Yay fer í útrás til Írlands Íslenska fjártæknifyrirtækið Yay hefur samið við írska fjárfestingarfyrirtækið Olympia Capital um uppsetningu, sölu og dreifingu á þjónustu Yay á Írlandi. Yay er helst þekkt fyrir að hafa haldið utan um ferðagjöfina fyrir íslenska ríkið í gegnum gjafabréfakerfi sitt. 21.12.2022 15:52
Félagsmenn RSÍ samþykktu kjarasamning Félagsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands samþykktu kjarasamning við Samtök Atvinnulífsins í dag. 21.12.2022 15:22
Tókst ekki að sanna að hross væri hrekkjótt Ung kona sem höfðaði mál til heimtu skaðabóta vegna alvarlegs reiðslyss, sem hún lenti í þegar hún var sextán ára gömul, fær engar bætur úr hendi eiganda hrossins. Ekki taldist sannað að hrossið væri hrekkjótt. 21.12.2022 13:48
H&M hættir með Bieber-línuna eftir skammir frá Bieber Sænski fatarisinn H&M hefur ákveðið að taka allan varning merktan kanadísku stjórstjörnunni Justin Bieber úr sölu. Í gær sagði söngvarinn að varningurinn væri drasl og hvatti fólk til þess að kaupa hann ekki. 21.12.2022 13:16
Verð sérbýla leiðir lækkun íbúðaverðs Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3 prósent í nóvember frá október. Ástæða lækkunarinnar er 1,2 prósent lækkun verðs sérbýla en verð íbúða í fjölbýli stendur í stað. 21.12.2022 11:43
Arion banki hækkar vexti Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti í kjölfar stýrisvaxtahækkunar Seðlabanka Íslands þann 23. nóvember síðastliðinn. Ákvörðunin gildir frá og með deginum í dag. 21.12.2022 10:21
Innkalla hættulegan stól Ikea hefur innkallað skrifborðsstól af gerðinni Odger í kolgráum vegna hættu á að fóturinn brotni með tilheyrandi fall- og slysahættu. 21.12.2022 09:54
Atvinnuleysi jókst milli mánaða Atvinnuleysi mældist 4,6 prósent í nóvember samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,7 prósent milli mánaða. 21.12.2022 09:26
Bieber æfur H&M vegna Bieber-línunnar Justin Bieber er ekki sáttur með sænska fatarisann H&M eftir að sá síðarnefndi gaf út fatalínu merkta kappanum. „H&M varningurinn sem þeir bjuggu til af mér er drasl og ég samþykkti hann ekki,“ segir poppstjarnan. 21.12.2022 08:18
„Við viljum ekki að svona komi fyrir aftur“ Búið er að opna Reykjanesbrautina í báðar áttir og brátt mun eðlileg flugumferð um Keflavíkurflugvöll hefjast á ný. Forstjóri Icelandair tók á móti farþegum tveggja þota sem flogið var frá Keflavík til Reykjavíkur í dag. 20.12.2022 15:32