Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Ég geri ekki at­huga­semd við það að þetta sím­tal hafi átt sér stað“

Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta.

Að­skota­hlutur fannst í kanilsykurspoka

Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla Kanilsnúðaköku frá Kornax. Ástæða innköllunar er að aðskotahlutur, nánar tiltekið plaststykki, fannst í kanilsykurspoka sem fylgir með Kanilsnúðakökunni.

Á­kærður fyrir að nauðga sau­tján ára stúlku en neitar sök

Bandaríski áhrifavaldurinn Braden Eric Peters, sem er betur þekktur undir nafninu Clavicular, hefur neitað sök vegna ákæru um refsiverð brot, þar á meðal nauðgun. Er hann helst þekktur fyrir að breiða út hugmyndina um að „looksmaxx-a“ sem gengur út á að líta sem best út sama hvað og eftir öllum mögulegum leiðum, jafnvel með skaðlegum aðferðum.

Búið að opna Hellis­heiði á ný

Hellisheiði var lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss í gær og í nótt. Slysið átti sér stað á tíunda tímanum og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar

Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021.

Ís­búð Vestur­bæjar í Skip­holti lokað

Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti hefur verið lokað en starfsemin verður flutt í Grímsbæ. Þá var það sama uppi á teningnum þegar búðinni var lokað á Grensásvegi í desember fyrir þremur árum.

Frá­farandi for­stjóri Lands­virkjunar opnar sig um starfs­lokin

Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað.

Lög­reglan hafði af­skipti af tugum öku­manna

Mikill fjöldi ökumanna á yfir höfði sér kærur eða sekt vegna ýmissa umferðarlagabrota eftir daginn í dag en þar á meðal eru sjö sem eiga von á sekt vegna þess að hafa lagt ólöglega. 

Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús

Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl.

Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu

Hagnaður flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam tólf milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við sjö milljarða króna á síðasta ári. Þó eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung krefjandi og gert er ráð fyrir að afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð.

Sjá meira