Fréttaþulurinn Bernard Shaw er látinn Bandaríski fréttaþulurinn Bernard Shaw, sem starfaði lengi sem aðalfréttaþulur bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN, er látinn, 82 ára að aldri. 8.9.2022 14:27
Réttur fjöldi marka gæti gefið 650 milljónir króna Íslenskar getraunir mun síðar í mánuðinum taka upp nýjan getraunaleik sem felst í því að þátttakendur giska á hversu mörk verði skoruð í heild í hverjum þeim þrettán leikja sem eru á hinum hefðbundna enska getraunaseðli. Leikurinn verður nefndur XG og er það vísun í „Expected goals“ – mörkum sem reiknað sé með. 8.9.2022 14:00
Mesta hækkun stýrivaxta í sögu Seðlabanka Evrópu Seðlabanki Evrópu hefur ákveðið að hækka strýrivexti sína um 0,75 prósentustig, úr 0,5 í 1,25 prósent. Stýrivaxtahækkunin er sú mesta í sögu bankans frá árinu 1998. 8.9.2022 12:55
Drottningin undir sérstöku eftirliti lækna Elísabet önnur Bretlandsdrottning er nú undir sérstöku eftirliti lækna í Balmoral-kastalanum í Skotlandi. Ákvörðun þessa efnis var tekin í kjölfar þess að heilsu hennar hrakaði í morgun. Allir í nánustu fjölskyldu drottningar eru þegar komin til Balmoral eða eru nú á leiðinni þangað. 8.9.2022 11:51
Matthías frá Arion banka til Héðins Matthías Stephensen hefur verið ráðinn fjármálastjóri Héðins. Hann kemur frá Arion banka þar sem hann hefur starað frá 2011, síðast sem forstöðumaður rekstrar og sölu á viðskiptabankasviði, ásamt því að vera innlánastjóri bankans. 8.9.2022 10:09
Lífstíðarfangelsi fyrir kennaramorðin í Malmö Dómstóll í Malmö í Svíþjóð hefur dæmt átján ára karlmann, Fabian Cederholm, í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt tvo kennara við framhaldsskólann Malmö Latin í vor. 8.9.2022 09:44
Bein útsending: Orkuskipti á hafi – Raunsæi, vonir og væntingar Orkuskipti á hafi verður umræðuefnið á fundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem hefst klukkan níu í dag. 8.9.2022 09:00
Ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Dohop Ingunn Svala Leifsdóttir hefur verið ráðin nýr framkæmdastjóri rekstrar hjá Dohop (e. COO) og mun hún sem slíkur bera ábyrgð á fjármálum og rekstri félagsins. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn Dohop. 8.9.2022 08:58
Margrét frá Brunni Ventures og til Transition Labs Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir verið ráðin sem yfirmaður rekstrar hjá Transition Labs. Hún var áður fjárfestingarstjóri hjá Brunni Ventures en þar á undan starfaði hún sem aðstoðarforstjóri Carbon Recycling International. 8.9.2022 08:51
Verður forstjóri Icelandic Water Holdings Reza Mirza, forstjóri Icelandic Glacial í Bandaríkjunum, hefur verið gerður að forstjóra samstæðunnar Icelandic Water Holdings. 8.9.2022 08:45