Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaramál verða fyrirferðamikil í hádegisfréttum Bylgjunnar. Settur ríkissáttasemjari í deilu Eflingar og SA liggur enn undir feldi eftir vendingar í kjaramálum í Pallborðinu á Vísi. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um að boða nýjan fund. Framkvæmdastjóri SA og formaður Eflingar segjast tilbúin til að fresta verkbönnum og verkföllum ef kallið kemur. Forsætisráðherra segir ekki koma til greina að stjórnvöld stígi inn í deiluna að svo stöddu. 25.2.2023 11:50
Sjálfvirknivæða vinnu heilbrigðisstarfsfólks með gervigreind Gervigreind sem þróuð er af íslensku fyrirtæki er nú notuð til að greina svefnraskanir og svefnsjúkdóma um allan heim. Fyrirtækinu var upphaflega ráðlagt frá því að segja að gervigreind væri notuð í vörum fyrirtækisins því þá myndi enginn læknir treysta þeim - en nú sér forsvarsmaður þess fram á að tæknin geti verið bylting í heilbrigðiskerfinu. 19.2.2023 08:05
Ítrekað keyrt yfir göngustíg þrátt fyrir merkingar og spyr hvort beðið sé eftir dauðsfalli Móðir í Laugarneshverfi segir ökumenn ítrekað aka yfir göngustíg sem fjölfarin er af börnum til þess að komast að World Class í Laugum þrátt fyrir að merkingar sýni að það sé óheimilt. Hún kallar eftir því að Reykjavíkurborg setji upp hindranir fyrir almenna bílaumferð áður en stórslys verður. 15.2.2023 20:10
Erfitt að fara heim frá hamfarasvæðinu í Tyrklandi Hluti íslenska hópsins sem fór út til Tyrklands til aðstoðar vegna jarðskjálfanna kom heim í dag og fékk höfðingjalegar mótttökur. Hópstjóri segir að það hafi verið erfitt að yfirgefa landið þegar hörmungarnar standa enn yfir en það eigi eftir að koma í ljós hvernig þær hafi áhrif á íslenska hópinn. 14.2.2023 23:31
Flutningur á lyfjum og mat gæti stöðvast vegna verkfalla Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu deilir þungum áhyggjum með forstjórum hjúkrunarheimila af verkfalli olíubílstjóra sem hefst á morgun. Flutningur á mat og lyfjum gæti skerst verulega sem hefði gríðarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkvæmasta hóp samfélagsins. 14.2.2023 12:31
„Sú afsökunarbeiðni mun aldrei koma af vörum mínum“ Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fordæmalausa stöðu vera komna upp á íslenskum vinnumarkaði. Hann ætlar ekki að biðja formann Eflingar afsökunar þrátt fyrir að hún hafi krafist þess í dag. 13.2.2023 20:11
Væri lágkúrulegt ef sáttasemjari færi með málið til Hæstaréttar Formaður Eflingar er í skýjunum með sigur í deilu sinni við ríkissáttasemjara sem krafðist að fá félagatal stéttarfélagsins afhent. Hún trúir ekki öðru en að sáttasemjari stígi loks til hliðar svo hægt verði að setjast að samningaborðinu og semja um Eflingarsamning fyrir Eflingarfólk. 13.2.2023 16:38
Nánast enginn launamunur á opinbera og almenna vinnumarkaðnum Launamunur á milli opinbera- og almenna vinnumarkaðarins er nánast horfinn og opinberi markaðurinn því orðinn samkeppnisfær við þann almenna. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu sem að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda kallar á viðbrögð. Velta þurfi því upp hvort verndarákvæði starfsmannalaganna eigi enn rétt á sér? 12.2.2023 09:57
Póstberi vekur athygli fyrir hjálpsemi í Vesturbæ Póstberinn Lorenz hefur vakið athygli fyrir hjálpsemi í Vesturbænum en hann hefur til viðbótar við póstburð aðstoðað fólk við að komast til vinnu í snjóþunganum. Lorenz segir að fólk mætti vera duglegra að hjálpa náunganum. 10.2.2023 19:30
Málið sé bænum ekki til framdráttar Raunir ungrar fjölskyldu sem hefur verið á hrakhólum í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra í Reykjanesbæ eru bænum ekki til framdráttar. Þetta segir bæjarfulltrúi minnihlutans. Málið verði að leysa. 10.2.2023 13:00