Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Útlit er fyrir rigningarveður á höfuðborgarsvæðinu út vikuna en sól og blíðu á Austurlandi. Nokkuð grátt hefur verið yfir suðvesturhorninu og vindur á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu. Þá hefur nokkur rigning verið á vesturhluta landsins en talsvert þurrara fyrir austan. Veðurfræðingur segir allt stefna í að besta veðrið verði á Suðaustur- og Austurlandi um helgina. 13.7.2026 20:19
„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Kona sem var kærð fyrir rangar sakargiftir eftir að nauðgunarmál hennar var fellt niður segist enn vera að læra að lifa með reynslunni fimm árum síðar. Hún var 23 ára þegar hún var sýknuð og á áfram erfitt með að treysta fólki og vera ein með sjálfri sér. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn grunaður um kynferðisbrot tók hann eigið líf. 13.7.2026 18:57
Lokuðu flugbraut vegna dróna Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað um tíma í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu þegar dróna var flogið nálægt vellinum í leyfisleysi. Hann sást utan flugvallarsvæðis og var flugbrautin opnuð aftur skömmu síðar. 12.7.2026 23:56
Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Breska leikkonan Judi Dench, grínistinn Ricky Gervais og tónlistarkonan Leona Lewis eru meðal þeirra sem skora á atvinnuvegaráðherra að tryggja að hvalveiðum verði hætt við Íslandsstrendur. 12.7.2026 22:58
Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Minnst 27 manns létust þegar eldur kviknaði á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands. Forsætisráðherra landsins greinir frá þessu en slökkvilið var kallað á vettvang rétt eftir miðnætti á mánudag að staðartíma. Sáust þá gestir staðarins flýja út um alelda útidyr. 12.7.2026 22:14
„Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Forvarnarsamtök fordæma ummæli aðstoðarlögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og að lögreglan hafi ekki lokað sölustöðum áfengisnetverslana eftir að sala Smáríkisins var dæmd ólögleg. 12.7.2026 21:40
Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust yfir tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins sem fórnarlömbin voru flutt á. 12.7.2026 19:03
Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferð um Holtavörðuheiði er farin að flæða á ný eftir að henni var lokað vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð myndaðist á heiðinni. Vegagerðin benti ökumönnum á hjáleið um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. 12.7.2026 16:55
Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 12.7.2026 06:00
Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk. 12.7.2026 00:01