Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Íkveikja í mið­borginni

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um íkveikju í íbúðarhúsi í miðbæ Reykjavíkur í dag. Gerandi er enn ókunnur en málið er í rannsókn. Minniháttar skemmdir urðu á húsinu. 

Á­varp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“

Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla og missir sem minni á hvað skipti mestu máli var meðal þess sem var forseta Íslands hugleikið í ávarpi sínu við þingsetningu í dag. Halla Tómasdóttir setti 158. löggjafarþing í dag. 

Funduðu í Moskvu um enda­lok stríðsins

Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með sendinefnd Bandaríkjaforseta í Moskvu í dag. Sendinefndina skipa erindrekar Donalds Trump og Hvíta hússins, Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasonur Trumps, en tilgangur hennar er að binda enda á innrásarstríðið.

Posarnir komnir í lag á ný

Posar Teya sem tengdir eru við kassakerfi eru komnir í lag á ný og kerfið sem olli biluninni er orðið stöðugt að sögn fjártæknifyrirtækisins. Langar raðir mynduðust víða vegna bilunarinnar sem kom upp um tuttugu mínútur í þrjú í dag. 

Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul

Þriggja bíla árekstur varð rétt austan við Sólheimajökul á sjöunda tímanum í kvöld. Fjórir voru fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar vegna slyssins. Þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Langar bílaraðir hafa myndast þar sem veginum hefur verið lokað meðan á vinnu á vettvangi stendur. 

Vara við manni sem hafi óskað eftir per­sónu­upp­lýsingum nem­enda

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema.

Banda­ríkjaher gerði á­rásir á þrjú írönsk skip

Bandaríkjaher hefur gert árás á þrjú írönsk olíuskip eftir að Íranir skutu skotflaugum að tveimur bandarískum herskipum, að sögn aðgerðarstjórnar hersins. Árásir milli ríkjanna tveggja hafa færst í aukana síðastliðna viku.

Bilun hjá Teya olli löngum röðum

Langar biðraðir mynduðust í Ikea og víða annars staðar í dag vegna bilunar hjá fjártæknifyrirtækinu Teya. Bilunin kom upp um tuttugu mínútur í þrjú.

Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs

Í gær var haldið opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs en það er sérhannað með þarfir kvenna og barna í huga. Anton Brink ljósmyndari var á staðnum og myndaði nýja athvarfið og gesti opnunarhófsins. 

Sjá meira