Fjöldi heimila enn án rafmagns Enn er unnið að bilanaleit og viðgerðum á Austurlandi vegna viðamikils rafmagnsleysis. Rafmagnslausum viðskiptavinum RARIK á Austfjörðum fer fækkandi en þó eru enn 39 heimili án rafmagns. Innlent 20. janúar 2025 16:56
Rýma fleiri hús á Seyðisfirði Þrjú stór flóð féllu fyrir ofan Neskaupstað í nótt. Rýmingar eru enn í gildi í bænum og á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Rýma á tvær blokkir til viðbótar á Seyðisfirði í dag. Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir rýmingarnar hafa tekið á íbúa. Innlent 20. janúar 2025 12:18
Nokkur fjöldi fastur á Fjarðarheiði í gær Björgunarsveitir á Héraði og Seyðisfirði voru kallaðar út síðdegis í gær vegna nokkurs fjölda fólks í vandræðum á Fjarðarheiði. Ruðningstæki var einnig fast við Efri Staf og nokkrir bílar þar á eftir sem komust hvergi. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 20. janúar 2025 10:46
Víða ófært á landinu og vegir lokaðir Víða er ófært á landinu vegna norðaustanhríðarinnar en appelsínugular og gular veðurviðvaranir eru í gildi á stærstum hluta landsins fram eftir degi. Innlent 20. janúar 2025 07:54
Engar fregnir af ofanflóðum í nótt Ekkert hefur frést af ofanflóðum á Austfjörðum í nótt þar sem er óvissustig vegna snjóflóðahættu og hættustig á Seyðisfirði og Neskaupsstað. Innlent 20. janúar 2025 07:24
Áfram norðaustanhríð og appelsínugular viðvaranir Gera má ráð fyrir nokkuð hvassri norðaustanátt með hríðarveðri á Norðaustur og Austurlandi í dag, en éljum norðvestantil. Lægðin sem stjórnar veðrinu er fyrir sunnan land og hún fjarlægist smám saman. Veður 20. janúar 2025 07:15
Ekkert ferðaveður á morgun og Freyja komin í Seyðisfjörð Freyja, varðskip Landhelgisgæslunnar, verður í Seyðisfirði í nótt. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi og útlit er fyrir áframhaldandi snjókomu og erfið veðurskilyrði á morgun. Innlent 19. janúar 2025 23:25
Ók inn í snjóflóð í Færivallaskriðum Ferðamenn óku inn í snjóflóð sem hafði fallið í Færivallaskriðum á Austfjörðum í dag. Bíllinn festist í flóðinu en ferðamennirnir eru óslasaðir. Innlent 19. janúar 2025 20:02
Um 170 íbúar komnir með húsaskjól og rýmingarsvæðum fjölgað Á annað hundrað íbúar á Austfjörðum þurftu að yfirgefa heimili sín í dag vegna aukinnar snjóflóðahættu. Íbúar hafa tekið ástandinu að æðruleysi segir verkefnastjóri hjá almannavörnum en ástandið hreyfir við mörgum í ljósi sögunnar. Rýmingarsvæðum á Seyðisfirði fjölgar í kvöld en ná að mestu yfir atvinnusvæði. Innlent 19. janúar 2025 19:31
Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Rýma þarf svæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði vegna mikillar snjóflóðahættu. Veðurstofa Íslands telur mikla hættu á snjóflóðum á svæðinu næstu daga. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi. Innlent 19. janúar 2025 11:09
Landið mest allt gult í dag Gular viðvaranir hafa tekið gildi eða munu taka gildi seinna í dag um stærstan hluta landsins. Von er á nokkuð hvassri austan- og norðaustanátt í dag og gæti orður stormur eða rok syðst á landinu.Þá er von á úrkomu á austanverðu landinu í dag, slyddu eða snjókomu, og á hún að aukast töluvert seinnipartinn. Innlent 19. janúar 2025 07:43
Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun Hringvegurinn í Öræfasveit verður settur á óvissustig milli Skaftafells að vestan og Hnappavalla að austan klukkan 8 í fyrramálið vegna slæmrar veðurspár. Innlent 18. janúar 2025 20:13
Veðurviðvaranir og vegalokanir Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víðs vegar um landið. Margir vegir eru á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara. Innlent 18. janúar 2025 09:42
Mikil hálka þegar banaslysið varð Helsta orsök banaslyss sem varð við Grindavíkurveg þann 5. janúar í fyrra var mikil hálka sem var á veginum. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Hálkuvörn á veginum var ábótavant vegna bilunar í saltbíl og þá var vörubíl, sem lenti í slysinu, ekið of hratt miðað við aðstæður, en hann fór ekki yfir hámarkshraða. Innlent 17. janúar 2025 11:01
Hvessir sunnan- og austantil í kvöld Lægðin sem olli snjókomunni á Norður- og Austurlandi í nótt fjarlægist nú landið og má reikna með fremur hægum vindi á landinu í dag. Víða eru líkur á stöku éljum og má reikna með frosti á bilinu núll til átta stig. Það hvessir hins vegar í kvöld og hafa verið gefnar út gular viðvaranir sunnan- og austantil vegna hvassviðris. Veður 17. janúar 2025 07:12
