Íþróttafréttamaður

Andri Broddason

Andri Broddason er íþróttafréttamaður á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hefur ekki á­hyggjur af slæmum velli

Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands ætlar ekki að láta völlinn hafa áhrif á liðaval sitt í upphitunarleikjum fyrir HM. Völlurinn er aðeins tímabundinn og eru einhverjir hræddir um auknar líkur á að leikmenn meiðist á vellinum.

Mynda­syrpa: Sara Björk snýr heim

Sara Björk Gunnarsdóttir er að snúa heim til Hauka úr atvinnumennsku. Hún mun verða leikmaður Hauka sem og sinna afreksþjálfun félagsins. Haldinn var blaðamannafundur í knatthúsi Hauka þar sem okkar maður Vilhelm Gunnarsson var með myndavélina á lofti.

Verður hjá Celtic eitt ár í við­bót

Martin O‘Neill hefur verið ráðinn þjálfari Celtic. Hann skrifar undir eins árs samning við félagið eftir að hafa þjálfað liðið á síðasta tímabili eftir brottför bæði Brendan Rodgers og Wilfried Nancy.

Markaveisla í Lengjudeildinni

Þrír leikir voru spilaðir í Lengjudeild karla í kvöld og fengum við vægast sagt markaveislu. Í þremur leikjum voru skoruð samtals tólf mörk og þar af sex í einum leik.

Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana

Ríkjandi heimsmeistarar Spánar og ríkjandi Evrópumeistarar Englands áttust við í kvöld en þessi lið eru í sama riðli og Ísland í undankeppni HM. Leikurinn var ekki jafn og unnu Spánverjar stórsigur 4-0.

Stór­sigur hjá Belgum undir stjórn Elísa­betar

Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari belgíska kvennalandsliðsins í fótbolta fagnaði góðum sigri á Lúxemborg í kvöld. Þetta var vægast sagt stórsigur þar sem Belgía vann leikinn 6-0.

Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammi­stöðu

Tryggvi Snær Hlinason er dottinn úr leik í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Félagar hans í Bilbao Basket steinlágu fyrir Valencia í öðrum leik liðanna en það þarf að vinna tvo leiki í viðureigninni til að komast áfram í úrslitakeppninni.

Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc

Charles Leclerc framlengdi samning sinn við Ferrari í vikunni en greindi frá því að fleiri lið reyndu að semja við hann. Leclerc vildi ekki greina frá hvaða lið það væri.

Ó­víst hver tekur við af Schmeichel

Danska landsliðið í fótbolta er í vandræðum með arftaka Kasper Schmeichel. Hann hefur verið landsliðsmarkmaður svo lengi að þeir næstu sem koma á eftir honum eru reynslulitlir. Schmeichel tilkynnti að hann væri hættur með landsliðinu núna í maí.

Sjá meira