Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Stöð 2 mun hætta innanhússframleiðslu á innlendu sjónvarpsefni og einbeita sér fyrst og fremst að samstarfi við framleiðslufyrirtæki. Þetta staðfestir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Miðla og efnisveitna hjá Sýn. Vinsælir þættir hverfi ekki af dagskrá heldur færist vinnsla þeirra til framleiðslufyrirtækja. Innlent 30. apríl 2025 14:59
Þau vilja stýra ÁTVR Nítján sóttu um lausa stöðu forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Athygli vekur að aðstoðarforstjórinn og helsti talsmaður stofnunarinnar um árabil er ekki á meðal umsækjenda. Viðskipti innlent 29. apríl 2025 16:45
Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Ný stjórn Ríkisútvarpsins var kjörin á Alþingi um tvöleytið í dag. Meðal nýrra stjórnarmanna eru Heimir Már Pétursson, fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, og Stefán Jón Hafstein fyrrverandi fjölmiðlamaður. Innlent 29. apríl 2025 14:29
Ráðinn forstjóri Arctic Fish Fiskeldisfélagið Arctic Fish hefur ráðið Daníel Jakobsson sem forstjóra frá og með 1. maí 2025. Daníel tekur við stöðunni af Stein Ove Tveiten. Viðskipti innlent 29. apríl 2025 07:14
Björn tekur við af Helga Landssamband eldri borgara heldur árlegan landsfund sinn á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ á morgun þar sem nýr formaður mun taka við. Björn Snæbjörnsson frá Akureyri verður sjálfkjörinn í embætti formanns og mun því taka við af Helga Péturssyni. Innlent 28. apríl 2025 13:17
Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Eva Rós Ólafsdóttir félagsráðgjafi mun taka við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace þann 1. júní næstkomandi af stofnanda þess og fyrrverandi framkvæmdastjóra, Sigurþóru Bergsdóttur. Innlent 28. apríl 2025 08:05
Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Eva Georgs Ásudóttir var í dag ráðin í starf dagskrárstjóra sjónvarps RÚV úr hópi 28 umsækjenda. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef RÚV. Eva starfaði í tvo áratugi hjá Stöð 2 og síðustu árin sem sjónvarpsstjóri. Intellecta annaðist ráðningarferlið. Innlent 23. apríl 2025 17:21
Aðalgeir frá Lucinity til Símans Aðalgeir Þorgrímsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fjártækni hjá Símanum. Viðskipti innlent 22. apríl 2025 12:40
Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Lyklaskipti fóru fram í morgun á skrifstofu leikhússtjóra Borgarleikhússins. Egill Heiðar Anton Pálsson tók við stjórn leikhússins. Menning 22. apríl 2025 12:20
Af Alþingi til Fjallabyggðar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er búin að finna sér nýtt starf eftir að hafa verið matvælaráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á síðasta ári. Innlent 16. apríl 2025 22:09
Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Elísabet Austmann og Bergsveinn Guðmundsson hafa tekið við nýjum stöðum markaðsstjóra hjá Ölgerðinni. Elísabet hefur tekið við stöðu markaðsstjóra óáfengra drykkja og Bergsveinn markaðsstjóra áfengra drykkja. Viðskipti innlent 16. apríl 2025 11:19
Jón Guðni tekur við formennsku Á aðalfundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, sem fór fram í síðustu viku, var Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kjörinn formaður stjórnar samtakanna. Viðskipti innlent 15. apríl 2025 09:43
Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti Sigurjón Örn Ólafsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs Kletts. Hann tekur við af Sveini Símonarsyni, sem hefur stýrt þjónustusviðinu frá stofnun félagsins. Viðskipti innlent 15. apríl 2025 08:10
Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Ný stjórn Landsvirkjunar var kjörin á aðalfundi Landsvirkjunar í dag, samkvæmt tillögu fjármála- og efnahagsráðherra. Brynja Baldursdóttir er nýr stjórnarformaður. Viðskipti innlent 14. apríl 2025 15:47
Sveinn snýr aftur til starfa hjá Arctica Finance sem greinandi Sveinn Þórarinsson, sem hefur verið sjóðstjóri hjá Kviku eignastýringu undanfarin ár, er að snúa aftur til Arctica Finance þar sem hann mun taka til starfa sem greinandi fyrir markaðsviðskipti verðbréfafyrirtækisins. Innherji 14. apríl 2025 12:01
Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Fyrstu konurnar til að vera skipaðar í stöðu prófessors við námsbraut í stærðfræði kalla eftir því að enn fleiri konur skrái sig í stærðfræðinám og segja það helbera mýtu að stærðfræðingar kunni ekki að skemmta sér. Innlent 11. apríl 2025 22:47
Árni Oddur tekur við formennsku Á hluthafafundi Eyris Invest hf. í gær var ný stjórn félagsins kjörin. Stjórnina skipa Atli Björn Þorbjörnsson, Árni Oddur Þórðarson og Þórður Magnússon. Stjórnin hefur komið saman og skipt með sér verkum og Árni Oddur fer nú með stjórnarformennsku. Viðskipti innlent 9. apríl 2025 16:09
Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Helgi Skúli Friðriksson, Hrefna Marín Gunnarsdóttir, Þorgeir Eyfjörð Sigurðsson og Stefán Már Kjartansson hafa öll verið ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi netöryggisfyrirtækisins Varist. Viðskipti innlent 9. apríl 2025 10:13
Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Netöryggisfyrirtækið Keystrike hefur ráðið Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttir sem yfirmann sölu, markaðsmála og viðskiptaþróunar fyrir Evrópumarkað. Viðskipti innlent 9. apríl 2025 09:53
Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson Arnar Hólm Einarsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns fyrirtækjasviðs hjá Ormsson. Viðskipti innlent 8. apríl 2025 08:48
OK með nýjan fjármálastjóra Erling Tómasson hefur verið ráðinn fjármálastjóri upplýsingatæknifyrirtækisins OK. Viðskipti innlent 7. apríl 2025 09:49
Björg Ásta nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins Björg Ásta Þórðardóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Hún tekur við af Þórði Þórarinssyni sem lætur af störfum eftir ellefu ára starf sem framkvæmdastjóri flokksins. Innlent 4. apríl 2025 17:32
Guðmundur í Brimi nýr formaður Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., var kosinn formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á aðalfundi samtakanna í Hörpu í dag. Viðskipti innlent 4. apríl 2025 16:32
Arndís Bára lögreglustjóri næsta árið Dómsmálaráðherra hefur sett Arndísi Báru Ingimarsdóttur í embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum til tólf mánaða, frá og með 1. apríl 2025. Innlent 4. apríl 2025 14:05
Einar Hrafn og Díana Dögg til Reon Díana Dögg Víglundsdóttir og Einar Hrafn Stefánsson hafa verið ráðin til hugbúnaðarfyrirtækisins Reon. Viðskipti innlent 4. apríl 2025 12:52
Kristjana til ÍSÍ Kristjana Arnarsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, hefur tekið til starfa sem nýr verkefnastjóri kynningarmála á skrifstofu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), í stað Sigríðar Unnar Jónsdóttur sem lét af störfum um síðustu áramót. Viðskipti innlent 4. apríl 2025 12:30
Sendiherra, lektor og sviðsstjórar sækja um embætti skrifstofustjóra Alls sóttu 22 um embætti skrifstofustjóra Alþingis en meðal þeirra eru Unnur Brá Konráðsdóttir fyrrverandi þingmaður, Kristrún Heimisdóttir lektor, Kristján Andri Stefánsson sendiherra í Brussel, og Hörður Ágústsson sem var áður hjá Macland og Hopp. Sex sviðsstjórar sækja einnig um. Innlent 3. apríl 2025 20:18
Tuttugu og átta sóttu um stöðu dagskrárstjóra Alls bárust 28 umsóknir um stöðu dagskrárstjóra hjá RÚV. Fjórir drógu umsókn sína til baka eftir að óskað var eftir nafnalista. Meðal umsækjenda er Margrét Jónasdóttir starfandi dagskrárstjóri og Eva Georgs Ásudóttir fyrrverandi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Innlent 3. apríl 2025 18:47
Tekur við starfi þingmanns í leyfi frá borginni Steinþór Einarsson hefur verið ráðinn í starf sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar. Hann tekur við starfinu af Eiríki Birni Björgvinssyni sem er í fimm ára leyfi frá borginni eftir að hafa verið kjörinn á þing fyrir Viðreisn í nóvember í fyrra. Innlent 3. apríl 2025 15:23
Sveinn ráðinn verkefnastjóri erlends samstarfs Sveinn Helgason hefur verið ráðinn verkefnastjóri erlends samstarfs hjá Samorku, með starfsstöð í Brussel og einnig í Reykjavík. Viðskipti innlent 3. apríl 2025 13:49
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent