Óvarkárt orðalag um afbrot ýtir undir fordóma „Þetta snýst fyrst og fremst um orðanotkun. Ég held að það væri farsælla fyrir alla að sleppa því að nota þetta og hugsa um þetta á annan hátt,“ segir Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur en hún telur óvarkárt orðalag um afbrot ala á fordómum. 27.11.2022 21:14
Afsláttardagar færa til jólaverslun Miklir afsláttardagar standa nú yfir í verslunum að erlendri fyrirmynd. Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir landsmenn duglega að nýta sér afslættina, sem séu kærkomnir svona rétt fyrir jól. 27.11.2022 18:36
Neitaði að yfirgefa lögreglustöð þrátt fyrir að vera laus úr haldi Ofurölvi einstaklingur sem fluttur var á lögreglustöð í nótt neitaði að fara heim þrátt fyrir að vera laus úr haldi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en talsverður erill var hjá lögreglunni í nótt. 27.11.2022 17:48
Jón Svanberg Hjartarson ráðinn framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar Jón Svanberg Hjartarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar ohf. og mun hann hefja störf 1. janúar 2023. Jón stundaði nám við Lögregluskólann 1993 - 1996 og er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands frá 2018. Auk þess hefur Jón lokið stjórnunarnámi við Lögregluskólann og Endurmenntun HÍ ásamt námi í mannauðsstjórnun hjá Endurmenntun HÍ. 25.11.2022 16:24
Semja um móttöku allt að 100 flóttamanna Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Árborg. Samningurinn var undirritaður á Selfossi og kveður á um að sveitarfélagið taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 100 flóttamönnum fram til 31. desember 2023. 25.11.2022 15:38
Telja lokun Sogns hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fanga, aðstandendur og samfélagið Fyrirhuguð lokun Sognar er ekki í takt við nýjustu rannsóknir og væri stórt skref aftur á bak í fangelsismálum á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun fagráðs Aðstoðar eftir afplánun vegna nýlegra frétta af hugsanlegri lokun fangelsisins að Sogni. 25.11.2022 14:42
346 manns sektaðir vegna nagladekkjanotkunar á síðustu fimm árum Á undanförnum fimm árum hafa rúmlega 350 ökumenn verið sektaðir vegna nagladekkjanotkunar hér á landi. 25.11.2022 12:51
Fyrirhugað að setja heildarlög um sanngirnisbætur Áform um lagasetningu varðandi svokallaðar sanngirnisbætur hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða lagaumgjörð sem skapa myndi farveg fyrir þá einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur. 25.11.2022 11:25
Erfiðir tímar að baki hjá Sigur Rós sem blæs til veislu í kvöld „Þetta er náttúrulega alltaf svolítið spes. Það er öðruvísi að koma heim til Íslands og spila hér. Það eru aðeins meiri taugar,“ segir Georg Hólm bassaleikari Sigur Rósar en sveitin mun halda stórtónleika í Laugardalshöll í kvöld. Fimm ár eru liðin frá því sveitin spilaði hér á landi. 25.11.2022 10:43
Styrmir Sigurjónsson hættir hjá Arion banka Styrmir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bankanum. 24.11.2022 16:53