600 óbólusettir starfsmenn Landspítalans grafalvarlegt mál Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar vill vart trúa því að 600 starfsmenn Landspítalans séu óbólusettir og það hljóti að koma til álita hjá stjórnendum spítalans að breyta því hvaða afskipti þeir hafa af viðkvæmum sjúklingum. 27.10.2021 18:00
Þórólfur svartsýnn og segir ekki lengur samstöðu um aðgerðir Sóttvarnalæknir er afar svartsýnn vegna fjölda smitaðra síðustu daga. Hann óttast álag á spítalann og róðurinn sé þungur núna þegar sóttvarnaaðgerðir njóti minni stuðnings í samfélaginu, þar á meðal lítils stuðnings meðal ráðherra. 27.10.2021 12:02
Allt að ársbið eftir sálfræðingi Dæmi eru um að fólk þurfi að bíða í allt að ár eftir sálfræðiaðstoð hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Skortur er á sálfræðingum að sögn framkvæmdastjóra geðheilbrigðismála. 26.10.2021 22:00
Gætu séð til lands í næstu eða þarnæstu viku Forsætisráðherra segir að flokkarnir þrír sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum gætu farið að sjá til lands í næstu eða þarnæstu viku. Búið er að setja niður texta um einstaka málaflokka en heildarmyndin liggur ekki fyrir. 26.10.2021 13:11
Leggja drög að stjórnarsáttmála Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna eru farnir að leggja drög að stjórnarsáttmála samkvæmt heimildum fréttastofu. Niðurstöðu gæti verið að vænta í næstu eða þarnæstu viku. 25.10.2021 18:30
Tíu milljarða króna sementsverkefni í Ölfusi Stefnt er að því að flytja milljón tonn af íblöndunarefni í sement úr landi frá Þorlákshöfn. 25.10.2021 13:02
Lögmaður Antons harðorður: „Mesta klúður sem ég hef séð“ Steinbergur Finnbogason lögmaður vill meina að rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu sé eitt það mesta klúður sem hann hefur orðið vitni að. Hann boðar skaðabótamál fyrir hönd Antons Kristins Þórarinssonar, skjólastæðins síns. 21.10.2021 10:43
„Það sem öll njósnakerfi heimsins ganga út á“ Formaður Viðreisnar vill fund með ráðherrum til að ganga úr skugga að þjóðaröryggi Íslendinga sé ekki ógnað með sölu á Mílu, dótturfélagi Símans, til fransks fyrirtækis. Tryggja verði að viðkvæmar upplýsingar rati ekki í rangar hendur. 19.10.2021 18:29
Horft til Íslands og Grænlands eftir rafeldsneyti Á meðan leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna ræða hvert Ísland skuli stefna í nýtingu grænnar orku voru þau mál ofarlega á baugi á Arctic Circle. 19.10.2021 09:17
Dagur segir Eyþór skjóta pólitískum púðurskotum Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja reisa 3.000 íbúðir án tafar innan borgarmarkanna. Borgarstjóri segir það útspil pólitískt púðurskot. Þjóðarátakið sem verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir í uppbyggingu húsnæðis sé nú þegar leitt af borgaryfirvöldum. 18.10.2021 14:32