Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2026 10:43 Frá óeirðum í París um helgina. AP/Thibault Camus Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í evrópskum borgum í Frakklandi, Ítalíu og í Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.
Í samtali við AP-fréttaveituna segir spænskur samfélagsfræðingur að ungt fólk í Evrópu upplifi mikla óvissu og finnist það ekki hafa stjórn á eigin lífi. Þegar sérstakar aðstæður hafi komið saman í heimsálfunni hafi ekki þurft mikinn blossa til að kveikja bál. Sumar borgir Evrópu hafa líkst vígvöllum og nálgast kosningar í stórum ríkjum heimsálfunnar. Má þar meðal annars nefna Frakkland, Ítalíu og Spán. Leiðtogar á hægri væng stjórnmála í Evrópu hafa margir reynt að grípa gæsina og nýta sér ástandið en hægri flokkar voru fyrir að sækja á í könnunum. Margir þeirra hafa kennt innflytjendum um ástandið og hefur Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tekið undir það. Færsla Trumps um Frakkland sem hann birti á Truth Social á mánudaginn. Mótmælin og meðfylgjandi óeirðir má að miklu leyti rekja til hækkandi verðlags og þá sérstaklega til hækkandi orkuverðs, eldsneytisverðs og húsnæðisverðs. Þetta ástand hefur stríð Bandaríkjanna gegn Íran ýtt töluvert undir. Í frétt Reuters segir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi áætlað að stríðið hafi kostað Evrópu um hundrað milljarða evra, sem samsvarar tæpum fjórtán billjónum króna (Tólf núll). Verð á jarðgasi, sem er víða notað til húshitunar, hefur hækkað um 140 prósent og verð á díselolíu hefur tvöfaldast. Í Frakklandi hefur Marine Le Pen, sem leiðir baráttuna um forsetaembættið þar í landi samkvæmt könnunum, gert þetta verðlag að einu af hennar helstu málefnum. Hún vill draga verulega úr opinberum gjöldum á eldsneyti. Svipaða sögu er að segja frá Þýskalandi þar sem leiðtogar flokksins Valkostur fyrir Þýskaland, AfD, hafa verið að koma vel út úr könnunum. Þeir vilja ólmir hefja á nýjan leik kaup á jarðeldsneyti frá Rússlandi. Samkvæmt Reuters má einnig greina sambærilega þróun hjá kjósendum á Ítalíu og í Póllandi. Flokkar sem lengi hafa verið á hægri jaðri stjórnmála þar eru að fá sífellt meira fylgi í könnunum. Nemendamótmæli urðu að óeirðum Segja má að Frakkar eigi sér langa hefð mótmæla. Undanfarnar þrjár vikur hafa nemendur haldið mótmæli víðs vegar um landið þar sem þeir hafa mótmælt slæmum aðbúnaði og fjársvelti menntakerfisins. Ástandið hefur lengi þótt hvað verst í fátækari hverfum Frakklands. Aðrir hópar eins og verkalýðsfélög og aðgerðahópar hafa gengið til liðs við nemendur í Frakklandi og innihalda kröfur hreyfingarinnar nú aðgerðir vegna hækkandi verðlags og niðurskurðaráætlunar yfirvalda. Um helgina varð ákveðinn vendipunktur í mótmælunum í Frakklandi þar sem víða kom til óeirða. Í borgum eins og París, Marseille og Lyon fóru óeirðaseggir ránshendi um verslanir og kveiktu í byggingum og bílum. Einnig var kveikt í skólum. Sjá einnig: Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Í Limoges var kveikt í sögufrægu ráðhúsi og brann byggingin nærri því til grunna. Eldsprengjum var kastað að lögregluþjónum, sem hafa verið sakaðir um að taka á mótmælendum af mikilli hörku. Hundruð hafa særst og þúsundir hafa verið handteknir. Emmanuel Macron, forseti, ávarpaði þjóðina á sunnudaginn þar sem hann fordæmdi óeirðirnar og sakaði fjarvinstri aðgerðasinna um að reyna að ýta undir óreiðu í Frakklandi. Hann sagði að óeirðarseggir myndu greiða fyrir skaðann