Er krónan Ponzi-svikamylla? Íslenska krónan hefur um árabil verið skaðvaldur fyrir heimili, atvinnulíf og opinbera aðila vegna mikils vaxtakostnaðar, gengissveiflna og áhættu, sem að stórum hluta má rekja til smæðar krónunnar. Hún er eins og trilla á úthafi, sem hoppar og skoppar við hverja öldu á meðan evran er eins og stórt farþegaskip sem hreyfist ekki þrátt fyrir óveður. Skoðun 30. ágúst 2024 14:31
Er kannski komið að því að skoða eitthvað annað en genin? Ég er í Færeyjum þessa dagana. Ég er alltaf dálítið skotin í Færeyjum. Hér er einstaklega fallegt og það er sjarmerandi að sjá öll torfþökin hér í miðbæ Þórshafnar. Færeyska tungumálið heillar og það gerir fólkið líka. Það er einhvern veginn bara létt yfir - þrátt fyrir rigninguna. Skoðun 27. ágúst 2024 10:33
Óréttlæti mamons Háir stýrivextir eru aðför gegn almenningi en gjöf til þeirra sem græða á þeim. Stýrivextir – þetta orð, ómæ, ómæ! Þeir reka fólk í röðum ofaní ginið á bönkum landsins, stýra því snyrtilega hverjir græða. Herra minn drottinn, ekki guð á himnum, en jú, peningaguðinn er eins og fimmfaldur Búdda, kjagandi um með uppglennt augu af græðgi. Hann fær aldrei nóg. Skoðun 23. ágúst 2024 08:00
Ruglað um verðbólgu og ríkisfjármál Þegar viðtekinni visku er ögrað má vænta kröftugra viðbragða. Það virðist hafa gerst annars vegar í grein hér á Vísi og hins vegar á síðum Viðskiptablaðsins í kjölfar greinar minnar um ríkisfjármál og verðbólgu. Skoðun 23. ágúst 2024 07:02
Hefði ekki í „blautustu, villtustu draumum“ órað fyrir óbreyttum stýrivöxtum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að sig hefði ekki órað fyrir því, í sínum villtustu draumum, þegar hann undirritaði kjarasamninga í vor að enn yrðu stýrivextir í 9,25 prósentum í dag. Hann segir tíma til kominn að rótargreina hvers vegna vaxtastig sé svona hátt í landinu. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 10:27
Óbreyttir stýrivextir í enn eitt skiptið Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir í að minnsta kosti sex vikur til viðbótar. Þeir hafa nú verið óbreyttir í 9,25 prósentum í meira en ár. Bankinn varar við því að það gæti tekið tíma að ná niður verðbólgu. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 08:31
Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Kortavelta Íslendinga jókst um 3,1 prósent milli ára að raunvirði. Innanlands jókst hún um 1,2 prósent en erlendis um 9,8 prósent. Kortaveltan hefur aukist í hverjum einasta mánuði þetta árið. Neytendur 19. ágúst 2024 10:48
Dvínandi áhugi erlendra sjóða á íslenskum ríkisbréfum þrátt fyrir háa vexti Þrátt fyrir tiltölulega háan vaxtamun við útlönd hefur fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra fjárfesta á ríkisskuldabréfum stöðvast á undanförnum mánuðum eftir að hafa numið tugum milljarða króna á liðnum vetri. Gengi krónunnar hefur að sama skapi farið nokkuð lækkandi og ekki verið lægri gagnvart evrunni frá því undir árslok 2023. Innherji 11. ágúst 2024 22:04
Hættustig Fyrir um tíu árum voru aðildarviðræður Íslands við ESB stöðvaðar. Fyrir meginþorra Íslendinga var þetta vond ákvörðun að mínu mati því hún hafði það í för með sér að við urðum að búa við íslensku krónuna og vextina á henni. Í dag borga skuldarar innlendra lána jafnvel tugþúsundir mánaðarlega aukreitis miðað við að við hefðum evru sem gjaldmiðil. Þetta kom hins vegar stórútgerðinni vel, sem gerir upp í evrum en greiðir laun í krónum. Bændur eru að vakna upp við vondan draum, en þetta tekur tíma og kannski nokkur gjaldþrot að síast inn. Skoðun 25. júlí 2024 08:35
