Viðskipti erlent

Starfs­maður OpenAI rekinn fyrir njósnir

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Sam Altman er forstjóri OpenAI sem á og rekur ChatGPT.
Sam Altman er forstjóri OpenAI sem á og rekur ChatGPT. ap

Gervigreindarrisinn OpenAI hefur sagt upp starfsmanni eftir að grunur kom upp um að hann hafi stundað iðnaðarnjósnir innan fyrirtækisins. Háþróaður hlerunarbúnaður fannst á skrifstofu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu á samfélagsmiðlinum X.

„Við uppgötvuðum háþróaðan hlerunarbúnað sem var falinn á einni skrifstofunni okkar. Við notuðum gervigreindarlíkönin okkar til að greina tækið og hvaðan það hafði komið. Við komumst að því að ákveðinn starfsmaður hafði komið búnaðinum fyrir nokkrum dögum áður,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að OpenAI hafi vísað málinu til Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI). Fyrirtækið þakkar fyrir vel unnin störf alríkisþjónustunnar sem handtók starfsmanninn umsvifalaust. Rannsókn standi nú yfir. 

  „Á þessum tímapunkti höfum við engar vísbendingar um hvort að viðkomandi einstaklingur hafi fengið aðgang að eða flutt út líkön, frumkóða eða gögn viðskiptavina. Starfsmanninum var sagt upp.“

Þá ítrekar fyrirtækið að það taki því alvarlega að verja tækni, gögn og fólk. Málið varði þjóðarhagsmuni.

„Öryggisáætlun okkar er hönnuð til að verjast fjölbreyttum ógnaraðilum, allt frá innherjaáhættu til netglæpamanna og þjóðríkja.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×