Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Aukið samstarf Rússlands, Kína, Íran og Norður-Kóreu hefur reynst ríkjunum vel en kannski sérstaklega Norður-Kóreu. Her ríkisins hefur fengið fjölda nýrra vopna á undanförnum árum og hafa forsvarsmenn hans lært af reynslu Rússa í Úkraínu. Ákveðið vopnakapphlaup á sér nú stað á Kóreuskaga þar sem spennan þykir mjög mikil þessa dagana. Erlent 23.10.2026 23:28
Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, er sögð hafa tryggt staðbundið mannúðarvopnahlé í Úkraínu. Vopnahlé þetta er bundið við bæinn Oleshky í Kherson-héraði, suður af Dnípróá. Þaðan hafa um nokkuð skeið borist fregnir af hræðilegum aðbúnaði íbúa og harðræði sem þeir eru beittir af Rússum. Erlent 23.10.2026 14:16
Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Björgunaraðgerð stendur nú yfir undan ströndum Rúmeníu þar sem flutningaskip er á hvolfi og marar í hálfu kafi eftir að eldur kviknaði þar um borð. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað eftir að skipinu hvolfdi en yfirvöld í Rúmeníu segja skipinu hafa verið sökkt með rússneskum dróna. Erlent 23.10.2026 10:58
Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. Innlent 20. október 2026 21:12
Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Tveir ungir menn í Álaborg í Danmörku hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að njósna um danskt varnarmálafyrirtæki í þágu rússneskra stjórnvalda. Lögregla leitar enn að þriðja manninum. Erlent 20. október 2026 20:15
Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Vladimír Pútín hefur lagt til við Donald Trump að þeir og Xi Jinping komi saman í næsta mánuði og ræði hvernig binda eigi enda á stríðið í Úkraínu. Pútín er sagður vilja nýta bætt samband sitt og Trumps og versnandi samband Trumps og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Þessar vendingar hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu og í Úkraínu, sem munu ekki eiga fulltrúa á fundinum, verði af honum. Erlent 19. október 2026 08:17
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu. Erlent 18. október 2026 21:47
Loddararnir slást um sæti við borð Trumps þar sem lygarnar ráða ríkjum Við megum ekki sætta okkur við að lygar og yfirgangur Bandaríkjaforseta verði álitin eðlilegur hluti stjórnmálanna – Úkraínumenn hafa þegar fengið að kenna á afleiðingunum. Umræðan 18. október 2026 13:31
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir áríðandi að fólk missi ekki móðinn í mannréttindabaráttu. Hann segir nauðsynlegt að ná böndum á þau 60 átök sem geisa víða um heim. Einræðisherrar heimsins vilji láta fólki líða eins og það sé hjálparvana og valdalaust en það sé ekki þannig. Hann segir að bregðast verði við bakslagi í mannréttindum og óttast verulega þróun gervigreindar. Innlent 17. október 2026 20:01
Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar. Erlent 17. október 2026 08:17
Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni. Erlent 16. október 2026 22:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf. Erlent 16. október 2026 08:02
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Skipun um að að hægja á gervihnattakerfinu Starshield í Úkraínu kom innan úr Hvíta húsinu. Þetta kemur fram í frétt Reuters sem vísar í heimildir frá bandarískum og vestrænum embættismönnum sem fengu upplýsingar um málið. Erlent 16. október 2026 07:14
Trump og Pútín gegn Úkraínu Nú hefur Trump, forseti Bandaríkjanna sýnt sitt rétta andlit. Skoðun 15. október 2026 13:32
Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. Erlent 15. október 2026 10:33
„Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Vólódimír Selenskí, forseti Úkraínu, telur að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi svikið sig persónulega eftir að takmarkanir voru gerðar á notkun úkraínska hersins á Starlink-tækninni. Erlent 14. október 2026 23:41
Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld. Erlent 14. október 2026 20:01
Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa. Erlent 14. október 2026 10:12
Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Rússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“. Erlent 14. október 2026 07:45
„Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Donald Trump staðhæfði í gær að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí hefðu samþykkt orkuinnviðavopnahlé, af því að hann hefði sagt að þeir ættu að samþykkja það. Þá hélt forsetinn því fram að það væri Selenskí en ekki Pútín sem stæði í vegi friðar, eins og hann hefur ítrekað gert áður. Erlent 13. október 2026 12:06
Skilaboð Trumps til Úkraínu eru nú skýrari en nokkru sinni fyrr Aðgerðir Bandaríkjaforseta síðustu þrjá sólarhringa virðast miða að því að þvinga stjórnvöld í Kænugarði til uppgjafar. Umræðan 13. október 2026 11:30
Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Drónaárásir voru gerðar á tvö skip á Svartahafinu við strendur Búlgaríu í gærkvöldi. Frá þessu greinir forsætisráðherra Búlgaríu á samfélagsmiðlum en ekki er vitað hver er á bak við árásirnar. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir óásættanlegt að Svartahafið sé orðið að enn einum vígvellinum í stríðinu. Erlent 13. október 2026 08:12
Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa gert árásir á sex orkumannvirki í landinu örfáum klukkustundum eftir að Donald Trump tilkynnti um orkuvopnahlé ríkjanna á milli. Erlent 13. október 2026 06:26
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að meina ríkjum Evrópu að kaupa vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínu. Það verði gert ef Úkraínumenn hætti ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Erlent 12. október 2026 06:57