Hildur og Elín Valgerður í stjórnendastöður hjá Hörpu Hildur Ottesen hefur tekið við starfi markaðs- og kynningarstjóra Hörpu og Elín Valgerður Margrétardóttir hefur verið ráðin í nýtt starf mannauðs- og gæðastjóra Hörpu. 22.12.2021 07:15
Yfirgnæfandi líkur á rauðum jólum suðvestantil Veðurstofan spáir norðaustlægri eða breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og dálitlum éljum við norður- og austurströndina í dag. Annars staðar verður víða léttskýjað og frost núll til tíu stig þar sem kaldast verður í innsveitum á Norðausturlandi, en frostlaust syðst. 22.12.2021 07:10
Munu fljúga tvisvar í viku til Vestmannaeyja Samkomulag hefur náðst milli flugfélagsins Ernis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um að Ernir muni sinna áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja tvisvar í viku. Flogið verður á mánudögum og föstudögum. 21.12.2021 14:58
Tuttugu milljónir til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey Ríkisstjórnin hyggst veita tuttugu milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. 21.12.2021 14:48
Leikskólakennarar lýsa yfir vonbrigðum með að leikskólum verði ekki lokað Stjórnir Félags leikskólakennara (FL) og Félags stjórnenda leikskóla (FSL) hafa lýst yfir vonbrigðum með þá ákvörðun að leikskólum verði ekki lokað milli jóla og nýárs vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar. 21.12.2021 13:48
Þórólfur vill endurvekja sóttkví við komuna til landsins Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til að allir farþegar á leið til landsins verði krafðir um neikvætt PCR-próf, sem ekki er eldra en tveggja sólarhringa gamalt, við byrðingu erlendis. Þá skulu allir farþegar með íslenska kennitölu fara í PCR-próf á heilsugæslunni innan tveggja sólarhringa eftir komu og sæta sóttkví þar til neikvæð niðurstaða liggur fyrir. 21.12.2021 13:30
Jón tók Nönnu fram yfir Þorstein Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur skipað Einar Karl Hallvarðsson, ríkislögmann í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Suðurlands frá 28. febrúar 2022. Hann hefur sömuleiðis skipað Nönnu Magnadóttur, formann úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá 3. janúar 2022. 21.12.2021 12:59
286 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri 286 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 106 af þeim 286 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 37 prósent. 180 voru utan sóttkvíar, eða 63 prósent. 21.12.2021 11:01
Fjögur sóttu um embætti forstöðumanns Rannís Fjögur sóttu um embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands sem auglýst var til umsóknar á dögunum. 21.12.2021 10:46
Guðlaug Arnþrúður, Guðrún Anny og Hjalti til Landsbankans Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir, Guðrún Anny Hálfdánardóttir og Hjalti Harðarson hafa öll verið ráðin í stjórnendastöður hjá Landsbankanum. 21.12.2021 10:34