Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Grunnskólakennari spyr í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis séu stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að vera innleidd í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra. 28.9.2026 19:24
Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp vegna fjárlaga 2027 en þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda. Sambandið geti með engu móti stutt það óbreytt og telur að „stjórnvöld þurfi að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni“. 28.9.2026 18:08
Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt mun fara fram á milli Kaplakrika og Kauptúns frá klukkan 20:00 til 07:00 í nótt. Eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir við vinnusvæðin en lokað verður fyrir umferð á vegkaflanum. 28.9.2026 17:45
Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick hlutu í gær, laugardaginn 26. september, heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fyrir framúrskarandi listfengi. Verðlaunin voru afhent við móttöku RIFF og Reykjavíkurborgar í Listasafni Reykjavíkur. 27.9.2026 23:14
Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Manúela Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland og Elísa Gróa Steinþórsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri segja ásakanir sem hafa verið bornar upp á þær og teymið á bakvið keppnina síðustu daga vera rangar að miklu leyti. Þær séu alltaf opnar fyrir samtali ef einhver hafi neikvæða upplifun af keppninni en að ásakanir um andlegt ofbeldi, fjárkúgun og mismunun séu alvarlegar og ósannar. 27.9.2026 22:45
Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Aleksandar Vucic forseti Serbíu hefur sagt af sér en mótmæli hafa dunið á honum og ríkisstjórninni síðustu árin. Hann hafði setið sem forseti frá árinu 2014 og voru sjö mánuðir eftir af fimm ára kjörtímabilinu sem hófst árið 2017 þegar hann tilkynnti afsögn sína. 27.9.2026 21:39
Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Tónlistarmanninum Elvari Orra er stefnt fyrir að hafa notað hljóðbút í upphafi lagsins „Miklu betri einn“ þar sem heyra má í tveimur stelpum sem rífast hástöfum. Þá krefst stefnandinn í málinu þess að fá miskabætur frá rapparanum. 27.9.2026 20:46
Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Tveir eru látnir og í það minnsta átta manns er enn saknað eftir að snjóflóð féll á grunnbúðir í Himalajafjöllum þar sem hópur fjallgöngufólks hafði komið sér fyrir. Hópurinn var skipaður nepölskum ríkisborgurum, þar á meðal fjallgöngumönnum og aðstoðarfólki, sem hafði verið sendur á undan erlendum fjallgöngumönnum til að undirbúa búðirnar og festa línur í fjallinu. 27.9.2026 19:20
Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Þúsundir hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín í höfuðborg Taílands vegna flóða en útlit er fyrir að það fari að draga úr rigningu á svæðinu. Neyðarskýli hafa verið sett upp víða um borgina og vegum hefur verið lokað en unnið er að því að veita vatni burt eins fljótt og auðið er. 27.9.2026 18:03
Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Lögreglu á stöð eitt barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun eða í dag. Þegar laganna verði bar að garði var gerandinn farinn af vettvangi en þó telur lögreglan sig vita um hvern ræðir og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlega áverka var að ræða. 27.9.2026 17:29