Ólafur Þór vill leiða lista VG í Kópavogi Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram til að leiða lista Vinstri grænna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara 14. maí næstkomandi. 2.2.2022 07:06
Suðvestanátt, frost og víða él Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðvestanátt í dag, þrír til tíu metrar á sekúndu, og víða él en úrkomulítið norðaustantil. Frost verður á bilinu núll til tíu stig yfir daginn. 2.2.2022 06:51
Forseti Gíneu-Bissaú segir marga látna eftir tilraun til valdaráns Umaro Cissoko Embaló, forseti Afríkuríkisins Gíneu-Bissaú, segir marga liðsmenn öryggissveita landsins látna eftir tilraun hóps manna til valdaráns í gær. Embaló segir að búið sé að tryggja öryggi í landinu á ný eftir það sem hann kallar „misheppnaða árás á lýðræðið“. 2.2.2022 06:39
Ráðinn framkvæmdastjóri hjá YGG Björgvin Stefán Pétursson lögfræðingur hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri hjá nýsköpunarfyrirtækinu Yggdrasil Carbon ehf. 1.2.2022 13:16
Karlmaður á áttræðisaldri lést af völdum Covid-19 í Sunnuhlíð Karlmaður á áttræðisaldri lést af völdum Covid-19 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi um helgina. 1.2.2022 11:17
1.421 greindist innanlands í gær 1.421 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 36 á landamærum. 1.2.2022 10:14
Ráðinn mannauðsstjóri SaltPay á Íslandi Arnar Sveinn Geirsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri SaltPay á Íslandi. 1.2.2022 10:07
Þessi fjórtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Fjórtán manns taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fer dagana 3. til 5. mars næstkomandi. 1.2.2022 08:45
Fróði ráðinn til Frumtaks Fróði Steingrímsson lögmaður hefur gengið til liðs við Frumtak þar sem hann mun sinna lögfræðilegum málefnum fyrir félagið og taka þátt í þróun á starfsemi þess. Þá mun hann veita félögum í eignasafni Frumtakssjóðanna ráðgjöf og stuðning. 1.2.2022 08:35
Deildu hart um ástandið á landamærum Rússlands og Úkraínu Rússar og Bandaríkjamenn deildu hart á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í New York í nótt. 1.2.2022 07:57