Verðbólga eykst milli mánaða Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2024, er 633,2 stig og hækkar um 0,46 prósent frá fyrri mánuði. Ársverðbólga er nú 6,3 prósent og eykst um 0,5 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 24. júlí 2024 09:45
Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Greining Íslandsbanka hefur lækkað hagvaxtarspá sína í ljósi fækkunar ferðamanna í júní og telur þróunina geta dregið úr spennu á vinnu- og íbúðamarkaði fyrr en áður var talið. Viðskipti innlent 22. júlí 2024 13:42
Erlendir fjárfestar minnka við sig í ríkisbréfum annan mánuðinn í röð Eftir stöðugt innflæði fjármagns um nokkurt skeið vegna kaupa erlendra sjóða á íslenskum ríkisskuldabréfum hefur sú þróun snúist við að undanförnu og hafa þeir núna verið nettó seljendur síðastliðna tvo mánuði. Dvínandi áhugi erlendra fjárfesta kemur á sama tíma og ríkissjóður áformar umtalsvert meiri útgáfu ríkisbréfa á seinni helmingi ársins en áður var áætlað. Innherji 10. júlí 2024 16:58
Spá aukinni verðbólgu Hægfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga muni verða 5,9 prósent í júlí. Viðskipti innlent 10. júlí 2024 14:54
Hvað kostar krónan heimilin? Í umræðum um gjaldmiðlamál og stöðu efnahagsmála á Íslandi er það oftast rök þeirra sem vilja halda í krónuna að fullyrða að hún bjargi okkur úr efnahagslægðum og áföllum. Þessi rök eru notuð til að blekkja almenning, en það er mikilvægt að skoða hvaða raunverulegan kostnað krónan leggur á heimilin og hvort hún raunverulega bætir líf okkar. Skoðun 9. júlí 2024 13:31
Fjárfestar stækka framvirka stöðu með krónunni um tugi milljarða Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í ferðaþjónustunni þá hefur það ekki haft neikvæð áhrif á væntingar fjárfesta um gengisþróun krónunnar en þeir hafa aukið stöðutöku sína um tugi milljarða á síðustu mánuðum. Eftir að hafa haldist óvenju stöðugt um langt skeið gagnvart evrunni hefur gengið styrkst lítillega á síðustu vikum. Innherji 1. júlí 2024 18:25
Vilhjálmur kallar eftir tafarlausri vaxtalækkun Formaður Starfsgreinasambandsins segir efnahagslífið á leið í miklar ógöngur verði vextir ekki lækkaðir mjög hratt. Í miklum húsnæðisskorti væru nýbyggingar hægt og bítandi að stöðvast vegna þess hvað vextir væru háir miðað við verðbólgu. Viðskiptabankarnir gætu gengið á undan með góðu fordæmi og lækkað sína vexti strax. Innlent 27. júní 2024 11:43
Verðbólga nú 5,8 prósent Verðbólga mælist nú 5,8 prósent miðað við vísitölu neysluverðs síðustu tólf mánuði. Hún var 6,2 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga var mest í febrúar 2023 þegar hún var 10,3 prósent. Frá þessu er greint í nýrri tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 27. júní 2024 09:23
Minni hömlur á afleiður og aukin markaðssetning myndi auka áhuga erlendis Verði dregið úr takmörkunum á afleiðuviðskiptum með krónu, samhliða markvissri markaðssetningu og aukinni upplýsingagjöf til fjárfesta, má ætla að áhugi erlendra fjárfesta á innlendum skuldabréfamarkaði fari vaxandi, segir fjármálaráðuneytið. Innherji 13. júní 2024 14:06
Af hverju er verðlag hér tvöfalt hærra en í Evrópu? Höfundur talar í þessum efnum af nokkurri þekkingu og reynslu. Hann hefur stundað alþjóðlega framleiðslu og viðskipti, bæði í Evrópu og Asíu, í hálfa öld. Nú sem stjórnarformaður ENOX Productions Services GmbH í Hamborg. Skoðun 13. júní 2024 14:01
Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósentustig í maí. Hún stendur nú í 627,3 stigum og hefur hækkað um 6,2 prósent á undanförnum tólf mánuðum. Viðskipti innlent 30. maí 2024 10:09
30% kaupmáttaraukning með evru Kaupmáttur ráðstöfunartekna mælir breytingu á ráðstöfunartekjum að teknu tilliti til verðbólgu. Ef ráðstöfunartekjur aukast vegna launahækkana en verðlag hækkar minna eykst kaupmáttur. Skoðun 16. maí 2024 13:01
Krónan stöðug þrátt fyrir áföll og fátt sem kallar á veikingu á næstunni Krónan hefur sýnt styrk sinn með því að haldast afar stöðug í kringum gildið 150 á móti evrunni samfellt um margra mánaða skeið þrátt fyrir að ýmislegt hafi unnið á móti henni á liðnum vetri, að sögn gjaldeyrismiðlara. Væntingar eru um gengisstyrkingu horft inn í árið, sem endurspeglast að hluta í meiri framvirki gjaldeyrissölu, samhliða meðal annars mögulegu fjármagnsinnflæði við yfirtökuna á Marel en sumir vara við viðkvæmri stöðu eftir miklar launahækkanir sem hefur þrýst raungenginu á nánast sömu slóðir og fyrir heimsfaraldurinn. Innherji 16. maí 2024 10:07
Halda áfram kaupum á íslenskum ríkisbréfum þótt það hægist á vextinum Fjárfesting erlendra sjóða í íslensk ríkisskuldabréf hélt áfram að aukast í liðnum mánuði þótt nokkuð hafi hægt á vextinum og hefur innflæðið ekki verið minna að umfangi í meira en hálft ár. Stöðugt fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra skuldabréfafjárfesta síðustu mánuði hefur átt sinn þátt í því að halda gengi krónunnar stöðugu um nokkurt skeið. Innherji 11. maí 2024 13:57
Dagur til umhugsunar Níundi maí er merkur dagur sem haldinn er hátíðlegur um alla Evrópu. Níundi maí er Evrópudagurinn en þann dag er á ári hverju minnt á gildi evrópskrar samvinnu og þýðingu fyrir framfarir, frið og mannréttindi í álfunni. Skoðun 9. maí 2024 07:31
Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) telur ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera óskiljanlega. Ákvörðunin gangi þvert á fyrri rökstuðning nefndarinnar og það sé mikið áhyggjuefni fyrir hagkerfið að þeir standi óbreyttir. Innlent 8. maí 2024 15:57
„Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir ákvörðun Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum vera vonbrigði en ekki koma á óvart. Hann telur að ef ekkert breytist þurfi fólk að rísa upp eins og var gert í búsáhaldabyltingunni. Innlent 8. maí 2024 11:22
Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabanki Íslands birti í morgun yfirlýsing peningastefnunefndar og Peningamál. Stýrivextir eru óbreyttir samkvæmt ákvörðun nefndarinnar. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25. Tíunda mánuðinn í röð. Viðskipti innlent 8. maí 2024 09:01
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent. Viðskipti innlent 8. maí 2024 08:31
Árangur gegn verðbólgu Ríkisstjórnin hefur einsett sér það markmið að vinna bug á verðbólgunni og skapa skilyrði til lækkunar vaxta. Fréttir morgunsins sýna að við séum á réttri leið: Verðbólga minnkaði úr 6,8% í 6% nú í apríl og hefur ekki verið minni í rúmlega tvö ár. Skoðun 24. apríl 2024 15:01
Spá því að verðbólga hjaðni Ársverðbólga mun hjaðna á ný í apríl og á næstu fjórðungum eftir nokkuð óvænta hækkun síðasta mánaðar, þessu spáir Íslandsbanki í verðbólguspá sinni Viðskipti innlent 12. apríl 2024 11:27