Pétur Thor tekur við sem framkvæmdastjóri Freyju Pétur Thor Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Freyju. Hann tekur við stöðunni af Ævari Guðmundssyni. 3.1.2020 09:57
Sunna Ósk til Kjarnans Sunna Ósk Logadóttir fréttamaður hefur verið ráðin til Kjarnans og hefur nú þegar hafið störf. 3.1.2020 09:14
Bætur í Guðmundar- og Geirfinnsmálum greiddar í þessum mánuði Ríkið mun greiða alls 759 milljónir króna í miskabætur til málsaðila og afkomenda í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmála síðar í þessum mánuði. 3.1.2020 07:28
Bandaríkin réðu einn valdamesta mann Írans af dögum Bandaríkjamenn réðu einn háttsettasta mann íranska byltingarvarðarins af dögum í Bagdad í Írak í nótt. 3.1.2020 06:42
21 látinn í flóðum í Jakarta Gríðarlegt úrhelli hefur verið á svæðinu, það mesta í 24 ár hið minnsta. 2.1.2020 10:09
Yfirmaður herafla Taívans fórst í þyrluslysi Sjö manns hið minnsta fórust þegar taívönsk herþyrla hrapaði í morgun. 2.1.2020 08:45
Páfinn biðst afsökunar á að hafa slegið á hönd konu Frans páfi hefur beðist afsökunar á að hafa slegið í hönd konu þar sem hún reyndi að toga hann til sín á Péturstorginu í Páfagarði á gamlársdag. 2.1.2020 08:39
Fyrrverandi kærasti Bobbi Kristina Brown er látinn Nick Gordon, fyrrverandi kærasti Bobbi Kristina Brown, dóttur söngkonunnar Whitney Houston, er látinn. Hann lést þrítugur að aldri. 2.1.2020 08:06
Dauðsföllum í flugslysum í farþegaflugi fækkaði um helming Á síðasta ári létust 257 í flugslysum stórra farþegavéla samanborið við 534 árið 2018. 2.1.2020 07:41
Kurz og Græningjar náðu saman Austurríski þjóðarflokkurinn (ÖVP) og Græningjar þar í landi hafa náð saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir nokkurra mánaða viðræður. 2.1.2020 07:20