Framhlaup hafið í Dyngjujökli Samkvæmt GPS-hraðamælingum Jarðvísindastofnunar Háskólans er framhlaup hafið í Dyngjujökli. Dyngjujökull er þekktur framhlaupsjökull og um 20 til 30 ár líða að jafnaði á milli framhlaupa. Hann hljóp síðast fram á árunum 1998 til 2000. Veðurstofan varar við ferðum á jöklinum. Innlent 19.11.2025 14:17
Leita til UNESCO vegna Vonarskarðs og kæra kynjahalla Nokkur náttúruverndarsamtök hafa lýst yfir þungum áhyggjum og vonbrigðum vegna opnunar Vonarskarðs fyrir bílaumferð. Þau segja stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs ábótavant og ætla að leita til UNESCO vegna málsins. Innlent 30.10.2025 11:47
Heimilar umferð um Vonarskarð Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest breytingartillögu svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að heimila vélknúna umferð og hjólreiðar um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært. Innlent 24.10.2025 11:07
Tjaldsvæði á Norðurlandi óðum að fyllast Tjaldsvæði víða á Norðurlandi, þar sem besta veðrinu er spáð um helgina, eru óðum að fyllast. Tjaldsvæðavörður í Vaglaskógi segir að brjálað hafi verið að gera í bókunum síðustu tvo daga og ljóst sé að margir ætli sé að elta góða veðrið um helgina. Innlent 31. júlí 2025 16:53
Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Meintur veðurbreytir er sagður hafa verið fluttur frá Bretlandi norður í land í tilefni af tónleikum Kaleo í Vaglaskógi um síðustu helgi. Markmiðið hafi verið að komast hjá rigningarveðri. Lífið 31. júlí 2025 15:30
Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Tónleikahátíð Kaleo fór fram með pompi og prakt í Vaglaskógi í gær. Kaleo héldu þar sína fyrstu tónleika á Íslandi síðan 2015, en uppselt varð á tónleikana á örskotstundu. Lífið 27. júlí 2025 14:43
„Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Hreiðar Hreiðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, segir með ólíkindum hvað tónleikahátíð Kaleo í Vaglaskógi í gær gekk vel. Ekkert stórslys hafi orðið og önnur vandamál hafi verið minniháttar. Innlent 27. júlí 2025 11:44
„Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Jakob Frímann Magnússon skipuleggjandi Kaleo-tónleikanna í Vaglaskógi segir að rútuferðir í Vaglaskóg hafi selst upp nærri því jafn snarlega og á tónleikana sjálfa. Hann sagði frá því í kvöldfréttum í gær að ekki hafi selst upp jafn snarlega á neinn viðburð í Íslandssögunni. Lífið 26. júlí 2025 16:11
Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Nú streymir fólk í Vaglaskóg, þar sem stórtónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á morgun. Undirbúningur hefur gengið vel að sögn tónleikahaldara og allt er að verða tilbúið fyrir stóra daginn. Lífið 25. júlí 2025 22:26
Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Jakob Frímann Magnússon, einn aðalskipuleggjenda stórtónleika Kaleo í Vaglaskógi næsta laugardag, segir að allur undirbúningur hátíðarinnar hafi gengið vel. Stærsta áskorunin verði að koma öllum sjö þúsund tónleikagestum á svæðið í tæka tíð. Lífið 22. júlí 2025 13:21
Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Bikblæðinga hefur orðið vart um nánast allt land eftir hlýindin síðustu daga og staðan orðin mjög slæm á Norðurlandi. Innlent 15. júlí 2025 12:06
Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Anna Guðný Baldursdóttir bóndi undirbýr sig núna fyrir þátttöku í lengstu og erfiðustu kappreið heims, Mongol Derby. Keppnin hefst þann 4. ágúst í Ulaanbatar. Anna Guðný segir það langþráðan draum að taka þátt í keppninni. Aðeins einu sinni áður hefur Íslendingur tekið þátt en það var Aníta Aradóttir árið 2014. 46 taka þátt í keppninni í ár. Innlent 11. júlí 2025 07:03
Skjálfti að stærð 3,6 í Bárðarbungu Jarðskjálfti að stærð 3,6 mældist í Bárðarbungu í hádeginu, klukkan 12:42. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að skjálftar af svipaðri stærð séu nokkuð algengir á svæðinu. Innlent 4. júlí 2025 12:59
Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Framkvæmdastjóri Tix segir miða á tónleika Kaleo í mánuðinum vera til endursölu á talsvert upphækkuðu verði og greinilegt að þeir hafi verið keyptir í því skyni. Hún segir það ekki sanngjarnt gagnvart listamönnunum og að fyrirtækið áskili sér rétt á að ógilda miðana. Lífið 2. júlí 2025 20:54
Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Forsala 2.000 miða á KALEO- tónleikana Vor í Vaglaskógi hófst klukkan 12.00 á hádegi í dag og seldust allir miðarnir upp á innan við einni mínútu. Tónlist 1. júlí 2025 14:26
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag og stendur til að halda fjölda viðburða um allan landshlutann. Verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ vill auka sýnileika hinsegin samfélagsins á svæðinu. Innlent 18. júní 2025 14:27
Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Hluta af útsýnispalli við Dettifoss hefur verið lokað vegna aurskriðu sem féll í gær. Innlent 6. júní 2025 19:28
Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Þjóðgarðsverðir í Vatnajökulsþjóðgarði ráða gestum frá því að heimsækja Dettifoss. Stór aurskriða féll úr klettabrúnum Jökulsárgljúfra við útsýnispalla rétt norðvestan við fossinn. Innlent 5. júní 2025 21:15
Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Það er fátt sem minnir á vorið í Vaglaskógi um þessar mundir en töluverð snjóþyngsli eru á svæðinu. Fréttastofa náði af tali af konu sem er í útilegu með eiginmanni sínum. Hún segir bæði gasgrill og -hitara á fullum krafti til að bjarga fortjaldinu undan þungum snjónum. Innlent 3. júní 2025 09:21
GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum GeoSilica mun hefna starfsemi í nýju húsi á fjölnýtingarlóð Landsvirkjunar á Þeistareykjum komandi haust. Viðskipti innlent 30. maí 2025 14:02
Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Félagið Melody Man ehf., sem er í eigu Jökuls Júlíussonar söngvara Kaleo, fær ekki fjárstuðning frá Akureyrarbæ til þess að halda tónlistarviðburð í Vaglaskógi í sumar. Umsókn um 12 milljóna króna styrk frá bænum var hafnað af bæjarráði. Innlent 30. maí 2025 12:10
Sást ekki til sólar fyrir mýi Vistfræðingur sem staddur var á Mývatni þegar mýflugnager vaknaði til lísins segir annað eins ekki hafa sést í yfir hálfa öld. Að hans sögn sást ekki til sólar þrátt fyrir að það væri heiðskírt. Innlent 23. maí 2025 20:02
Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Skjálfti af stærð M4,8 varð í Bárðarbungu klukkan 21:14 í kvöld og nokkrir minni eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Skjálftinn fannst meðal annars í Suðursveit en engin merki eru um gosóróa. Innlent 5. maí 2025 21:50
Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Íslenska stórhljómsveitin Kaleo hefur spilað víða um heim síðastliðinn áratug og stefnir á að vera loksins aftur með tónleika í Vaglaskógi í sumar. Þeir eru að gefa út plötuna Mixed Emotions næstkomandi föstudag og ætla að fylgja henni eftir með stæl bæði erlendis og hérlendis. Er um að ræða fyrstu tónleika sveitarinnar á Íslandi síðan 2015. Tónlist 5. maí 2025 14:06