Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara var­lega

Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar til þeirra sem standa nú að björgun á lundapysjunni að fara varlega og leggja leið sína að svokölluðu sleppisvæði og standa þar fyrir innan hlaðna veggi. Þeim hafi borist í það minnsta tvær tilkynningar um að fólk hafi staðið fyrir utan veggina og litlu munað að illa færi.

Myndaveisla: Leyni­gestir og inn­lifun á stórafmælistón­leikunum

Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar voru haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars voru meðal þeirra sem stiga á svið en stemningin var gríðarleg þrátt fyrir rigningu og rok.

„Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir í­búana í hverfinu“

Ein fárra leiða inn og út úr íbúðahverfinu á Kársnesi hefur verið lokuð vegna framkvæmda síðan í júlí en áætlað er að þeim ljúki í síðasta lagi í október og þá sé unnt að opna fyrir umferð út úr hverfinu á ný. Verið er að leggja nýja stofnlögn til að tryggja íbúum nægt heitt vatn til framtíðar en upplýsingafulltrúi Veitna segir mjög skiljanlegt að íbúum sé farið að finnast þetta heldur tímafrekar framkvæmdir.

Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.

Myndaveisla: Lita­gleði og lög­regla á Tóna­flóði á Arnarhóli

Gríðarlegur fjöldi fólks var samankominn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þegar Menningarnótt fór fram með tilheyrandi gleði og glaum. Það voru ríflega fjögur hundruð viðburðir á dagskrá en þar má meðal annars nefna bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð.

Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Sví­þjóð nafn­greindur

Hinn átján ára gamli Liam Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en hann er grunaður um morð og tilraun til manndráps eftir að 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárás í Fagersta í Svíþjóð. Hann var sjálfur nemandi við skólann þar sem hann gekk berserksgang vopnaður sverði föstudaginn 22. ágúst.

Mal­bika Vestur­lands­veg og stýra um­ferð á meðan

Í kvöld, sunnudaginn 23. ágúst, og aðfaranótt mánudagsins 24. ágúst stendur til að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi, meðal annars yfir Leirvogsá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00. Einhverjar tafir geta orðið á umferð meðan á þeim stendur en henni verður stýrt í gegnum vinnusvæði.

Heilsu Haralds konungs hrakar

Haraldur Noregskonungur hefur legið inni á spítala í tæplega viku, eða síðan mánudaginn 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms en heilsu hans hrakaði um helgina. Hákon krónprins er ríkisstjóri á meðan hinn 89 ára Haraldur konungur er á sjúkrahúsi.

Tvö út­köll á svipuðum slóðum á há­lendinu með stuttu milli­bili

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að austanverðum Sólheimajökli í kjölfar útkalls vegna manns sem hafði slasast á fæti um tvöleytið í dag, sunnudaginn 23. ágúst. Hann var hífður upp og fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur en skömmu áður höfðu björgunarsveitir sótt annan slasaðan mann á svipuðum slóðum.

Til­kynnt um heimilis­of­beldi í Reykja­vík og Hafnar­firði

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um heimilisofbeldi í hverfi 105 Reykjavík og hverfi 220 í Hafnarfirði í morgun eða í dag. Ekki liggur fyrir hvort það hafi áður verið kallað eftir aðstoð lögreglu á sömu heimili né hafa komið fram frekari upplýsingar um áverka og málsatvik.

Sjá meira