Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Fyrrverandi alþjóðadómarinn Gunnar Jarl Jónsson er nýr yfirþjálfari Þróttar í Reykjavík. Hann hefur þjálfað hjá félaginu um nokkurra ára skeið. Íslenski boltinn 12. september 2026 10:03
„Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Aðeins um 17 klukkutímar líða frá fögnuði bikarmeistara karla á vellinum annað kvöld þar til að konurnar hefja þar upphitun daginn eftir. Íslenski boltinn 10. september 2026 15:02
Á ekki að snúast um karla gegn konum „Nú er bara spenningur, það er ekkert annað hægt að segja. Það er fiðringur í maganum en þetta verður stór og skemmtilegur dagur og tilfinningin er góð,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Þróttar, fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Grindavík/Njarðvík klukkan fjögur á laugardaginn. Íslenski boltinn 10. september 2026 12:47
Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Bikarhelgi er fram undan í fótboltanum og af nægu er að taka í aðdraganda úrslitaleikjanna tveggja sem fram fara á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 10. september 2026 08:32
Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Þróttur Reykjavík er komið yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík í undanúrslitum umspils Lengjudeildarinnar í fótbolta eftir 1-0 sigur í fyrri leik liðanna í Njarðvík í kvöld. Íslenski boltinn 9. september 2026 18:50
Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Aðeins eitt mark skilur að Breiðablik og FH á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta og fallbaráttan er ekki síður hreint lygilega jöfn, eftir síðustu leikina fyrir tvískiptingu deildarinnar. Mörkin úr leikjunum má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 8. september 2026 10:03
Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Þróttur og Breiðablik skildu jöfn, 1-1, á Pepsi-vellinum í Laugardal í lokaleik liðanna í deildinni áður en Bestu deild kvenna er skipt í efri og neðri hluta. Katelyn Duong kom Blikum yfir undir lok fyrri hálfleiks en Sierra Marie Lelii jafnaði metin fyrir Þrótt eftir hlé. Íslenski boltinn 7. september 2026 21:42
„Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var afar svekktur með markalaust jafntefli gegn Þór/KA í Laugardalnum. Honum fannst heimakonur stýra leiknum nánast frá upphafi til enda en gæðin vantaði á síðasta þriðjungi vallarins. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 18:46
Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Þróttur og Þór/KA skildu jöfn, 0-0, á PEPSI vellinum í Laugardal í 18. umferð Bestu deildar kvenna. Þróttur var meira með boltann lengst af en skipulagt lið Þórs/KA stóð vaktina vel og gestirnir fengu besta færi leiksins í síðari hálfleik. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 18:06
Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Næstsíðasta umferð Lengjudeildar karla hófst í kvöld með tveimur leikjum. Þróttur vann stórsigur á botnliði Ægis, 7-2, á meðan Fylkir lagði Gróttu að velli, 3-1. Þróttur og Fylkir eru bæði örugg með sæti í umspili um sæti í Bestu deildinni og geta enn unnið Lengjudeildina. Íslenski boltinn 28. ágúst 2026 21:31
Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gær og óvænt úrslit komu upp úr þeim öllum. Mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 22. ágúst 2026 12:01
Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Þróttur sótti þrjú stig til Vestmannaeyja með 1-2 sigri gegn ÍBV í 16. umferð Bestu deildar kvenna. Sterk byrjun Þróttara skilaði sigrinum en Eyjakonur voru nálægt því að jafna leikinn undir lokin. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 16:30
Þrótturum mistókst að komast á toppinn Þrótti tókst ekki að komast upp í toppsæti Lengjudeildar karla í kvöld og setja pressu á Mosfellinga sem spila seinna í kvöld. Íslenski boltinn 13. ágúst 2026 19:55
Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Þróttur vann mikilvægan 3-2 sigur á Val í Bestu deild kvenna á Pepsi-vellinum í Laugardal í kvöld en þetta var líka fyrsti sigur liðsins síðan í maí eða i 75 daga. Íslenski boltinn 12. ágúst 2026 21:10
Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Björgey Njála Andreudóttir hefur yfirgefið Selfoss og samið við Bestu deildar lið Þróttar en þetta kemur fram á miðlum Þróttara. Íslenski boltinn 12. ágúst 2026 18:00
