Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei”

Það er úr mörgu að velja í miðborg Reykjavíkur í dag, þjóðhátíðardag Íslendinga, en í Marshall-húsinu úti á Granda verður opnuð sýningin „Hæhóogjibbíjei” klukkan fimm. Að baki sýningunni standa listakonan Elísa Þóreyjardóttir, tvíeykið í Gallerí Kichin og eigendur gallerísins Kling & Bang en nammitískubylgjur á íslenskum markaði voru meðal þess sem Elísa dró innblástur af við undirbúning sýningarinnar.

Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak

Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku.

Mette-Marit krón­prinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri að­gerð

Mette-Marit krónprinsessa Noregs hefur gengist undir vel heppnaða lungnaígræðslu en hún greindist með lungnasjúkdóm sem kallast lungnatrefjun fyrir um ári síðan. Í september 2025 fór hún í veikindaleyfi vegna þess og hefur undandarið sést með súrefnisgleraugu.

Viðrar vel til há­tíðar­halda á höfuð­borgar­svæðinu

Búast má við hvössum vindstrengjum og varasömum aðstæðum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsvagna, við suðausturströndina. Það er lægð suður af landinu sem veldur stífri norðaustanátt og henni fylgja skúrir og svalt veður um landið austanvert en víða má reikna með 8 til 15 metrum á sekúndu.

Að fólk skilji garðhús­gagna­búslóðirnar eftir heima

Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér.

Haf­þór Júlíus reynir að hafa uppi á manni

Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson birti á dögunum færslu í Facebook-hópnum Garðabær – íbúar þar sem hann greinir frá því að maður, sem hann þekki ekki né kannist við, hafi verið á vappi fyrir utan heimili hans seint um kvöld. Nú biðlar hann til fólks að koma sér í samband við manninn.

„Hann var orðinn svo of­boðs­lega kaldur“

Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi varð að ljúka sundi niður Lagarfljót snemma vegna ofkælingar en fljótið var kaldara en búist var við. Hann hóf sundið niður Lagarfljót um klukkan níu í gærkvöldi, mánudaginn 15. júní, en áætlað hafði verið að það tæki um sólarhring að synda þessa leið sem er um fimmtíu kílómetra löng. Tilgangurinn var að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt.

Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæða­blóð“

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er einn þeirra sem vakið hafa athygli á því að alþjóðlegi blóðgjafadagurinn hafi verið í gær, þann 14. júní. Blóðbankinn flutti í vetur af Snorrabraut í Reykjavík og yfir í Kringluna en aðstaðan er stórbætt og mun auðveldara fyrir blóðgjafa að koma og gefa blóð, að sögn yfirlæknis. Það sé alltaf vöntun á fleiri blóðgjöfum og hann hvetji alla til að kynna sér hvort þeir geti mögulegir orðið gjafar.

Sjá meira