Forsætisráðherra Eistlands segir af sér í skugga mútumáls Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, hefur ákveðið að segja af sér. Frá þessu greindi forsætisráðherrann í morgun en þrýstingur á Ratas hefur aukist mikið síðustu misserin vegna mútumáls sem fjöldi háttsettra stjórnmálamanna í landinu hefur verið bendlaður við. 13.1.2021 08:52
Öll sýni af starfsfólki hafa enn sem komið er reynst neikvæð Enn sem komið er hafa öll sýni af starfsfólki á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, deild 14 EG, reynst neikvæð eftir að sjúklingur á deildinni greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. 13.1.2021 08:19
Breski fjölmiðlamógúllinn David Barclay er látinn Breski auðjöfurinn og fjölmiðlamógúllinn Sir David Barclay er látinn, 86 ára að aldri. 13.1.2021 08:12
Hægist á fasteignamarkaði og sölutími íbúða aldrei styttri Vísbendingar eru um að aðeins sé tekið að hægjast á fasteignamarkaði eftir mikið líf síðan í sumar en aðeins dró úr fjölda útgefinna kaupsamninga og veltu í nóvember samanborið við mánuðinn á undan. 13.1.2021 07:54
Mild og vætusöm suðaustanátt og víða hvöss Útlit er fyrir fremur milda og vætusama suðaustanátt í dag og víða hvassa. Seinnipartinn fer svo að lægja og dregur jafnframt talsvert úr úrkomu, fyrst um landið vestanvert. 13.1.2021 07:28
Sinovac með rétt rúmlega 50 prósent virkni Kínverska bóluefnið Sinovac sem þróað var gegn Covid-19 virðist aðeins hafa rétt rúmlega 50 prósent virkni ef marka má niðurstöður klínískra rannsókna í Brasilíu. 13.1.2021 07:18
Þingmenn Repúblikana snúast gegn Trump Kapphlaup Demókrata á Bandaríkjaþingi til að koma Donald Trump forseta frá völdum með ákæru fyrir brot í starfi virðist vera að fá nokkurn byr í seglin en nú þegar hafa þó nokkrir Repúblikanar sagst ætla að samþykkja tillöguna. 13.1.2021 07:14
Umferð í Vaðlaheiðargöngum dróst saman um 20 prósent milli ára Heildarumferð í Vaðlaheiðargöngum á árinu 2020 var 414 þúsund ferðir, um 100 þúsund færri ferðir en árið 2019. Hljómar samdrátturinn því upp á 19,5 prósent milli ára. 12.1.2021 14:30
Spilavítaeigandinn Sheldon Adelson er látinn Bandaríski auðjöfurinn Sheldon G. Adelson, sem rak spilavíti og var lengi einn mest áberandi maðurinn í viðskiptalífinu í Las Vegas, er látinn. Hann varð 87 ára. 12.1.2021 14:07
Mesti samdráttur í losun í Bandaríkjunum frá lokum seinna stríðs Losun á gróðurhúsalofttegundum í Bandaríkjunum fór á síðasta ári í fyrsta skipti á síðustu þremur áratugum niður fyrir það magn sem var árið 1990. Loftslagsrannsóknafyrirtækið Rhodium áætlar að samdrátturinn hafi numið um 10 prósent milli ára og þannig verið sá mesti frá lokum seinna stríðs. 12.1.2021 13:35