Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, fagnar því að vera kominn á fullt með liðinu eftir erfið ökklameiðsli. Hann glímir í raun enn við meiðslin en lætur það ekki á sig fá. Hann stefnir á að spila alla leiki sem eftir eru. Íslenski boltinn 23. júlí 2026 11:00
Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Við erum mjög spenntir og vel undirbúnir. Við hlökkum til að takast á við þetta verkefni,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, um leik hans manna við Ilves frá Finnlandi í Sambansdeild Evrópu í kvöld. Íslenski boltinn 23. júlí 2026 10:01
„Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Það er alltaf gaman að spila í Evrópu og fá öðruvísi mótherja. Við erum að mæta góðu liði svo við þurfum að vera á tánum og nýta okkar möguleika hérna heima,“ segir Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, um leik kvöldsins við Zrinjski Mostar í Sambandsdeild Evrópu. Íslenski boltinn 23. júlí 2026 09:02
„Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ „Það er rosalega gott að vera kominn hingað og vel tekið á móti manni,“ segir Ari Leifsson, nýjasti leikmaður Stjörnunnar. Hann verður með liðinu gegn Ilves í forkeppni Sambandsdeildarinnar á morgun. Íslenski boltinn 22. júlí 2026 14:18
Eyjakonur þétta vörnina ÍBV hefur borist liðsstyrkur í formi bandaríska varnarmannsins Jessica Hinton fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna og undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 22. júlí 2026 13:46
Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Ótrúlegar lokatölur blöstu við eftir leik Vals og Breiðabliks í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær. Breiðablik vann leikinn 7-1 en slíkt hefur vart sést milli liða sem hafa barist hatrammlega um Íslandsmeistaratitilinn undanfarin ár. Sérfræðingar Bestu markanna áttu vart orð yfir yfirburðum þeirra grænklæddu. Íslenski boltinn 22. júlí 2026 13:32
Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Arnar Daði Jóhannesson var maður kvöldsins í íslenska fótboltanum eftir hetjulega frammistöðu sína þegar Afturelding tryggði sér sæti í sínum fyrsta bikarúrslitaleik karla í sögunni. Íslenski boltinn 22. júlí 2026 08:17
Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Hvað er hægt að segja? Betra liðið vann, liðið sem vildi vinna leikinn vann leikinn og við vorum langt frá okkar besta í dag. Þegar þú gefur FH einhvern möguleika á að ganga á lagið þá gerast svona hlutir. Það gerðist í dag og margt í okkar leik sem var ekki í lagi í dag,“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir tapið stóra í kvöld. Fótbolti 21. júlí 2026 22:19
„Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, skoraðist ekki undan ábyrgð á 7-1 tapi liðsins gegn Breiðabliki í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Fótbolti 21. júlí 2026 21:47
Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Maður kvartar ekki þegar liðið manns skorar sex til sjö mörk í leik,“ sagði glaður Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir markaleik í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur 7-3 fyri toppliði FH gegn Stjörnunni. Fótbolti 21. júlí 2026 21:45
„Búinn að bíða eftir svona leik“ Ian David Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var að vonum ánægður með sóknarleik síns liðs þegar liðið gjörsigraði Val í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Fótbolti 21. júlí 2026 21:44
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Breiðablik burstaði Val með sjö mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 13. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Agla María Albertsdóttir gerðu Valskonum svo sannarlega lífið leitt í þessari viðureign. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 21:04
Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Afturelding er komin í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta í fyrsta sinn í sögunni eftir 4-3 sigur á Fylki í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum á Tekk vellinum í Árbæ í kvöld. Staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var 1-1. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 18:45
Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu FH sigraði Stjörnuna í kvöld 7-3 í ótrúlegum leik í Kaplakrika. FH enn á toppnum í Bestu deildinni eftir sigurinn og hefur skorað 20 mörk í síðustu þremur leikjum. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 18:30
Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Magnús Már Einarsson býst við að Mosfellingar fjölmenni í Árbæinn er lærisveinar hans í Aftureldingu mæta Fylki í Lengjudeildarslag í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 14:00
Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, er temmilega bjartsýnn fyrir leik liðsins við Hapoel Beer Sheva frá Ísrael í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Víkinni í kvöld. Búast megi við opnum og skemmtilegum leik. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 13:31
Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Það er óhætt að segja að Santa Sanija Vuskane hafi átt sannkallaða draumabyrjun í Bestu deild kvenna í gærkvöldi. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 13:00
„Þetta lítur bara illa út“ Skagamenn eru á slæmum stað í Bestu deild karla í fótbolta, búnir að tapa fimm deildarleikjum í röð og hafa fengið á sig sautján mörk í þessum fimm leikjum. Stúkan ræddi stöðuna á Skagaliðinu sem er á leið í harða fallbaráttu en ekki í toppbaráttuna eins og margir bjuggust við. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 11:30
Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Gyrðir Hrafn Guðbrandsson átti draumabyrjun fyrir Þór á Akureyri er liðið varð það fyrsta í sumar til að vinna Íslandsmeistara Víkings. Hann hafði varla æft með liðinu þegar komið var í leikinn. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 09:31
Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var skiljanlega ósáttur eftir leikinn við FH í Kaplakrikanum í Bestu deild karla í fótbolta í gær og hafði ýmislegt til síns máls þegar hann gagnrýndi dómara leiksins í leikslok. Stúkan ræddi þessi vafaatriði í leik sem þurfti á marki að halda en endaði með markalausu jafntefli. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 09:01
Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Keflvíkingar unnu stóran sigur á Skagamönnum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leiknum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 21. júlí 2026 08:45
Jóhann Kristinn Gunnarsson: ,, Við þurfum að gera eitthvað róttækt í málunum” Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar segir leikinn hafa verið erfiður, ekki mjög fallegur og að Grindavík/Njarðvík hafi ráðið betur við aðstæður heldur enn Þróttur. Fótbolti 20. júlí 2026 23:29
Gylfi Tryggvason : ,,Ótrúlega stoltur af stelpunum” Gylfi Tryggvason var afar ánægður með frammistöðu Grindavík/Njarðvík eftir 4-2 sigur á Þrótti og hrósaði liðinu fyrir karakterinn sem það sýndi með því að snúa leiknum sér í hag þrátt fyrir að hafa lent tvívegis undir. Fótbolti 20. júlí 2026 23:26
„Fengum klárlega færi til þess að ná í sigur“ FH er taplaust í síðustu sex deildarleikjum sínum en liðið gerði markalaust jafntefli við FH í leik liðanna í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Jóhannes Karl segir FH-liðið vera orðið betra í að stýra leikjum og liðið hafi klárlega fengið góð færi til þess að sigla sigri í höfn í þessum leik. Fótbolti 20. júlí 2026 22:52
„Slæmur dagur dómaranna ekki afsökun fyrir okkur“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var óánægður við bæði frammistöðu liðs síns og dómara leiksins þegar Blikar gerðu markalaust jafnteli á móti FH í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 20. júlí 2026 22:45
„Frábært að skora fimm mörk hérna heima” Haraldur Freyr Guðmundsson var afar sáttur eftir sannfærandi 5-2 sigur Keflavíkur á ÍA í Bestu deild karla í kvöld. Hann hrósaði liðsheildinni eftir leik og sagði leikmenn sína hafa verið tilbúna í verkefnið frá fyrstu mínútu. Fótbolti 20. júlí 2026 22:23
„Við erum að skila ágætum frammistöðum en þær gefa okkur ekki neitt“ Lárus Orri Sigurðsson var svekktur eftir 5-2 tap ÍA gegn Keflavík í Bestu deild karla. Hann taldi leikinn hafa verið í ágætu jafnvægi framan af en sagði tvö mörk á tveggja mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks hafa slegið Skagamenn út af laginu. Fótbolti 20. júlí 2026 22:20
Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt FH og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í Bestu deild karla í kvöld en leikurinn var þó ekki laus við vafaatriði. Blikar setja stórt spurningamerki við dómgæslu leiksins. Fótbolti 20. júlí 2026 22:03
Markasúpa í Kórnum HK vann stórsigur á Vestra í Lengjudeild karla í kvöld. Lið Vestra hefur greinilega verið þreytt eftir stórleik gegn Qarabak í undankeppni Evrópudeildarinnar. Fótbolti 20. júlí 2026 21:38
Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik FH og Breiðablik skildu jöfn, 0-0, þegar liðin leiddu saman hesta sína á Kaplakrikavöll í fimmtándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 20. júlí 2026 21:06