Léttleikandi þjóðlagapopp Hljómsveitin 1860 náði töluverðum vinsældum í sumar með laginu Snæfellsnes, sem fékk mikla spilun í útvarpi, og það sama virðist ætla að verða uppi á teningnum með nýja lagið, Orðsending að austan. Gagnrýni 22. september 2011 20:00
Gæðagripur Edgar Smári syngur eins og engill á fínni plötu. Ég þekkti ekki mjög mikið til hans áður en ég fékk þessa plötu í hendur og það verður að segjast að hún kom mér verulega á óvart. Gagnrýni 22. september 2011 11:00
Sérviska sérans á Ströndum Skemmtileg og góð heimild um sérstakan mann. Jón er sérvitur og sóðalegur og það eitt og sér gerir heimildarmynd áhugaverða. Ég mæli með þessu. Gagnrýni 20. september 2011 20:00
Hengirúm í jólagjöf Svartur hundur prestsins er beinskeyttur háðleikur þar sem öll element hins sjónræna verka saman. Handbragð leikstjórans er vel sýnilegt. Góð sýning. Gagnrýni 20. september 2011 13:00
!!! Þrátt fyrir að tónlistarlífið á Íslandi sé afar blómlegt gefast fá tækifæri til að heyra erlendar sinfóníuhljómsveitir spila á tónleikum hérlendis. Satt best að segja man ég bara eftir tveimur tilvikum á undanförnum tuttugu eða þrjátíu árum! En með tilkomu Hörpu mun það vonandi oftar gerast. Sinfóníuhljómsveit Íslands er vissulega góð hljómsveit en hún þarfnast samanburðar við það besta sem gerist erlendis. Og við tónleikagestir þurfum líka á samanburðinum að halda. Bara svo að maður átti sig á hvað er raunverulega gott og hvað ekki. Gagnrýni 20. september 2011 10:30
Geggjun og dásamleg meðvirkni Í Þjóðleikhúskjallaranum sýnir fjörugur hópur ungra leikara kolgeggjað uppistand undir yfirskriftinni Uppnám. Þetta er eins og tvískiptur kabarett. Í fyrri hlutanum segja þrír karlmenn frá lífi sínu og karlmennskureynslu en þeir kynntust á námskeiði fyrir atvinnulausa. Í síðari hlutanum flytja Viggó og Víoletta Sjálfshjálparsöngleik. Gagnrýni 16. september 2011 06:00
Pönk gegn Alþingi Virkilega flott mynd um furðulegt mál. Listrænn metnaður bætir fyrir örfáa vankanta í flæðinu. Það var þó dapurlegt að sjá hversu fáir voru á sýningunni. Fyrir utan undirritaðan voru fjórir í salnum. Það var kannski fyrirsjáanlegt, enda þægilegra að gera eitthvað annað. Gagnrýni 15. september 2011 12:00
Minna er meira Frábær fyrsta plata Sóleyjar í fullri lengd. Melódísk og grípandi lög og einfaldar en hugmyndaríkar útsetningar einkenna hana. Gagnrýni 14. september 2011 10:00
Zombíljóðin Ósmekkleg úrvinnsla á vandmeðförnu efni. Allir þeir sem að þessari sýningu komu geta betur, miklu miklu betur. Gagnrýni 13. september 2011 17:00
Oft glæsilegt Þeir eru margir píanókonsertarnir sem gera miklar kröfur til einleikarans. En Everestfjallið í píanóheiminum er líklega þriðji konsertinn eftir Rakmaninoff. Hann er svínslega erfiður. Ofurhraðar, flóknar nótnarunur eru óteljandi; heljarstökkin eftir hljómborðinu eins og áhættuatriði í geimtrylli. Gagnrýni 10. september 2011 11:00
Gítarsnillingur á útopnu Gítarhetjan Björgvin Gíslason lék á als oddi á mjög vel heppnuðum afmælistónleikum í Austurbæ á sunnudagskvöldið. Gagnrýni 7. september 2011 09:00
