 2006 17:32
Dómara dæmd laun í samræmi við úrskurð Kjaradóms Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri að greiða Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara rúmar sextíu þúsund krónur vegna þeirrar ákvörðunar alþingis að fella úr gildi ákvörðun Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna frá því seint á síðasta ári. Innlent 19. desember 2006 11:53
Fangi á Litla-Hrauni dæmdur fyrir vörslu fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands dæmdi dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fangelsinu fyrr á árinu. Hass og amfetamín fannst í munnholi og í klefa fangans í júlí í sumar og tæpum tveimur vikum síðar fannst einnig hass og tóbaksblandað kannabisefni við klefaleit. Innlent 19. desember 2006 11:16
Dæmdur fyrir vörslu nærri 260 barnaklámsmynda Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot með með því hafa haft nærri 260 ljósmyndir af barnaklámi í tölvu sinni sem margar hverjar voru mjög grófar. Innlent 19. desember 2006 10:58
Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir tvö fíkniefnabrot fyrr á þessu ári. Í fyrra tilvikinu var hann handtekinn eftir að tvær e-pillur og rúm tvö grömm af hassi fundust á honum en í síðara tilvikinu fundust nærri 15 grömm af amfetamíni og tæp 80 grömm af hassi. Innlent 19. desember 2006 10:49