Íbúar innlyksa vegna flóðs í Ölfusá Þúsundir hektara lands eru á floti eftir flóð í Ölfusá í Arnarbælishverfinu svonefnda í Ölfusi í dag. Nokkrir íbúar á sveitabæjum þar eru innlyksa í húsum sínum vegna flóðsins. Innlent 16. janúar 2025 20:04
Viðvarandi glitský yfir höfuðstað Norðurlands Glæsileg glitský hafa sést á himni yfir Akureyri undanfarna daga. Ský af þessu tagi myndast að vetrarlagi þegar óvenjukalt verður í heiðhvolfinu hátt fyrir ofan hefðbundin ský. Innlent 16. janúar 2025 11:48
Varað við ísingu með umskiptum í veðri Hætta er á að ísing og hálka myndist á blautum vegum, sérstaklega á Suðvesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu, þegar umskipti verða í veðrinu síðdegis og í kvöld. Rigna á fram eftir degi en síðan kólna. Innlent 16. janúar 2025 09:44
Kólnar í veðri Dálítil lægð er nú á leið norður yfir landið og fylgir henni stíf sunnanátt og rigning nú í morgunsárið. Þó má reikna með hægari vindi og slyddu eða snjókomu norðvestan- og vestantil. Veður 16. janúar 2025 07:10
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiði á nýjan leik. Innlent 15. janúar 2025 10:22
Vindur nær stormstyrk á norðvestanverðu landinu Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan- og suðvestanátt í dag þar sem víða má reikna með tíu til átján metrum á sekúndu en heldur hvassari í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Gular viðvaranir taka þar gildi eftir hádegi. Veður 15. janúar 2025 07:19
Holtavörðuheiði lokað í nótt Veginum um Holtavörðuheiði var lokað í nótt vegna mikils vatnsaga sem var á veginum auk þess sem nokkur umferðaróhöpp urðu á leiðinni, að því er fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar. Innlent 15. janúar 2025 06:38
Gular viðvaranir fyrir norðan og vestan Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Breiðafirði, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra sem taka gildi eftir hádegi á morgun. Veður 14. janúar 2025 23:03
Auknar líkur á skriðum á Vestfjörðum, Vestur- og Suðurlandi Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum á Suður- og Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum þegar frost fer úr jörðu og úrkoma safnast upp á næstu dögum. Ekki er hægt að útiloka krapaflóðahættu á svæðum þar sem snjór er í giljum og farvegum. Veður 14. janúar 2025 13:58
Bætir í úrkomu og hiti nær tíu stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, átta til fimmtán metrum á sekúndu. Spáð er rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu, en að muni bæta í úrkomu síðdegis. Úrkomuminna verður á norðaustanverðu landinu. Veður 14. janúar 2025 07:13
Hnjúkaþeyrinn sem knýr áfram eldana mannskæðu í Los Angeles Heitur og þurr vindurinn sem knýr áfram eldana mannskæðu í Los Angeles á að magnast aftur eftir svikalogn um helgina. Santa Ana-vindarnir svonefndu eru af sama meiði og hnjúkaþeyrinn sem Norðlendingar njóta góðs af í suðlægum vindáttum. Erlent 13. janúar 2025 14:50
Suðlægur vindur og væta sunnan- og vestantil Landið er nú í morgunsárið á milli tveggja lægða þar sem aðra er að finna skammt suðaustur af Jan Mayen og veldur allhvassri vestanátt á norðaustanverðu landinu. Lægðin fjarlægist nú óðum og er vindur því á niðurleið. Veður 13. janúar 2025 07:12
Veðurviðvaranir um allt land vegna hvassviðris og hláku Allmikið lægðardrag hreyfist norðaustur yfir landið í dag og veldur suðaustanstrekkingi með rigningu og hlýindum, einkum á suðaustanverðu landinu. Veðurviðvaranir vegna hvassviðris og hláku eru í gildi um allt land og er búist við talsverðri leysingu. Veður 12. janúar 2025 08:37
Úrkomusvæði vaxandi lægðar nálgast óðum Smálægð milli Íslands og Grænlands beinir hægri suðlægri átt með slydduéljum að landinu. Suður í hafi er vaxandi lægð sem hreyfist norður á bóginn og í nótt er von á allhvassri suðaustanátt með rigningu og hækkandi hita. Veður 11. janúar 2025 09:12
Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga Árið í ár var það heitasta árið frá upphafi mælinga. Meðalhiti jarðar náði fyrsta skipti neðri þröskuldi Parísarsakomulags um að hnattrænni hlýnun verði haldið innan við eina og hálfa gráðu. Innlent 10. janúar 2025 21:14