Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Íranir segjast hafa lokað fyrir umferð um Hormússundið á ný vegna árása Ísraelsmanna í Líbanon og meintra brota Bandaríkjamanna á vopnahléssamkomulagi. 20.6.2026 13:56
Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Flugmaður EasyJet féll í yfirlið við lendingu í Keflavík í morgun og var rauðu óvissustigi tímabundið lýst yfir á flugvellinum. Engan sakaði og gekk lendingin vel, að sögn Isavia. Á annan hundrað voru um borð í vélinni. Flugmaðurinn var með rænu þegar vélin lenti. 20.6.2026 13:39
Dóttir Obama í íslenskri hönnun Malia Obama skartaði hælaskóm frá íslenska skómerkinu Kalda í vikunni er hún sótti opnunarhátíð safns sem tileinkað er forsetatíð föður hennar, Baracks Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseta. 20.6.2026 11:50
Meloni segir Trump skrökva upp á sig Ummæli Bandaríkjaforseta um ítalska forsætisráðherrann Giorgiu Meloni hafa hleypt illu blóði í ítalska diplómata. Utanríkisráðherra Ítalíu hefur aflýst heimsókn sinni til Bandaríkjanna vegna málsins. 20.6.2026 10:38
Witkoff stefnir til Sviss Bandarískir og íranskir erindrekar eru sagðir á leið til Sviss í dag í von um að hefja viðræður um framtíð kjarnorkuvopna í Íran. Ekki liggur fyrir hvort viðræður hefjist í dag og þær virðast háðar því að átökum linni í Líbanon, en þar eru ellefu manns sagðir látnir eftir árásir Ísraels síðasta sólarhringinn. 20.6.2026 09:31
Sektaður fyrir að aka á göngugötu Lögreglan á Hverfisgötu sektaði í nótt ökumann fyrir að aka um göngugötu í Reykjavík. Auk þess var óskað eftir aðstoð lögreglunnar vegna innbrots í heimahús og vegna árásar fyrir framan bar. 20.6.2026 08:17
Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Sunnan heiða má búast við hátt í 16 stiga hita en líkur eru á skúrum síðdegis við suðurströndina. Fyrir norðan og austan má búast við áframhaldandi rigningu. 20.6.2026 07:57
Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Hvalveiðibátar Hvals hf. eru sagðir haldnir til veiða í fyrsta sinn í tvö ár. 20.6.2026 07:44
Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Mikið tjón er á íbúð við Klapparstíg eftir að eldur kom þar upp í morgun, að sögn slökkviliðs. Einn var fluttur með sjúkrabíl til athugunar. 20.6.2026 07:29
Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Maður í Noregi er sagður þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo í borginni Molde í dag. 19.6.2026 23:26