Maður er manns gaman Hilmar Guðjónsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson fara með aðalhlutverkin í Á annan veg og samleikur þeirra er óaðfinnanlegur. Þorsteini Bachmann bregður fyrir annað slagið og bannsettur senuþjófurinn sem hann er fær mann til að vilja sjá miklu meira af honum. Hafsteinn leikstjóri heldur vel utan um söguna og leyfir senunum að dragast vel á langinn, og hentar það myndinni fullkomlega. Þetta er óvenju þroskuð kvikmynd frá nýliðanum Hafsteini, krydduð hæfilegum skammti af húmor og depurð. Gagnrýni 3. september 2011 11:00
Mynd sem veitir von Bandarísk bíóhúsakeðja hengdi nýlega upp aðvörunarskilti í kvikmyndahúsum sínum vegna myndarinnar The Tree of Life. Á skiltinu eru bíógestir upplýstir um það að myndin sé óhefðbundin að uppbyggingu, og fólk er hvatt til þess að sjá myndina með opnum hug. Gagnrýni 2. september 2011 06:00
Hamfarasálmar Svik, harmur og dauði er stórkostleg plata á svo margan hátt að það er erfitt að útskýra það. Ég ætla samt að reyna. Fyrir utan að vera stórskemmtileg í þungarokklegu tilliti er svo margt við plötuna sem kemur spánskt fyrir sjónir að ég get eiginlega ekki beðið eftir að koma því í orð. Gagnrýni 1. september 2011 15:30
Manchester og Hafnarfjörður Skemmtileg plata undir sterkum New Order-áhrifum. Ruddinn hefur greinilega legið yfir smáatriðum í útsetningunum. Sum þessara laga eru stórfín, önnur síðri. Söngur Heiðu gerir mikið fyrir útkomuna og Ruddinn, sem syngur í sjö laganna, skilar sínu vel líka. Gagnrýni 27. ágúst 2011 11:00
Prumpandi einhyrningar eru töff Red Faction: Armageddon er nýjasta útspilið í hinni áratuga gömlu Red Faction-seríu. Sögusviðið er plánetan Mars árið 2170 þar sem mannkynið býr í iðrum plánetunnar vegna mengaðs andrúmslofts. Til þess að skemma sem minnst söguþráð leiksins, sem er alveg sæmilegur, skal bara látið nægja að segja að aðalhetjan er göbbuð til að sleppa lausri plágu sem hefur legið í dvala og þá fer bókstaflega allt til fjandans. Það er svo í verkahring hetjunnar að redda málunum. Gagnrýni 25. ágúst 2011 11:00
Trítilóð Lísa Söguna um Lísu í Undralandi ættu flestir að þekkja en sagan sem sögð er í Alice: Madness Returns er útgáfa af þessari vinsælu sögu sem vekur nánast ónot hjá manni. Gagnrýni 25. ágúst 2011 11:00
Grípandi popplög með alþjóðlegum blæ Samstarf tveggja af fremstu poppurum landsins veldur ekki vonbrigðum Gagnrýni 25. ágúst 2011 06:00
Brjóst, blóð og barbarismi Conan er fyndin mynd og fjörug, ef maður fer heim í hléi. Lokauppgjörið er óspennandi langavitleysa og afhjúpar handritið endanlega sem þá hrákasmíð sem það er. Gagnrýni 24. ágúst 2011 10:00
Frábær lagasmiður sem á nóg inni Á heildina litið er Winter Sun frábær plata. Snorri er ennþá að vaxa sem lagasmiður og útsetningar, söngur og annar flutningur styrkja lögin á plötunni enn frekar. Ein af bestu plötum ársins til þessa. Gagnrýni 17. ágúst 2011 10:00
