Golf

Golf

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Fréttamynd

Donadoni réð sér ekki af kæti

Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítalíu, segir að hann hafi ekki getað haldið aftur af tilfinningum sínum eftir sigur sinna manna í Skotlandi í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari í dag

Birgir Leifur Hafþórsson gaf aðeins eftir í baráttunni á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi en stendur engu að síður vel að vígi eftir þrjá keppnisdaga.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur á tveimur undir í dag

Birgir Leifur Hafþórsson er meðal efstu manna á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðin á Spáni en hann lék á tveimur höggum undir pari vallarins í dag.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur á einu undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson er í 30.-58. sæti eftir fyrsta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék á einu höggi undir pari vallarins í dag.

Golf
Fréttamynd

Mickelson sigraði í Kína

Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson tryggði sér í nótt sigur á Shanghai mótinu í golfi. Þríri menn voru efstir og jafnir eftir á 10 undir pari eftir 72 holur en Mickelson hafði betur eftir bráðabana við þá Ross Fisher og Lee Westwood.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur sigraði á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson kórónaði frábæran leik sinn á úrtökumótinu á Acos Gardens með því að leika lokahringinn á þremur höggum undir pari og tryggja sér sigur á mótinu.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur í fyrsta sæti

Birgir Leifur Hafþórsson er í fyrsta sæti á annars stigs úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á næsta ári fyrir lokahringinn sem fer fram á morgun.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur á meðal efstu manna

Birgir Leifur Hafþórsson lék annan hringinn á úrtökumótinu á Spáni á 68 höggum í dag, fjórum undir pari. Birgir lék á pari í gær og er á meðal allra efstu manna á mótinu. Nítján efstu kylfingarnir á mótinu komast á lokaúrtökumótið fyrir Evróputúrinn í næstu viku.

Golf
Fréttamynd

Birgir á pari í rokinu

Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Arcos Garden vellinum á Spáni 72 höggum í dag og var því á pari. Mótið er 2. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. 19 efstu kylfingarnir á mótinu tryggja sér rétt til að spila á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina þann 15. nóvember og er Birgir í ágætri stöðu eftir fyrsta hring.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur úr leik á Mallorca

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG komst ekki í gegn um niðurskurðinn á Mallorca Classic mótinu í golfi. Birgir hóf leik á 11. braut í morgun eftir að leik var frestað vegna þrumuveðurs í gær.

Golf
Fréttamynd

Erfitt hjá Birgi á Mallorca

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum sínum á Mallorca mótinu í golfi og lauk keppni í dag á 76 höggum - 6 yfir pari.

Golf
Fréttamynd

Birgir verður með á Mallorca mótinu

Birgir Leifur Hafþórsson verður á meðal keppenda á opna Mallorca mótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn, en það er liður í Evrópumótaröðinni.

Golf
Fréttamynd

Frábær hringur hjá Birgi Leifi

Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel á þriðja hringnum á opna Madrídarmótinu í golfi og lauk keppni á fjórum höggum undir pari. Birgir komst naumlega í gegn um niðurskurðinn á mótinu í gær eftir erfiða byrjun, en hefur heldur betru tekið sig á og er í kring um 40. sæti á mótinu sem stendur.

Golf
Fréttamynd

Birgir lék vel í dag

Birgir Leifur Hafþórsson á ágæta möguleika á að komast í gegn um niðurskurðinn á opna Madrídarmótinu í golfi eftir að hann lék annan hringinn á pari í dag. Leifur er því samtals á þremur höggum yfir pari eftir erfiða byrjun í gær. Það kemur í ljós síðar í dag hvort hann nær í gegn um niðurskurðinn.

Golf
Fréttamynd

Svíarnir í sérflokki í Texas

Sænski kylfingurinn Jesper Parnevik hefur örugga forystu þegar keppni á opna Texasmótinu í golfi er hálfnuð. Parnevik lék á 9 höggum undir pari í gær og á 5 undir í dag og er því samtals á 14 höggum undir pari.

Golf
Fréttamynd

Tiger Woods kylfingur ársins

Tiger Woods hefur verið útnefndur kylfingur ársins á PGA mótaröðinni í golfi í níunda skipti á síðustu ellefu árum. Woods vann sjö titla á tímabilinu, þar af þrettánda stórmótið sitt. Hann er nú að undirbúa sig fyrir Forsetabikarinn sem hefst á fimmtudaginn.

Golf
Fréttamynd

Tiger vill harðar refsingar

Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er ákafur talsmaður harðra refsinga fyrir kylfinga sem gerast sekir um ólöglega lyfjaneyslu. Alþjóða golfsambandið hefur ákveðið að leggja aukna áherslu á lyfjamál í golfinu í framtíðinni.

