Telur ekkert að því að sitjandi forsætisráðherra bjóði sig fram Forsætisráðherra baðst lausnar úr embætti sínu í dag til þess að bjóða sig fram til forseta Íslands. Fráfarandi forseti segir atburðarásina ekki óheppilega en ráðherra telur ríkisstjórnina ekki falla gangi hún frá borðinu. 7.4.2024 19:41
Þjóðin geti krafist þess að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag Prófessor í stjórnmálafræði segir þjóðina geta sett þá kröfu á leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag. Hann telur líklegast að formaður Framsóknarflokksins taki við embættinu. 7.4.2024 12:08
Jakob Reynir Aftur reynir aftur Maður sem fær ekki að bera millinafnið Aftur ætlar að mótmæla úrskurði mannanafnanefndar sem hafnaði nafninu. Hann segir nafnið ansi táknrænt fyrir sig en hann sneri blaðinu við fyrir tæpum fjórum árum síðan eftir að hafa verið á slæmum stað í lífinu. 18.3.2024 19:35
Foreldrar megi ekki vera vondir við sjálfa sig eftir stórt áfall Sérfræðingur í slysavörnum barna segir það geta verið hættulegt fyrir ungabörn að sofa uppi í rúmi hjá foreldrum sínum. Hún segir foreldra sem lenda í áfalli ekki mega kenna sjálfum sér um. 18.3.2024 12:20
Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. 17.3.2024 19:48
Dóttirin hætt komin eftir að hárið flæktist utan um háls hennar Móðir sjö mánaða stúlku sem hefði getað dáið eftir að hár móðurinnar flæktist um háls barnsins á meðan þær mæðgur sváfu er enn í áfalli. Ef ekki hefði verið fyrir nágrannana hefði geta farið mun verr. 17.3.2024 19:15
„Þetta var helvíti á jörðu fyrir mér“ Lára Björk Sigrúnardóttir, 51 árs íbúi í Sandgerði, var með vinum sínum erlendis í borginni Varna í Búlgaríu í febrúar þegar hún veiktist skyndilega og var flutt með sjúkrabíl á St. Martins spítala í borginni. Lára reyndist vera með sýklasótt, sem þróaðist út frá þvagfærasýkingu, og var byrjuð að fá drep í bæði fingur og tær. 16.3.2024 19:45
Engir langtímakjarasamningar án gjaldfrjálsra skólamáltíða Formaður Starfsgreinasambandsins segir það ekki koma til greina að sleppa gjaldfrjálsum skólamáltíðum í langtímakjarasamningum við sveitarfélögin. Hann sakar Sjálfstæðismenn um að notfæra sér verkalýðshreyfinguna í pólitískri skák. 16.3.2024 12:38
Líklegt að loka þurfi vegum vegna veðurs Von er á stórhríð á Vestfjörðum og Snæfellsnesi á morgun, og gætu vindhviður náð allt að 36 metrum á sekúndu. Aðalvarðstjóri á Ísafirði segir að vegna veðursins gæti þurft að ráðast í lokanir á vegum. 16.3.2024 12:09
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við formann Neytendasamtakanna sem segir ótrúlegt hversu mörg mál tengd fyrirtækinu Base Parking rati á borð samtakanna. Fyrirtæki verði að vanda til verka þegar neytendur treysti þeim fyrir eigum sínum, sem í þessum tilvikum eru oft á tíðum mjög dýrar bifreiðar. 16.3.2024 11:59