Skrúfa fyrir valið efni korter í kosningar Samfélagsmiðillinn Twitter hefur tilkynnt að ákveðið efni á miðlinum verði ekki aðgengilegt notendum hans í Tyrklandi. Gríðarlega mikilvægar kosningar verða í landinu á morgun en litlu sem engu munar á sitjandi forsetanum Erdogan og keppinauti hans Kemal Kilicdaroglu í skoðanakönnunum. 13.5.2023 21:24
Ísak Harðarson er látinn Ísak Harðarson, ljóðskáld og þýðandi, er látinn aðeins 66 ára að aldri. 13.5.2023 20:21
Skíðafólkið á Vatnajökli finnst ekki Síðdegis í dag óskaði hópur gönguskíðafólks á Vatnajökli eftir aðstoð viðbragðsaðila eftir að kona úr hópnum datt og fékk sleða, sem hún var með í eftirdragi, í höfuðið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang ásamt björgunarsveitarfólki frá Höfn í Hornarfirði. Þegar björgunarsveitin kom að þeim stað þar sem talið var að hópurinn væri bólaði ekkert á honum. Nú er víðtæk leit hafin að fólkinu. 13.5.2023 19:54
Áform um nýja selalaug sett á ís Borgaryfirvöld hafa ákveðið að fresta framkvæmdum við nýja selalaug í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um óákveðinn tíma. Framkvæmdir hófust síðasta haust og búið var að grafa stærðarinnar holu þar sem laugin átti að vera. Nú verður fyllt upp í holuna. 13.5.2023 18:21
Þyrlusveitin reynir að sækja slasaða skíðakonu Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar nú síðdegis vegna skíðaslyss á Grímsfjalli í Vatnajökli. Þyrlusveit gæslunnar er á leið á vettvang en óvíst er hvort hún komist að slysstað vegna veðurs. 13.5.2023 17:37
Viðsnúningur í milljarðadeilu ALC og Isavia Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að flugvélaleigan ALC og íslenska ríkið skyldu greiða Isavia 2,5 milljarða króna í skaðabætur vegna kyrrsetningar á flugvél sem hið sáluga Wow air hafði haft á leigu. 12.5.2023 16:57
Tveir slasaðir eftir árekstur strætós og fólksbíls Nokkrar umferðartafir voru fyrir skömmu neðst á Suðurlandsbraut í vesturátt eftir að strætisvagni var ekið aftan á fólksbíl á gatnamótum. Sjúkralið fór vettvang að hlúa að tveimur, sem eru með minniháttar áverka. 12.5.2023 16:21
Sneri við blaðinu og fékk þriggja ára dóm skilorðsbundinn Árni Khanh Minh Dao var í dag sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa flutt inn rétt tæplega tvö kíló af sterku metamfetamíni, sem er í daglegu tali kallað spítt, í ferðatösku sem hann tók með sér í áætlunarflug árið 2019. Athygli vekur að fullnustu refsingar hans var frestað til fimm ára. 12.5.2023 15:27
Biðja fyrrverandi nemanda afsökunar fyrir að hafa ekki tekið á sögusögnum Menntaskólinn á Akureyri hefur beðið fyrrverandi nemanda skólans afsökunar fyrir að hafa ekki tekið á sögusögnum um meint kynferðisbrot hans. Nemandinn hætti námi við skólann vegna sögusagnanna og ásakana á hendur honum. Mál sama nemanda var í hámæli síðasta haust þegar nemendur MH mótmæltu því að hann fengi að stunda nám við skólann þrátt fyrir meint brot. 12.5.2023 14:13
Slær líka á putta Kópavogs vegna nemendakerfis Persónuvernd hefur gert Kópavogsbæ að greiða fjögurra milljóna króna stjórnvaldssekt vegna notkunar bæjarins á nemendakerfinu Seesaw. Reykjavíkurborg var gert að greiða fimm milljónakróna sekt vegna notkunar sama kerfis í fyrra. 12.5.2023 13:32