Þrótti mistókst að fara á toppinn Njarðvík vann mikilvægan endurkomusigur gegn Vestra er liðin mættust í Lengjudeildinni í dag. Á sama tíma mistókst Þrótturum að komast í toppsætið. Íslenski boltinn 8. ágúst 2026 16:02
Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Stjarnan og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik fjórtándu umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 6. ágúst 2026 22:00
Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ „Ég veit það ekki. Jóhann [þjálfari Þróttar] segir nei, ég segi nei, örugglega ekki. Á ég ekki að segja að þetta hafi verið ósanngjarnt,“ sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 1-1 jafntefli í Garðabænum þar sem Þróttur fór illa með yfirburðastöðu sína í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 6. ágúst 2026 21:49
Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sierra Marie Lelii hefur dregið fótboltaskóna fram úr hillunni og samið við Þrótt um að leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils. Íslenski boltinn 6. ágúst 2026 10:55
Þróttur tók toppsætið af Aftureldingu tveimur mönnum fleiri Kvöldið var efni í martraðir fyrir Aftureldingu sem tapaði 4-1 fyrir Þrótti í Lengjudeild karla. Þróttur tók toppsæti deildarinnar af Aftureldingu með sigrinum. Fótbolti 29. júlí 2026 22:02
Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Þróttur og Víkingur skildu jöfn 1-1 í Reykjavíkurslag í Bestu deild kvenna í fótbolta á Avis-vellinum. Íslenski boltinn 28. júlí 2026 21:10
„Búin að slá út ansi öflug lið“ Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar úr Reykjavík var afar hreykinn af liðsmönnum sínum eftir að liðið vann ÍBV 1-0 í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur er þar með kominn í bikarúrslit kvenna í annað sinn í sögunni. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 22:05
Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Þróttur úr Reykjavík er kominn í úrslitaleik Mjólkurbikarsins eftir að hafa lagt ÍBV að velli, 1-0, á AVIS vellinum í Laugardal í undanúrslitum í kvöld. Þróttur mætir Fram eða Grindavík/Njarðvík í bikarúrslitum þann 12. september næstkomandi. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 21:10
Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Þórdís Nanna Ágústsdóttir reyndist hetja Þróttar úr Reykjavík þegar liðið lagði ÍBV 1-0 að velli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur fer þar með í bikarúrslit í annað sinn í sögunni. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 21:05
Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Þróttur fékk draumabyrjun gegn Leikni í Lengjudeild karla í kvöld og fylgdi því eftir og vann stórsigur, 1-5, í leik liðanna í Efra-Breiðholtinu. Með sigrinum komust Þróttarar upp í 2. sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 23. júlí 2026 21:25
Jóhann Kristinn Gunnarsson: ,, Við þurfum að gera eitthvað róttækt í málunum” Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar segir leikinn hafa verið erfiður, ekki mjög fallegur og að Grindavík/Njarðvík hafi ráðið betur við aðstæður heldur enn Þróttur. Fótbolti 20. júlí 2026 23:29
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Grindavík/Njarðvík lagði Þrótt í 13. umferð Bestu deildar kvenna. Það var óblíð veðrátta JBÓ velli í Reykjanesbæ sem bauð upp á baráttumiklann og spennandi fótboltaleik. Íslenski boltinn 20. júlí 2026 18:32
Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Þróttur endurheimti 3. sæti Lengjudeildar karla með 1-0 sigri á Völsungi í Laugardalnum í dag. Aron Snær Ingason skoraði eina mark leiksins. Íslenski boltinn 18. júlí 2026 17:54
Bríet Fjóla keypt til Þróttar Hin unga og efnilega Bríet Fjóla Bjarnadóttir er gengin til liðs við Þrótt Reykjavík í Bestu deild kvenna í fótbolta en hún kemur til félagsins frá Þór/KA. Íslenski boltinn 17. júlí 2026 15:03
Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Framkonur halda áfram að koma á óvart og unnu annan frábæran sigur í Bestu deildinni í gærkvöld, og Stjarnan er á miklu flugi og nú aðeins tveimur stigum frá toppnum. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 15. júlí 2026 09:30