Tók sameignina á sig og lenti í Skattinum Eigandi íbúðar í fjölbýlishúsi þarf að greiða tekjuskatt af greiðslum sem hann fékk frá húsfélagi hússins fyrir að sjá um sameign og sorpgeymslu. Hann kærði ákvörðun Ríkisskattstjóra þess efnis og sagðist vera beittur ranglæti og ráðstöfun fjár húsfélagins kæmi engum við. Yfirskattanefnd gaf lítið fyrir þau rök. 19.3.2024 20:21
Ný vísitala íbúðaverðs hækkar Ný vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,9 prósent á milli mánaða í febrúar og hefur hækkað um 5,7 prósent á síðustu tólf mánuðum. Með nýju vísitölunni má sjá verðþróun eftir landssvæðum og íbúðaflokkum, en gamla vísitalan sýndi einungis verðþróun á höfuðborgarsvæðinu. 19.3.2024 18:58
Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn mynda meirihluta Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa ákveðið að mynda meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar. Meirihlutinn samanstendur af sjö af níu bæjarfulltrúum. 19.3.2024 17:59
Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast. 18.3.2024 23:21
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar. 18.3.2024 22:28
Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Bankasýsla ríkisins hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvarðanatöku og upplýsingagjöf bankaráðs Landsbankans um kaup bankans á TM. Bankasýslan krefst þess að aðalfundi Landsbankans verði frestað um fjórar vikur vegna fyrirséðra áhrifa kaupanna á dagskrá, umræður og niðurstöður fundarins. 18.3.2024 21:57
Árekstur við Kaplakrika Árekstur tveggja bíla var á gatnamótum Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns við Kaplakrika í Hafnarfirði á níunda tímanum í kvöld. Engin alvarleg slys urðu á fólki. 18.3.2024 20:54
Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Prófessor í jarðeðlisfræði segir eldgosið sem hófst á laugardag hegða sér öðruvísi en hin þrjú sem komið hafa upp á Sundhnúksgígaröðinni. Stöðug virkni í því gæti þýtt að það vari talsvert lengur en síðustu gos. 18.3.2024 20:30
Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Talsvert sjónarspil er enn á gosstöðvunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells, þar sem eldgos hófst á laugardagskvöld. 18.3.2024 19:17
Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Ungur karlmaður sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðasta árs þvertók fyrir að hafa beitt skotvopni í árásinni. Sá sem varð fyrir skoti í árásinni kvaðst ekkert muna eftir árásinni. 18.3.2024 18:29