Gosinu við Sundhnúksgíga lokið Gosinu við Sundhnúksgíga er lokið. Slokknað er í öllum gígum, en glóð er enn sjáanleg. Erfitt er þó að segja til um framhaldið. 21.12.2023 11:43
Tekur við sem forstöðumaður í Salnum í Kópavogi Bjarni Haukur Þórsson leikari hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann tekur við stöðunni af Aino Freyja Järvelä. 21.12.2023 11:19
Letrið of smátt og lýsingarorðin of jákvætt hlaðin Mat Neytendastofu er að GS Verslanir ehf, rekstraraðila GS Búlluna, hafi brotið gegn auglýsingarbanni með því að birta myndir og myndbönd af nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær á samfélagsmiðlum. Hefur félaginu verið bannað að birta auglýsingarnar. 21.12.2023 11:04
Með um 700 grömm af kókaíni falin innvortis Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu til þrettán mánaða fangelsisvistar vegna smygls á um 700 grömmum af kókaíni til landsins. 21.12.2023 10:33
Telja alvarleg brot hafa verið framin varðandi samruna N1 og Festi Samkeppniseftirlitið hefur sent Festi andmælaskjal vegna ætlaðra brota á skilyrðum sem fram koma í ákvörðun frá árinu 2019 um samruna N1 og Festi. Það sé mat Samkeppniseftirlitsins að hin meintu brot séu alvarleg og að til álita komi að beita viðurlögum. Festi hafnar því að hafa brotið gegn ákvæðum sáttarinnar. 21.12.2023 09:09
Gosvirkni áfram sýnileg en minni en í gær Gosvirkni við Sundhnúksgíga er áfram sýnileg, en virðist heldur minni en í gær. 21.12.2023 08:43
Dæmdur fyrir smygl á tvö þúsund töflum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla samtals um tvö þúsund töflum af Oxycontin og fleiri lyfseðilsskyldum efnum til landsins með flugi í febrúar síðastliðnum. 21.12.2023 08:05
Staðan á byggingarmarkaði versnar og gjaldþrotum fjölgar mikið Staða á byggingarmarkaði hefur versnar mikið sem lýsir sér í að minna er flutt inn af byggingarhráefnum, skuldsetning byggingarverktaka hefur aukist og gjaldþrotum í byggingariðnaði hefur fjölgað mikið. Sölutími lítilla íbúða hefur styst samfellt frá í apríl, en merki eru um að jafnvægi sé að nást á fasteignamarkaði. 21.12.2023 07:33
Hæg norðan- og norðvestanátt á landinu Lægðin sem gekk yfir landið í gær er nú við vesturströnd Noregs og hefur hún dýpkað talsvert síðasta hálfa sólarhringinn og mun því valda illviðri í Norður-Evrópu í dag. 21.12.2023 07:12
Þórdís Lind nýr forstöðumaður hjá N1 Þórdís Lind Leiva hefur verið ráðin forstöðumaður orkusviðs N1 og hefur hún þegar hafið störf. 20.12.2023 08:27