Golf
Fréttamynd

Woods heldur sínu striki

Tiger Woods er enn í forystu fyrir lokahringinn á Tour meistaramótinu í golfi sem fram fer á East Lake í Atlanta. Woods lék á sex höggum undir pari í dag, 64 höggum, og er því samtals á 19 höggum undir pari. Landi hans Mike Calcavecchia kemur næstur á 16 höggum undir pari.

Golf
Fréttamynd

Tilrþif Tiger Woods skiluðu honum á toppinn

Tiger Woods átti tvö sérstaklega minnisstæð tilþrif í dag þegar hann sveif á topp listans á Tour Championship-mótinu í Atlanta. Eftir að hafa byrjað annan hring rólega, með þremur pörum , náði hann fugli á þeirri fjórðu, en þá fór vélin í gang.

Golf
Fréttamynd

Tiger vann í Illinois

Hinn eini sanni Tiger Woods sigraði á PGA-stórmótinu í golfi sem lauk á Lemmont í Illinois í kvöld. Woods vann með tveggja högga mun en hann lék lokahringinn á 63 höggum eða átta undir pari og lauk keppni á 22 höggum undir pari.

Golf
Fréttamynd

Nína og Haraldur stigameistarar

Sjötta og síðasta stigamótið í Kaupþingsmótaröðinni í golfi fór fram í dag. Nína Björk Geirsdóttir úr GKj og Haraldur Hilmar Heimisson úr GR eru stigameistarar 2007. Fyrir mótið var Nína orðin stigameistari en Örn Ævar Hjartarson var efstur í karlaflokki.

Golf
Fréttamynd

Tiger fær 6,5 milljarða frá Gatorade

Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er jafnan einn tekjuhæsti íþróttamaður heims og í dag var greint frá því að hann hefði undirritað auglýsingasamning við drykkjarvörufraleiðandann Gatorade fyrir litlar 100 milljónir dollara. Samningurinn er sagður til fimm ára og felur meðal annars í sér að framleiddur verður sérstakur drykkur í nafni kylfingsins.

Golf
Fréttamynd

Byrd í forystu á BMW mótinu

Jonathan Byrd hefur forystu eftir fyrsta hringinn á BMW meistaramótinu á PGA mótaröðinni eftir frábæran fyrsta hring þar sem hann lék á 64 höggum - 7 höggum undir pari. Englendingurinn Justin Rose og Kólumbíumaðurinn Camilo Villegas eru höggi á eftir honum og þar á eftir kemur Tiger Woods sem spilaði á 67 höggum.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur á fjórum yfir pari í dag

Birgir Leifur Hafþórsson náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum á Omega Masters mótinu sem fram fer í Sviss. Birgir var á einu höggi yfir pari eftir fyrstu níu holurnar, en lauk keppni á 75 höggum eða fjórum yfir nú eftir hádegið. Hann fékk þrjá fugla, fimm skolla og einn skramba á hringnum í dag og er í kring um 78. sætið.

Golf
Fréttamynd

Mickelson sigraði á Deutsche Bank mótinu

Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson landaði í gærkvöld sigri á Deutsche Bank mótinu á PGA mótaröðinni þegar hann lauk keppni á 16 höggum undir pari, tveimur höggum betur en Tiger Woods, Brett Wetterich og Arron Oberholser. Mickelson vann þarna sinn 32 sigur á PGA mótaröðinni og tryggði sigurinn með því að leika lokahringinn á 66 höggum.

Golf
Fréttamynd

Birgir úti í kuldanum eins og er

Birgir Leifur Hafþórsson mátti sætta sig við að fá skolla á síðustu holunni sinni í dag og því bendir allt til þess að hann muni ekki komast í gegnum niðurskurðinn en fleiri kylfingar eiga enn eftir að ljúka leik. Birgir kom í hús í dag á einu höggi yfir pari eða samtals á 74 höggum en hann lék á parinu í gær eða á 73 höggum.

Golf
Fréttamynd

Birgir: Ætla mér að vera undir parinu

Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á parinu í dag á Johnny Walker mótinu í Skotlandi. Hann hefur einu sinni áður leikið Gleneagles völlinn sem hannaður var af Jack Nicklaus en það var fyrir sex árum sem Birgir lék völlinn síðast. Birgir sagði í samtali við Kylfing.is að aðstæður hefðu verið fínar í morgun, nánast enginn vindur og þægilegar vallaraðstæður.

Golf
Fréttamynd

Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina

Nokkrir af okkar bestu kylfingum hafa verið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku og margir hafa reynt að komast inn á evrópsku mótaröðina og hafa einungis tveir einstaklingar komist þar inn með fullan þátttökurétt en það var Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir. Hvað þarf til að taka þátt í þessum mótum og hvernig er hægt að komast inn á evrópsku mótaröðina.

Golf