Gular viðvarnir gefnar út vegna leifa fellibylsins Larry Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassrar suðvestanáttar sem mun herja á landsmenn á suður og vesturhluta landsins á sunnudagskvöld og fram á mánudag. 10.9.2021 14:03
Ný ríkisstjórn loks tekin við í Líbanon Ný ríkisstjórn hefur loks tekið við í Líbanon, um þrettán mánuðum eftir að sú síðasta hrökklaðist frá völdum í kjölfar spreningarinnar miklu í höfuðborginni Beirút í ágúst 2020. 10.9.2021 13:46
Tekur við starfi forseta samfélagssviðs af nýráðnum rektor Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin sviðsforseti samfélagssviðs Háskólans í Reykjavík, en undir sviðið heyra sálfræðideild, viðskiptadeild, lagadeild og íþróttafræðideild. 10.9.2021 13:24
25 greindust innanlands Alls greindust 25 með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrettán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 52 prósent. Tólf voru utan sóttkvíar, eða 48 prósent. 10.9.2021 10:53
Hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði lækkar í fyrsta sinn síðan í janúar Nokkuð hefur dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum, en á höfuðborgarsvæðinu dróst fjöldi kaupsamninga saman um 20 prósent á milli mánaðanna júní og júlí og um 25 prósent miðað við júlí í fyrra. Verð á sérbýli hækkar áfram meira en verð íbúða í fjölbýli og þá lækkar hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði í fyrsta sinn síðan í janúar. 10.9.2021 08:32
Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10.9.2021 08:00
Lítilsháttar skúrir víða um land Spáð er suðvestan og vestan fimm til tíu metrum á sekúndu í dag og lítilsháttar skúrir víða um land. Suðaustantil á landinu verður hins vegar yfirleitt þurrt og bjart, og það léttir einnig til á Vestfjörðum með morgninum. 10.9.2021 07:25
Gefa ríkisstjórnarflokkunum falleinkunn í umhverfisvænni landbúnaðarstefnu Þrenn náttúruverndarsamtök gefa ríkisstjórnarflokkunum þremur nær algera falleinkunn hvað varðar umhverfisáherslur þeirra í landbúnaðarmálum. Stefna þriggja stjórnarandstöðuflokka hlaut náð fyrir augum þeirra. 9.9.2021 15:45
Tekur við sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar Otti Rafn Sigmarsson var kosinn nýr formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar á aðalfundi félagsins um síðustu helgi. 9.9.2021 14:52
Maður féll í sjóinn á Granda Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Granda í Reykjavík upp úr hádegi í dag eftir að tilkynning barst um mann sem hafði fallið í sjóinn. 9.9.2021 12:59