Tala látinna komin yfir hundrað Enn er verið að meta manntjón vegna jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem skók vestanverða Kólumbíu í dag. Tala látinna er komin yfir hundrað að sögn forseta landsins. 10.8.2026 18:53
Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Helga Lára Haarde hefur verið ráðin aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Hún hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum. 10.8.2026 17:44
Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Lögreglan á Suðurlandi reynir nú að hafa uppi á breskum hjónum sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl á bílastæði við Eldgjá í Skaftártunguafrétti á laugardaginn. Lögreglu barst tilkynning um málið í gær og reynir nú að rekja ferðir fólksins. 10.8.2026 17:05
Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 skók vestanverða Kólumbíu og nágrannaríkið Ekvador í dag. Minnst tuttugu og sex eru sagðir hafa látist og mikið tjón orðið á byggingum við upptök jarðskjálftans. 10.8.2026 13:50
Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. 9.8.2026 17:32
Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Einn var fluttur á slysadeild vegna alvarlegrar líkamsárásar í heimahúsi í Kópavogi í dag. 9.8.2026 16:43
Rósa Björk segir já Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, hyggst segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Í stefnu Vinstri grænna er því haldið fram að hagsmunum landsmanna sé best komið utan Evrópusambandsins en rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast þó segja já. Hún segist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins. 9.8.2026 16:06
Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur hafnað að taka þátt í fimmtán punkta áætlun Bandaríkjaforseta um frið á Gasa. Friðarráð Trumps greindi frá því í síðustu viku að þegar hefði náðst samkomulag við Hamas-samtökin um afvopnun á svæðinu. 9.8.2026 15:23
Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Dyrum Kattakaffihússins, fyrsta og eina kattakaffihúss landsins, á Bergstaðastræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað þann 23. ágúst næstkomandi fyrir fullt og allt eftir átta ára rekstur. 9.8.2026 14:35
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Hópur manna kastaði grjóti í átt að grínista og leikkonu sem var á leið sinni heim af Gleðigöngunni í gær í Vesturbæ Reykjavíkur. Atvikið hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún lendir í slíkri árás en bakslag í málefnum hinsegin fólks sé raunverulegt og samfélaginu beri skylda að bregðast við. 9.8.2026 14:18