![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)
Heimsljós er upplýsingaveita utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Vísir og Heimsljós eru í samstarfi um birtingu frétta um þessi mál.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hlaut í dag friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu stofnunarinnar gegn hungri, fyrir að stuðla að bættum aðstæðum fyrir friði á átakasvæðum, og fyrir aðgerðir til að afstýra því að hungur sé notað sem vopn í átökum
Stríðsátök, loftslagsbreytingar og COVID-19 gætu leitt til þess að 150 milljónir manna bætist í hóp sárafátækra fyrir lok næsta árs, samkvæmt mati Alþjóðbankans
Ísland hefur gert samkomulag við skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) um stuðning við starf hennar fyrir bættum mannréttindum í heiminum
Meira en tólf milljónir barna í Jemen þurfa á neyðaraðstoð að halda. Þá eru 1,7 milljón barna á vergangi innanlands. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna vekur athygli á ástandinu
ABC barnahjálp hafa fengið styrk frá utanríkisráðuneytinu til þess að rafvæða heimavistir og ýmiss önnur skólahús í borginni Bobo Dioulasso í Búrkina Fasó
Reiknað er með að hálf milljón ungra stúlkna verði hnepptar í hjónaband á þessu ári til viðbótar við þær tólf milljónir stúlkna sem að jafnaði eru þröngvað í hjónaband á barnsaldri árlega
Strandlengjur við fiskisamfélög í Líberíu hafa verið hreinsaðar á síðustu misserum í verkefni á vegum Fiski- og fiskeldisstofu Líberíu með fjárhagslegum stuðningi utanríkisráðuneytisins
Vegna ótta um að vopnuð átök brjótist út á milli Armeníu og Azerbaidjan hefur Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hvatt deiluaðila til að virða alþjóðleg mannúðarlög
Utanríkisráðuneytið hefur gert samning við Barnaheill – Save the Children á Íslandi vegna verkefnisins „Barnvæn svæði og barnavernd í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó“ og fellur verkefnið undir alþjóðlegt neyðarkall
Íslendingar lögðu af mörkum eina og hálfa milljón króna í neyðarsöfnun vegna sprenginganna í Beirút í byrjun ágústmánaðar
Aðeins eitt af hverjum átta ríkjum í heiminum hefur beitt sér sérstaklega fyrir því að vernda konur fyrir hættum sem aukist hafa á tímum heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Utanríkisráðuneytið og Barnaheill – Save the Children á Íslandi veita fjármagni í viðbragðssjóð Save the Children International í Sýrlandi með áherslu á aðgerðir vegna COVID-19 heimsfaraldursins
Toshpulot Rajabov, sviðsforseti líftækni og fæðuöryggissviðs Samarkand ríkisháskólans í Úsbekistan sótti nám við Landgræðsluskólann um áhrif beitar á gróðurfar
Samkvæmt skýrslu þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna eru þær framfarir sem orðið hafa í að bæta hag kvenna og barna í heiminum síðastliðinn áratug í mikilli hættu vegna átaka, hamfarahlýnunar og nú kórónaveirunnar
Fjölmörg alþjóðleg hjálparsamtök hvöttu þjóðarleiðtoga sem sátu fund í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að endurnýja neyðarkall sitt um alþjóðlegt vopnahlé.
Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC), norski og finnski Rauða krossinn og jemenski Rauði hálfmáninn opnuðu í vikunni gjaldfrjálsa meðferðardeild í borginni Aden í suðurhluta Jemen fyrir einstaklinga sem veikjast af COVID-19
Þýska knattspyrnustórveldið Bayern München teflir fram stórstjörnum til að draga fram hugrekki og falda hæfileika barna af ólíkum uppruna í samstarfi við SOS Barnaþorpin
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX).
Heilbrigðisskrifstofa Mangochi héraðs, samstarfshéraðs Íslands í Malaví, hefur verið útnefnd besta skrifstofa heilbrigðismála í landinu
Heimsbyggðin hefur áhyggjur af aðgangi að heilsugæslu, hreinu drykkjarvatni, hreinlætisaðstöðu og menntun, ef marka má niðurstöður könnunar Sameinuðu þjóðanna á afstöðu til heimsmála.
Hungur í heiminum vegna stríðsátaka og covid-19, er að komast á mjög hættulegt stig að mati framkvæmdastjóra matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (wfp).
Konur og karlar fá ekki sömu laun fyrir sömu vinnu fyrr en árið 2277 að öllu óbreyttu samkvæmt skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins. Fyrsti alþjóðlegi jafnlaunadagurinn er á morgun.
Í dag er aþjóðadagur til verndar ósonlaginu til þess að vekja athygli á þeirri ógn sem felst í þynningu ósonlagsins. Ósonlagið hindrar að megnið af skaðlegum útfjólubláum geislum sólar (UV-B) nái til jarðar.
Talið er að ellefu þúsund hælisleitendur á grísku eyjunni Lesbos hafist við undir beru lofti eftir að Moria flóttamannabúðirnar brunnu til grunna í síðustu viku
Íslensk stjórnvöld veita tuttugu milljónum króna til neyðaraðstoðar vegna eldsvoða í búðum hælisleitenda á grísku eynni Lesbos. Tuttugu milljónum króna verður einnig varið til mannúðarstarfs í Líbanon vegna sprenginganna í Beirút.
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft slæm áhrif á menntun barna, sérstaklega þeirra sem búa við fátækt samkvæmt nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children. Bilið milli fátækra og ríkra barna eykst.
Barnahjálp Sameinuðuþjónanna kallar eftir því að börn og aðrir viðkvæmir hópar fólks á flótta verði tafarlaust flutt í öruggt og viðeigandi húsaskjól á meginlandi Grikklands
Tilraunaverkefni um framleiðslu á nituráburði með umhverfisvænum hætti í Kamerún fékk tveggja milljóna króna forkönnunarstyrk frá utanríkisráðuneytinu.
Kannanir UNICEF og WHO sýna að ungbarnadauði eykst á nýjan leik eftir þrjátíu ára samfellda sögu fækkunar dauðsfalla ungra barna. Aukningin er óbein afleiðing heimsfaraldursins.
Níu af hverjum tíu íbúum jarðarinnar anda að sér menguðu lofti. Loftmengun á þátt í hjartasjúkdómum, heilablóðföllum, lungnakrabbameini og öðrum öndurfærasjúkdómum.