Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Á morgun, fimmtudaginn 16. júlí, er búist við hvassviðri og þá sérstaklega hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum norðvestanlands en hviður geta náð allt að tuttugu og fimm metrum á sekúndu. 15.7.2026 19:11
Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður, starfsmaður hjá RÚV og í dag leiðsögumaður, hefur fengið svar við fyrirspurn sinni sem hann sendi Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra eftir að honum var að eigin sögn nóg boðið vegna áfengisauglýsinga í Ríkissjónvarpinu. Í svari sínu segir Stefán að Fjölmiðlanefnd hafi tekið málið fyrir á sínum tíma og látið það niður falla en Adolf sakar Ríkisútvarpið um að skýla sér á bak við nefndina. 15.7.2026 18:50
Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Stærsti matarviðburður landsins, Götubitahátíðin, snýr aftur á sinn stað um helgina en líkt og síðustu ár fer hátíðin fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Á sunnudaginn verður svo tilkynnt hver stóð uppi sem sigurvegari árlegu keppninnar um Besta götubita Íslands. 15.7.2026 18:01
Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Ekki eru allir á sama máli um hvort hjóla megi yfir á rauðu ljósi. Í umferðarlögum kveður þó skýrt á um að ökumönnum sé „óheimilt að aka gegn rauðu umferðarljósi. Við rautt ljós skal ökutæki stöðvað áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, umferðarljósastólpa.“ 10.7.2026 07:15
Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Síðustu daga, og þá sér í lagi þann 4. júlí, fóru fram viðburðir víðs vegar um Bandaríkin til að fagna 250 ára afmæli sjálfstæðis þjóðarinnar. Í erlendum miðlum kemur fram að bandaríska þingið hafi úthlutað 150 milljónum bandaríkjadala til hátíðarhaldanna en upphæðin nemur um átján billjónum íslenskra króna. Meðal dagskrárliða var vegleg skipasýning en aðrir viðburðir voru meðal annars fylkissýning til heiðurs öllum landshlutum Bandaríkjanna, yfirflug orrustuþotna og opnun forsetabókasafns. 9.7.2026 17:00
Innipúkunum fjölgar enn Elín Hall, Ízleifur, GDRN og Joey Christ eru meðal þeirra sem hafa bæst við hóp listamannanna sem koma fram á Innipúkanum í Austurbæjarbíói um verslunarmannahelgina. Tónlistarhátíðin stendur yfir í þrjá daga líkt og vanalega en hún hefur verið haldin árlega síðan 2002 að undanskildum tveimur „mögrum kóvid-árum“. 9.7.2026 14:46
Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Flugkennarinn Leandro Andrés Bertazzo, 42 ára, fannst látinn eftir að hafa stokkið út úr dyrum flugvélar og með því skilið nemanda sem hann var að kenna eina eftir svo hún varð að lenda vélinni sjálf. Atvikið átti sér stað yfir bænum Toledo í Argentínu á laugardag, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara landsins sem birt var á þriðjudag. 9.7.2026 13:48
Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Frönsk kona sem þykir hinn versti ljósmyndari lauk hringferð um Ísland á dögunum. Markmið ferðalagsins var að reyna að ná lélegum myndum af íslenskri náttúru. Hún komst þó að því að það væri hægara sagt en gert. 8.7.2026 22:00
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kokteilbarinn Resident Room er opnaður í dag, miðvikudaginn 8. júlí, dyr sínar að Hverfisgötu 26 þar sem veitingastaðurinn Matbar var áður til húsa. Það eru útvarpsþáttastjórnandinn Daníel Jón Baróns sem starfar á Rás 2 og barþjónninn Ásgeir Már Björnsson, sem er nýfluttur aftur heim eftir að hafa starfað lengi erlendis, sem stýra barnum en þeir ætla sér að „hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni“. 8.7.2026 12:22
Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027 en meðal breytinga sem gerðar voru eru aukin áhersla á geðheilbrigði, endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna og aukin fræðsla um kynheilbrigði. 7.7.2026 17:17