Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Sjálf­stæðis­flokkur stærstur en nær ekki meiri­hluta með Miðflokki og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn. 

Tók debet­kort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón

Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum hefur verið dæmd fyrir að hafa tekið debetkort af vistmanni og greitt fyrir vörur og þjónustu að andvirði ríflega 1,2 milljóna íslenskra króna. Þannig er henni gert að hafa misnotað stöðu sína en vistmaðurinn er í dómnum sagður vera með vitræna skerðingu, vangetu til þess að átta sig á fjármálum og háður hinni ákærðu um þjónustu.

„Því hraðar, því betra fyrir sam­göngur á höfuð­borgar­svæðinu“

Endurskoðun á Borgarlínu myndi hægja á verkefninu, að mati framkvæmdastjóra Betri samgangna, líkt og hugmyndir nokkurra oddvita í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum gera ráð fyrir. Kostnaður við umferðartafir sé töluverður og því skipti máli að vinna hratt og vel í þessum málum.

Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag

Ekið var á hjólreiðamann í Hlíðunum í dag en sá brást við með því að láta höggum rigna yfir bifreiðina svo sást á bílnum. Manninn sakaði ekki. Þá var tilkynnt um þjófnað á fjórum mismunandi stöðum í dag en meðal annars var verkfærum stolið í Árbæ.

Kannast þú við Tommy?

Sakamál sem snýst um andlát sænsks sautján ára drengs hefur leitt rannsakendur til Íslands. Nú hafa verið birtar myndir og er óskað eftir öllum vísbendingum sem leitt gætu að uppljóstrun málsins. Íslandstengingin við málið er sú að þegar Tommy fannst látinn, árið 1966, fannst einnig kvittun frá Hótel Loftleiðum í vasa hans.

Ömur­legt að sjá skila­boð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk

Þrjátíu og þriggja metra langt listaverk sem hefur prýtt vegg í Hamraborg í Kópavogi síðustu sjö árin hefur vikið fyrir auglýsingu. Breytingin hefur vakið athygli meðal íbúa en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið er Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands. Kópavogsbær hafnar því að breytingin hafi nokkuð með pólitík að gera.

Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitar­fé­laginu í dag

Keyrt var á tólf ára barn sem var við leik við Ægisgötu upp úr klukkan tólf í dag. Barnið hlaut áverka á fæti en var barnið flutt undir læknishendur í kjölfar slyssins. Þá var fjórtán ára stúlka flutt á bráðamóttökuna eftir að ekið var á hana í Hafnarfirði.

Guð­mundur Ingi svarar fyrir um­deilt mynd­band

Gervigreindarmyndband sem birt var á TikTok-aðgangi oddvita Flokks fólksins í Reykjavík, Guðmundar Inga Þóroddssonar, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar mátti meðal annars sjá Guðmund veitast að Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, og Ingu Sæland dansandi káta. Myndbandið hefur nú verið tekið niður og segir Guðmundur að um dómgreindarleysi sé að ræða.

Golfkúlum rigndi yfir bílaumboð og ekki í fyrsta sinn

Ungmenni í golfi á golfvelli Golfklúbbs Reykjavíkur léku sér á æfingabásum vallarins að því að dræva golfkúlum yfir Krókhálstjörn og inn á bílastæði þjónustuverkstæðis Öskju við samnefnda götu. Forstjóri Öskju segir nokkra bíla hafa orðið fyrir kúlu með tilheyrandi tjóni.

Sjá meira