Fréttamaður

Dóra Júlía Agnarsdóttir

Dóra Júlía er fréttamaður á Lífinu á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Myndaveisla: Sjóð­heit tísku­sýning í Hörpu

Hátíska og elegans einkenndu útskriftarsýningu fatahönnuðarnema sem fór fram í Hörpu síðastliðinn föstudag undir dúndrandi og grípandi tónum. Mikill fjöldi fólks tók púlsinn á framtíð tískunnar og stemningin var góð.

Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum

Athafnakonan Katrín Amni Friðriksdóttir hefur sett fallega íbúð í Lönguhlíð á sölu. Er um að ræða bjarta og fallega 126 fermetra íbúð á tveimur hæðum og er ásett verð tæplega 126 milljónir.

Inn­sýn í heim fata­hönnuða fram­tíðarinnar

List, glæsileiki og tíska blönduðust á skemmtilegan hátt saman í eitt í Hörpu á föstudagskvöld þegar útskriftarnemendur við fatahönnun í Listaháskóla Íslands settu upp tískusýningu. Margt var um manninn og fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu hvert leiðin liggur í tískunni.

Úlfarnir rifu næstum þakið af Austur­bæ

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar rapptvíeykið Úlfur Úlfur steig á svið í Austurbæjarbíói síðastliðinn miðvikudag fyrir troðfullum sal af gestum. Stemningin var gríðarleg og þakið við það að rifna af tónleikasalnum.

Týndi strax 120 þúsund króna sokkum

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl.

Þakk­lát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu

„Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris.

Ellen verður að Dóru á ný

Umdeildi og geisivinsæli þáttastjórnandinn Ellen DeGeneres mun taka þátt í nýrri stuttmynd um trúðfiskinn Nemó og færir sig aftur í hlutverk bláu vinkonu hans Dóru. Ellen er spennt að synda áfram, sem er vísun í frægt atriði úr teiknimyndinni,  en þetta er hennar fyrsta hlutverk í fimm ár. 

Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól

Sumarið mætti síðastliðinn fimmtudag og stjörnur landsins fögnuðu því með stæl yfir sólríka helgina. Mari Järsk bíður spennt eftir sumarbarni, Júnía og Laufey fögnuðu 27 ára afmæli, Unnur Borg er að opna vefsíðu og ástin blómstrar hjá Höllu Vilhjálms og Eiði Smára.

„Var að syrgja pabba þegar mamma dó“

„Það er svo margt sem maður áttar sig ekki á að séu forréttindi. Frá því ég missti foreldra mína hef ég til dæmis alltaf reynt að fá vakt um jólin því ég veit aldrei hvar ég á að vera,“ segir Ragnhildur Björk Ingvarsdóttir sem opnaði sig nýverið á samfélagsmiðlum um sorgina sem fylgdi því að missa báða foreldra sína en í mörg ár reyndi hún að ýta sorginni frá sér. Ragnhildur ræddi við blaðamann um missinn, áfallavinnuna, sorgina og framtíðina.

Varð að vera flottastur í eigin teiti

„Þetta var svo fullkomið augnablik, að ganga um Austurstræti í kjólnum sem ég var búinn að vinna svona lengi að,“ segir hinn tvítugi Ástvaldur Mateusz Kristjánsson en hann fagnaði stórafmæli sínu í glæsilegum kjól sem hann saumaði sjálfur á tæpum þremur mánuðum. Blaðamaður ræddi við hann um tískuna, tilveruna og þessa einstöku flík.

Sjá meira