og að þeir sem hefðu reynt að fella franska lýðveldið yrðu dregnir til ábyrgðar. Aðstæður í gærkvöldi og í morgun hafa verið nokkuð rólegri í Frakklandi eftir að gripið var til útgöngubanna og annarra aðgerða í nokkrum borgum landsins. Íkveikjumaður handtekinn Le Parisien segir að sá sem grunaður er um að hafa kveikt í ráðhúsinu í Limoges hafi verið handtekinn í áhlaupi sérsveitarmanna í morgun. Honum hefur verið lýst sem fjarvinstri öfgamanni og mun hafa verið á lista yfirvalda yfir aðila sem vakta þurfi sérstaklega. Hann var handtekinn í Val-d'Issoire, sem er bær í um fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Limoges. Húsnæðiskreppa á Spáni Á Spáni byrjuðu kennarar að mótmæla í síðustu viku og fóru fram á hærri laun og betri vinnuaðstæður. Það var eftir að nokkuð umfangsmikil mótmæli höfðu staðið yfir í Madríd um nokkuð skeið. Þau hófust eftir að hinni 87 ára gömlu Maricarmen Abascal var vísað úr íbúð sinni. Fasteignafélagið sem átti íbúðina hafði hækkað leiguna umtalsvert svo hún gat ekki greitt hana. Hún hafði búið í þessari íbúð í sjö áratugi en varð fljótt að tákngervingi húsnæðiskreppunnar á Spáni. Hún dó tveimur vikum eftir að hún var borin út. Sjá einnig: Konan sem var borin út er látin Mótmælin vegna útburðarins teygðu sig víðs vegar um Spán og hafa tjaldbúðir verið reistar í nokkrum borgum landsins en þær stærstu eru í Madríd. Ríkisstjórnin reyndi að koma í gegn frumvarpi sem nefnt var í höfuðið á Maricarmen en það gekk ekki eftir og boðaði Pedro Sanchez, forsætisráðherra, til kosninga. Mótmælunum á Spáni er ekki lokið og hefur verið boðað til allsherjarverkfalls í næsta mánuði. Verði af því verður það fyrsta allsherjarverkfall Spánar í fjórtán ár. Sambærileg mótmæli vegna húsnæðiskreppu hafa einnig átt sér stað í Portúgal. Mótmæla verðlagi á Ítalíu Þúsundir hafa mótmælt á götum Ítalíu að undanförnu. Þar hafa mótmælendur kallað eftir fleiri atvinnutækifærum, bættri heilbrigðisþjónustu, betra menntakerfi, betra aðgengi að húsnæði og hærri launum, svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa bændur og vörubílstjórar á Suður-Ítalíu mótmælt háu eldsneytisverði, slæmum vegum og öðru. Þar hafa þeir notað traktora og vörubíla til að loka vegum í mótmælaskyni. Víðast hvar hafa mótmælin farið tiltölulega friðsamlega fram. Óeirðir hafa þó átt sér stað í Turin, Bologna og í Mílanó. Í Mílanó voru að minnsta kosti 271 handteknir, þar af langflestir undir lögaldri, og eru fjórtán lögregluþjónar sagðir slasaðir eftir átök við mótmælendur. Átök í Albaníu Í Albaníu hafa fjölmargir tekið þátt í mótmælum sem hafa að miklu leyti verið keyrð áfram á kröfum um bættar aðstæður í háskólum og kröfum um aðgerðir gegn spillingu. Mótmælendur hafa einnig kallað eftir því að Edi Rama, forsætisráðherra, segi af sér en AP-fréttaveitan segir mótmælin eiga rætur í fyrri mótmælum gegn áætlunum Rama um að selja eyju til Jareds Kushner, tengdasonar Donalds Trump. Mótmælendur krefjast einnig betri heilbrigðisþjónustu og aukins lífeyris. Rama heldur því fram að meðal mótmælenda sé ungt fólk sem hafi verið öfgavætt af myrkum öflum í Evrópu og Bandaríkjunum en þar hefur hann verið að vísa til ANTIFA-hreyfingarinnar í Bandaríkjunum. Hann segir Albaníu vera fórnarlamb vel skipulagðs átaks og árása. Komið hefur til átaka milli mótmælenda og lögregluþjóna sjö daga í röð, samkvæmt frétt BBC.
Evrópusambandið Frakkland Spánn Ítalía Albanía Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Sjá meira