Tékki til Njarðvíkur Njarðvík hefur samið við tékkneska bakvörðinn Spencer Svejcar fyrir komandi átök í Bónus deild karla í körfubolta. Körfubolti 22.7.2026 16:27
Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Miami Heat birti hlekk á YouTube-rás sinni á áætlaða beina útsendingu sem bar titilinn „Kynningarblaðamannafundur LeBron James“ ásamt dagsetningunni 27. júlí, en talsmaður liðsins segir það hafa verið mistök. Körfubolti 22.7.2026 12:30
Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Enn bæta Álftnesingar við sig sterkum leikmönnum fyrir komandi átök í Bónus deild karla. Franski Kaninn Jordan Semple bætist nú við hópinn og hefur Álftanes bætt við sig leikmanni frá öllum fjórum liðum undanúrslita síðasta vors. Körfubolti 22.7.2026 11:10
Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Íslenska tuttugu ára landsliðið í körfubolta er komið í átta liða úrslit í B-deild Evrópumóts U20 landsliða og tveir bestu skorararnir í mótinu spila með íslenska liðinu. Mótið fer fram í Bratislava í Slóvakíu. Körfubolti 16. júlí 2026 20:31
Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Karlmaður sem er sagður hafa sent rasísk skilaboð til Chelsea Gray, bakvarðar Las Vegas Aces í WNBA-deildinni í körfubolta, á samfélagsmiðlum hefur verið rekinn af vinnuveitanda sínum. Körfubolti 16. júlí 2026 06:32
Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta tapaði sínum fyrsta leik í B-deild U20 Evrópumótsins í Bratislava í Slóvakíu en tryggði sér engu að síður sæti í átta liða úrslitunum. Körfubolti 15. júlí 2026 20:34
Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Enn er ekki ljóst hvar körfuboltamaðurinn LeBron James spilar á næsta tímabili en stjörnur Philadelphia 76ers reyna nú hvað þær geta til að freista LeBrons til að koma til liðsins. Körfubolti 15. júlí 2026 15:31
Fjölnir þiggur sæti Aþenu Fjölniskonur munu spila í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð eftir að hafa þegið sætið sem að Aþena skildi eftir laust þegar félagið dró sig úr keppni. Körfubolti 15. júlí 2026 13:02
Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Bandaríski körfuboltamaðurinn Jeremy Pargo spilaði ekki síðasta leikinn sinn á ferlinum þegar Grindavík tryggði sér titilinn því kappinn er þessa dagana að spila í BIG3-deildinni. Körfubolti 14. júlí 2026 23:15
Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta vann þriggja stiga sigur á Portúgal, 75-72, í kvöld í æsispennandi toppslag síns riðils í B-deild U20 Evrópumótsins. Körfubolti 14. júlí 2026 18:10
Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ Halldór Garðar Hermannsson segir að það hafi verið áfall að frétta andlát Kinus Rochford, fyrrverandi samherja síns hjá Þór Þorlákshöfn. Hann segir hann einn eftirminnilegasta leikmann sem hann hafi spilað með. Körfubolti 14. júlí 2026 09:00
„Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfuboltafélagið Aþena mun ekki senda lið til keppni í Bónus deild kvenna á næsta tímabili. Stofnandi félagsins og þjálfari liðsins, Brynjar Karl Sigurðsson, segir ábyrgðina liggja hjá Reykjavíkurborg. Alvarlegast af öllu sé þó að sjá framtíð yngri flokka starfsins í uppnámi. Körfubolti 14. júlí 2026 08:31
Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Það gekk mikið á í leik Toronto Tempo og New York Liberty í WNBA-deildinni í körfubolta um helgina en körfuboltakonan Bethinjah Laney-Hamilton var rekin út úr húsi eftir að hafa kastað skó í mótherja. Körfubolti 13. júlí 2026 22:48
Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Sveinn Búi Birgisson hefur gengið frá samningi við lið Hattar í Bónus deild karla í körfubolta en hann kemur til félagsins eftir fjögur ár í bandaríska háskólaboltanum. Körfubolti 13. júlí 2026 09:38
Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Lögregluyfirvöld í New York leita vitna að morði Kinu Rochford, fyrrverandi leikmanns Þórs Þorlákshafnar og Hamars hér á landi. Móðir hans syrgir son sinn og tjáði sig við CBS. Körfubolti 12. júlí 2026 14:20
Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta hafnaði í tólfta sæti í A-deild Evrópumóts U20 í Litáen eftir tap fyrir Lettum í síðasta leik liðsins á mótinu í dag. Körfubolti 12. júlí 2026 13:21
Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og stofnandi körfuboltafélagsins Aþenu, greinir frá því á samfélagsmiðlinum Facebook að meistaraflokkur liðsins hafi verið lagður niður og taki ekki þátt í Bónus deild kvenna í haust. Reykjavíkurborg, valdníðslu hennar og skorti aðgerða nýs meirihluta í borginni sé um að kenna. Körfubolti 12. júlí 2026 12:04
Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri tapaði fyrir Þýskalandi 85-74 á EM U20 í Litáen í dag. Tapið þýðir að Ísland keppir um ellefta sæti mótsins. Körfubolti 11. júlí 2026 16:51
Kinu Rochford sagður myrtur Körfuboltamaðurinn Kinu Rochford, sem lék hér á landi á árunum 2018 til 2020, er látinn 35 ára að aldri. Hann er sagður hafa verið skotinn til bana í Harlem í New York. Körfubolti 11. júlí 2026 13:23
Annar stórsigur strákanna á EM Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára yngri vann öruggan 83-57 sigur á Kýpur í dag á EM U20 í Bratislava. Liðið er með fullt hús stiga eftir tvo leiki á mótinu. Körfubolti 11. júlí 2026 11:05
Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Sænska landsliðskonan Ellen Nyström hefur framlengt samning sinn við Grindavík og verður áfram lykilleikmaður liðsins í Bónusdeild kvenna í körfubolta á komandi tímabili. Körfubolti 10. júlí 2026 18:09
Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Þrátt fyrir lágan meðalaldur miðað við önnur lið þá er Ísland búið að tryggja sér áframhaldandi veru í A-deild á Evrópumóti kvenna, 20 ára og yngri, í körfubolta. Körfubolti 10. júlí 2026 15:03
Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Álftnesingar ætla sér greinilega stóra hluti í Bónus-deild karla. Nýjasti leikmaður liðsins er Frank Aron Booker. Hann mætir út nes með mikla reynslu. Körfubolti 10. júlí 2026 09:21
Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfuboltamaðurinn LeBron James er enn að leita sér að nýju NBA-félagi eftir að hann ákvað að yfirgefa Los Angeles Lakers. Sum félög sem hafa áhuga á að fá hann til liðs við sig hafa fengið tækifæri til að kynna sig fyrir fjórfalda meistaranum með sérstökum hætti. Körfubolti 9. júlí 2026 23:16