Prýðileg með poppinu Vestrinn Cowboys and Aliens gjörsigrar vísindaskáldsöguna Cowboys and Aliens. Hræran fer þó ágætlega niður með poppinu. Gagnrýni 16. ágúst 2011 20:00
Skemmtilegur textahöfundur Á heildina litið er þetta skemmtileg plata sem sérstaklega er hægt að mæla með fyrir þá sem hafa gaman af góðum íslenskum textum. Gagnrýni 15. ágúst 2011 11:00
Þægileg og grípandi lög Wait for Fate er fyrsta plata Hafnfirðingsins Jóns Jónssonar, en hann er eldri bróðir Friðriks Dórs sem vakti mikla athygli fyrir sína frumsmíð á síðasta ári. Jón semur sjálfur flest lög og texta á plötunni og syngur og spilar á kassagítar. Hægri hönd hans er upptökustjórinn og hljómborðsleikarinn Kristján Sturla Bjarnason. Auk þeirra spila nokkrir aðrir hljóðfæraleikarar á Wait for Fate og Anna María Björnsdóttir syngur bakraddir. Gagnrýni 10. ágúst 2011 13:00
Neglir tíðarandann Steindi margfaldar allt með þremur og fer hressilega yfir öll velsæmismörk. Hann drepur nafngreinda einstaklinga án þess að blikna, kallar allar konur hórur og leggur á ráðin um að setja rohypnol í drykkinn þeirra. Samt er Steindi drepfyndinn og líka svo vinaleg og andhetjuleg týpa að hann kemst upp með allt. Gagnrýni 3. ágúst 2011 09:52
Efnilegir síðrokkarar Lockerbie er fjögurra manna sveit úr Reykjavík og Hafnarfirði sem var stofnuð árið 2008 og vakti strax þá nokkra athygli fyrir frammstöðu sína á tónleikum með hljómsveitunum For a Minor Reflection og Soundspell. Í fyrrasumar sigraði Lockerbie í sumarlagakeppni Rásar 2 og Sýrlands með laginu Snjóljón og síðan hefur sveitin verið dugleg að koma sér á framfæri úti í hinum stóra heimi, gaf meðal annars út smáskífu hjá Bad Panda Records í upphafi ársins 2011. Og nú er fyrsta stóra platan, Ólgusjór, komin út á vegum Record Records. Gagnrýni 9. júlí 2011 18:00
Fersk innkoma hjá Gauta Íslenskt rapp er á uppleið, að minnsta kosti ef við dæmum út frá útgefnum plötum, spilun og sölu. Bara ég er fersk og fagmannlega unnin plata. Góð blanda af poppi og rappi. Gagnrýni 8. júlí 2011 10:00
Plata sem byggir brú Lögreglukórinn og góðir gestir úr röðum poppara syngja lög eftir Hörð Torfa, KK, Bergþóru Árna, Bubba og Megas. Gagnrýni 7. júlí 2011 11:00
Notalega hrjúfur Áður en Heimir Már Pétursson gerðist fréttamaður var hann söngvari í hljómsveitinni Reflex sem margir muna vel eftir frá tónlistarhátíðinni Melarokki sumarið 1982. Heimir hefur undanfarin ár lítið komið nálægt tónlist að því undanskildu að hann hefur samið texta fyrir bróður sinn Rúnar Þór. Leiðin til Kópaskers markar því endurkomu hans í tónlistina. Gagnrýni 6. júlí 2011 15:00
Öskrað í eyru áhorfandans Transformers: Dark of the Moon er þreytandi. Mér leið hálfpartinn eins og Michael Bay sjálfur sæti við hliðina á mér í kvikmyndahúsinu og öskraði í eyrun á mér. Hljóðstyrkurinn var að vísu ekki vandamálið, heldur sá sjónræni hávaði sem virtist engan endi ætla að taka. Ég ímynda mér að handritið allt sé skrifað í caps lock og að allar setningar endi á þremur upphrópunarmerkjum. Gagnrýni 1. júlí 2011 13:30