Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Áform um að breyta Valhöll við Háaleitisbraut í hótel með allt að níutíu herbergjum hafa fengið samþykki umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Breytingunni á deiliskipulagi hefur verið vísað til borgarráðs. 14.10.2026 22:00
Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Súkkulaðimyndir á umbúðum Swiss Miss kakódufts gefa ranga hugmynd um innihald vörunnar, að mati dansks lögmanns sem hefur kært niðurstöðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til atvinnuvegaráðuneytisins. Eftirlitið telur myndirnar vísa til bragðsins og vill að niðurstaða þess standi. 14.10.2026 20:00
Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Skoða á sérstök sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir ábendingar foreldra um erfiða og óörugga aðkomu. Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir að ekki hafi verið nægilega hugað að aðgengi foreldra sem koma með börn sín á bíl. 14.10.2026 16:45
Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Ekkert fjárhagslegt svigrúm er hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum, segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. Hvorki hafi verið gerður samningur um kaup ríkisins á þjónustunni né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku. Hún segir smáslys ekki vera meginvanda bráðamóttöku Landspítalans. 14.10.2026 16:33
Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Áform um að takmarka lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána við 25 ár eru sýndarmennska, segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir breytinguna gott fyrsta skref en skoða þurfi áhrif hennar á fyrstu kaupendur og aðra hópa. 14.10.2026 16:01
Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Fólk hefur farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að endurskoða þurfi hvernig öryggi nemenda og kennara sé tryggt í skólunum. Hún segir samfélagið hafa breyst og kennarar óttast um öryggi sitt. Hún hafi heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram. 14.10.2026 15:10
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Gjald fyrir akstursþjónustu eldra fólks í Kópavogi gæti hækkað úr 673 krónum í 1.772 krónur á ferð samkvæmt tillögu sem velferðar- og mannréttindaráð bæjarins hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Hækkunin næmi rúmlega 163 prósentum hjá þeim sem falla í hærri tekjuflokk þjónustunnar. 14.10.2026 14:12
Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Seltjarnarnesbær hefur samþykkt tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann og lækkun greiðslna til bæjarfulltrúa. Greiðslurnar verða jafnframt tengdar mætingu á bæjarstjórnarfundi. Aðgerðirnar eru liður í því að bregðast við þungri rekstrarstöðu bæjarins. 14.10.2026 11:32
Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Atvinnumannahnefaleikar eiga áfram að vera bannaðir á Íslandi, að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum til að heimila þá og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða. 14.10.2026 10:19
Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur. 14.10.2026 07:01