Talíbanar ná síðasta vígi stjórnarinnar í norðurhluta Afganistan Talíbanar náðu í dag borginni Mazar-e-Sharif í norðurhluta Afganistan á sitt vald. Borgin er sú fjórða stærsta í landinu. Talíbanar ráða nú ríkjum í stórum hluta landsins og nálgast höfuðborgina Kabúl óðfluga. 14.8.2021 23:54
Tala látinna á Haítí er komin í 304 Minnst 304 hafa látist eftir að öflugur jarðskjálfi varð á Haítí fyrr í dag. Hundruðir eru særðir og mikils fjölda er enn saknað. 14.8.2021 23:02
Endurnýjun á flokksforystu Sjálfstæðisflokks sé ekki ávísun á fylgisaukningu Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, telur vangaveltur Páls Magnússonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um hvort fullreynt sé að flokkurinn nái árangri með núverandi forystu, geta verið vísir að ákalli um að stokkað verði upp í flokksforystunni á næstu árum, en bendir á að endurnýjun á flokksforystu sé ekki ávísun á fylgisaukningu. 14.8.2021 22:22
Gylfi Þór verður áfram laus gegn tryggingu Gylfi Þór Sigurðsson hefur gengið laus gegn tryggingu allt frá því að hann var handtekinn í síðasta mánuði. Ákveðið hefur verið að sama fyrirkomulag muni gilda til 16. október. 14.8.2021 21:05
Kaley Cuoco býðst til að kaupa hestinn sem var laminn á Ólympíuleikunum Leikkonan Kaley Cuoco, sem flestir þekkja eflaust úr þáttunum The Big Bang Theory, hefur sagst munu borga hvaða verð sem er til að bjarga hestinum sem laminn var af þýskum þjálfara á Ólympíuleikunum. 14.8.2021 20:32
Minnst 44 eru látin í flóðum í Tyrklandi Gríðarleg flóð hafa verið í Tyrklandi síðustu daga. Tala látinna er komin í 44. 14.8.2021 19:52
Ekki sé hægt að segja Afgönum að sjá um sig sjálfir Árni Arnþórsson, aðstoðarrektor American University of Afghanistan, segir gífurlega erfitt að geta ekkert gert fyrir samstarfsfólk sitt sem grátbiður hann um að bjarga sér því það veit að líf þess gæti endað á næstu dögum vegna uppgangs Talíbana í Afganistan. Umheimurinn geti ekki lokað augunum fyrir því sem er að henda í landinu. 14.8.2021 19:27
Nokkur erill hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í dag Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð að Fljótshlíð rétt fyrir klukkan þrjú í dag vegna fjórhjólaslyss en ákveðið var að fara frekar í Landeyjar þar sem kona hafði slasast í útreiðartúr. 14.8.2021 18:34
Jón Gnarr er kominn með Covid-19 Jón Gnarr er einn þeirra 130 sem greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær. Hann segist ekki vita hvar hann smitaðist en þó telur hann ekki ólíklegt að það hafi verið í Leifsstöð. 13.8.2021 16:34
Starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða greindist smitaður í gær Starfsmaður HVEST greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Tveir samstarfsmenn og átta skjólstæðingar starfsmannsins eru komnir í sóttkví. 13.8.2021 14:08